Olla Björk
24 gráður í Nóvember!
Við segjum bara allt það fína hér á Belgíugötunni.
Hvort sem það eru gróðurhúsaáhrifin eða eitthvað annað þá er nóvember búinn að vera alveg rosalegur!  Það er um 25 gráðu hiti alla daga.  Alveg merkilegt því á sama tíma í fyrra rigndi og rigndi.
Við erum öll rosalega upptekin og eitthvað hefur fréttasíðan fengið að finna fyrir því.  En á meðan líður tíminn hratt og ekki kvartar maður þegar maður er að gera það sem mann langaði til, við erum svo heppin með það :)
Það er nú samt helst í fréttum að:
Feðgarnir koma heim 17. des
Móðirin þann 21. des
og verðum við á hótel tengdó.
Fram að 8 jan.
Aron Elí er svo búinn að missa sína fyrstu tönn og þroskaðist heilan helling við það.  Tannmúsin laumaði litlum skopparaboltum undir koddan í stað tannarinnar.  Herra þakklátur átti varla til orð yfir gjafmildi músarinnar þar sem boltarnir voru 5! og reyndi að deila þeim á milli okkar hér og er í stökustu vandræðum með 2 stk ennþá :)
Hann stendur sig vel í skólanum og er farinn að lesa á fullu og hefur gaman að.
Litla barnið okkar er semsagt búið að missa tönn og farinn að koma heim með heimavinnu á hverjum degi!
Lífið okkar hefur nú samt aldeilis breyst með nýjustu skólagöngu mömmunnar!
En við erum að aðlagast eins og við höfum þurft að gera svo oft áður ;)
Skólinn minn er nefnilega frá 16-21 mánudaga til fimmtudaga og 2-3ja hvern föstudag er próf á sama tíma.
Þessar vikur hafa samt liðið alveg svakalega hratt og ég er mjög ánægð í skólanum.
Ragginn er svo alveg að fara að detta í próf og þeir feðgar telja niður í ferðalagið sitt.  Aroni Elí var boðið að vera einn af vitringunum þremur á jólaskemmtun skólans en þurfti að afþakka það vegna Íslandsferðarinnar og sýndi þvílíkann þorska og skilning.
Þetta foreldrahlutverk verður alltaf skemmtilegra og skemmtilegra.
Um daginn vakti hann okkur með orðinum:  "Ég er að drepast í hálsinum og svo er ég líka heitur!"  Mikið fannst foreldrunum vænt um þessa tilkynningu þar sem ekki fór ómældur tími í ágiskanir og mat á krankleikanum.
Hann átti svo þessa gullnu setningu um daginn:  "Mamma ef þið pabbi viljið búa til barn, þá kemur þú með eggið. En pabbi verður að gá í tölvuna hvað hann á að gera!"
Orðheppna barnið borðaði svo kjúkling í barbí-sósu með hamborgarabaunum á kínastað í einu hádeginu :)
Við eigum svo íslenska vini hér sem koma stundum að horfa á fótbolta.  Aron Elí spurði svo eftir nokkur skipti hvers vegna það kæmu alltaf bara tveir og tveir í einu en aldrei allir 3.  Við urðum frekar undrandi og sögðum honum að Maggi og Þröstur væru bara tveir.  Þá heyrist í honum "Nei nei það er einn með gleraugu og tveir ekki!"
Í seinustu viku á leið í klippingu bað hann um að verða ekki klipptur eins og BUBBI, foreldrarnir urðu tvö stór spurningamerki í framan og spurðu hvað Bubba hann væri að tala um og svarið var :  "Æj þarna Bubbi Morthens!"
Litli Rómeo snéri sér að kennurunum sínum einn daginn þegar ég sótti hann og sagði: "Sjáið hvað mamma mín er sæt í dag!"
Um daginn steig ég svo berfætt á kakkalakka í svefnherberginu okkar Ragga og trylltist (en ekki hvað) og þá kom hann hlaupandi og sagði: "Nei nei þetta er allt í lagi, hann var dauður.  Ég ýtti í hann í GÆR og hann hreyfði sig ekki."  Mér leið ekkert betur að vita að ég hefði sofið með kvikindið við hlið mér alla nóttina.
Hann ákvað svo einn daginn að taka málin í sínar hendur eftir að það var ekki boðið uppá "smakk" í matvörubúðinni og situr og gæðir sér á spænskri-pylsu með tannstönglum!
Það sem dettur uppúr honum er reyndar ekkert alltaf voðalega fallegt.  Á föstudaginn var hann reiður við mig því hann átti að fara í bólið og var alveg búinn á því og tilkynnti mér að ég væri LJÓT!  Ég sagði honum bara pollróleg að fara að sofa og hugsa aðeins um það sem hann hefði sagt.  Eftir smá stund kallaði litli Stubbur og baðs afsökunnar en sagði svo sér til málsbóta að ég væri nú ekkert falleg svona rétt á meðan ég litaði á mér augabrúnirnar!
Við biðjum að heilsa í bili og við hlökkum mikið til að koma heim og knúsa alla!
Nú er haustið alveg að byrja ;)
Nú er haustið að koma hér hjá okkur.  Það er samt ennþá mjög hlýtt og skiptinemarnir eru enn á ströndinni, við erum hinsvegar orðin svo spænsk að okkur finnst ekki nógu heitt til þess.
Ég fór á Októberfest til Munich í 5 daga um seinustu helgi.  Það var alveg hrikalega gaman en svolítið strembið ferðalag en ég er ennþá svo ung að ég ætla ekkert að væla yfir því.  Ég þurfti sem sagt að taka rútuna hér í Valencia kl. 00:30 til Alicante og átti svo flug um 7 og var komin til Munich um 9 eða það hélt ég hehe...  En flugvöllurinn var langt fyrir utan Munich en sem betur fer kom Gunnhildur að sækja mig svo að þetta var bara gaman.
Í Munich hafði ég það bara notalegt og við Gunnhildur drukkum bjór og skemmtum okkur vel.  Hátíðarsvæðið var miklu miklu stærra en mig grunaði og fólkið miklu miklu fyllra en ég bjóst við ;)  Ólíkt því sem Spánverjarnir gera þ.e. að fara út á miðnætti þá var fólk að koma sér heim á miðnætti, sem hentar mér betur.  Munich er rosalega falleg borg og allt svo rólegt þar og einhvern veginn svo "öruggt" eitthvað því maður upplifir það aldrei að maður sé staddur í risa stórri borg.
Heimferðin gekk líka bara vel en það var samt sem áður ólíkt þægilegra að ferðast svona að degi til.  Ég held ég verði bara fastagestur þarna í Munich á þessum tíma um ókomin ár ;)
Aron Elí er voðalega ánægður að vera byrjaður aftur í skólanum og finnst rosalega flott að vera á elsta ári og nú er hann strax farinn að lesa helling og reikna mínusdæmi.  Honum finnst stærðfræðin og enskan skemmtilegust.  Þar að auki hefur honum farið svo mikið fram að kennarinn hans átti ekki til orð þegar hann kom til baka.  Nú getur hann tjáð allar sínar hugsanir og langanir og hann segir henni víst ALLT það sem um er að vera hjá okkur hér á Belgíugötunni.  Reyndar hefur hann kvartað svolítið yfir því undanfarið að hann sé alltaf einn að leika hér heima og langi í vin sem kemur heim með honum, mamman fær auðvitað sting í hjartað en......  hann er að græða svo margt annað á að vera hér.  Hann segir að hann segi stundum "Rétt upp hönd sem vill koma heim með mér eftir skóla" og fullt af krökkum rétti upp hönd en svo komi bara enginn.  Aumingja litli kallinn :(  Við þurfum eitthvað að reyna að bæta úr þessu og finna okkur einhverja svona fjölskyldu á svipuðu reki og við en.....  Það er erfitt því enginn hér á okkar aldri á 5 ára gamalt barn, stundum líður okkur eins og geimverum hehe...
Meðan ég var í "menningar-reisu" til Þýskalands fóru feðgarnir í sveitina til Afa, lang-afa og Paco og fjölskyldu og skemmtu sér mjög vel.  Aroni Elí fannst æðislegt að geta talað við langa-afa sinn og alla hina og naut sín í botn.
Spænskuskólinn minn gengur bara vel og ég er ánægðari með þennann skóla en hinn sem ég var í og ég á ennþá eftir 5 daga í honum og svo ætla ég að sjá til hvað ég tek mikið með skólanum....
Já því námið mitt byrjar á þriðjudaginn (vó ég ældi næstum úr stressi að skrifa þetta).  Ég hlakka samt mikið til og er að reyna að hafa jafn mikla trú á sjálfri mér og allir hinir virðast hafa.  En ég er búin að fara á fund með stjórnanda námsins og flestum nemendunm og líst bara vel á og eftir fundin fór ég með nokkrum krökkum í bjór og var rosalega ánægð með andan í hópnum.
Þessi helgi er löng því á morgun er dagur Valencia og á mánudaginn er dagur Spánar held ég og ætlum við því að hafa það extra notalegt og kíkja á flugelda og skrúðgöngur og slíkt enda er hér æðislegt veður eða um 30 gráður eftir annast mjög votar 2 vikur.
Sumarfríið endalausa senn á enda
Jæja nú sitjum við kútur hér í sófanum og erum búin að sofa alein fyrstu nóttina hér án gesta síðan annan júlí.  Svolítið tómlegt en notalegt engu að síður.  Nú vantar okkur bara heimilisföðurinn svo lífið geti nú farið að fara í fastar skorður aftur.  Raggi kemur hins vegar ekki heim fyrr en aðfaranótt föstudagsins en þessir dagar verða fljótir að líða.  Aron Elí á að byrja í skólanum á morgun en það er ekki útlit fyrir að hann verði orðinn nógu hress til þess að mæta.  Hann er nefnilega búinn að vera með hita í nokkra daga en svo núna fyrst er hor og hósti að koma.
En mikið rosalega leið þetta sumar hratt og mér finnst eins og það hafi veri í seinustu viku sem við vorum að græja gestaherbergið enda vað voðalega skrítið að sjá svefnsófann samansettann í gær.  Við eigum örugglega aldrei eftir að gleyma þessu sumri.
Við erum orðin voðalega spennt fyrir þessum vetri, Aron Elí er að fara í bekk sem heitir Leones eða Ljónin og er hann svolítið spenntur fyrir því að læra að lesa.  Við erum aðeins byrjuð að lesa á íslensku en hann gefst fljótt upp, en ég hef tekið eftir því að hann getur lesið alveg helling, bara ekki svona eftir pöntunum ;)  Í sumar hefur hann aðeins verið að bæta við stærðfræðikunnáttuna og er farin að reikna stærri dæmi, lærði allt í einu muninn á hægri og vinstri og hann er alltaf að læra meir og meir á klukkuna.  Það verður því gaman fyrir hann að koma aftur í skólann og hitta krakkana og kennarann sinn og halda hugarleikfiminni áfram.
Raggi ætlar svo í vetur að vera í fjarnámi frá HR.  Planið var aðvitað að hann myndi skipta yfir í tækniháskólann hér í haust en þegar upp var staðið þá fann hann sig aldrei í skólanum hér úti og hætti því við að reyna að skipta.  Það hefði líka þýtt glataðar einingar og fleira.  Hann er því mjög kátur með að vera áfram í HR þar sem hann þekkir inná allt og skipulagið er 100% og þú veist til hvers er ætlast af þér.  Raggi verður því heimavinnandi húsfaðir í námi sem þýðir ennþá meiri samvera fyrir okkur litlu fjölskylduna.
Ég aftur á móti byrja ekki í skólanum fyrr en 13 október og hlakka mikið til en kvíðahnúturinn stækkar líka um leið....  Ég er reyndar að byrja aftur á spænskunni eftir að hafa varla litið í bók í sumar og svo er ég að byrja að undirbúa mig svolítið fyrir skólann.  Í fyrstu lotu er t.d. kennd saga fólksflutinga á 19-21 aldar og með hjálp internetsins er hægt að troða á sig einhverjum fróðleik svo maður geti nú giskað í eyðurnar þegar maður skilur ekki fyrirlesarann.
Þó svo að ég sé versti gestgjafi í heimi þá ætla ég að skella mér í smá húsmæðraorlof eftir átök sumarsins, ég er búin að bóka flug á októberfest 1-6. Október til Munich og ætla að heimsækja hana Gunnhildi mína í leiðinni.  Ég hlakka svo til!  Ég hef aldrei komið til Munich og hvað þá á Októberfest, í október get ég því strikað það út af "Það sem ég ætla að gera áður en ég dey" listanum ;)
Það eru svo allir að spyrja að því hvort við komum ekki alveg örugglega heim um jólin.  Auvðitað gerum við það!
Þá eru mamma, Svenni og Hlynur í heimsókn
Við eyðum dögunum allavegana, í bænum, á ströndinni eða í garðinum.  Þau fara svo heim á laugardaginn og þá koma Ívar og Sandra til okkar Arons Elís.  En Raggi er búinn að vera heima á Íslandi síðan á laugardaginn og verður í 3 vikur í viðbót.
Bloggum meira við tækifæri!
Fyrsta holl komið og farið og næsta í rútu á leið hingað
Við segjum allt fínt bara, en þið?
Við kvöddum Önnu, Dóra, Ástu og Bjarka á fimmtudaginn og eftir smá stund koma tengdó (þessa stundina eru þau í rúta á leið hingað til Valencia)
Við eyddum tveimur vikum hér í Valencia með fjölskyldunni.  Bjarki greyið veiktist strax í byrjun og endaði á að eyða einni nótt á spítala með foreldrum sínum með vökva í æð og missti því af fyrstu dögunum hér.  Aron Elí og Ásta fengu reyndar líka hita í einn og hálfan dag stuttu seinna en voru merkilega hress.
Við fórum með þau um alla borg og sýndum þeim miðbæinn, nýju flottu byggingarnar, garðinn okkar, rósagarðinn, tívolí og margt margt fleira.  Auk þess fóru þau líka fjögur í dýragarð.
Við fórum svo öll saman með rútu til Cabo-Riog sem er á Torrivieja svæðinu.  Þar eyddum við viku í sólbaði, bjórþamb og súkkulaðiát og höfðum gaman að.
Við tókum svo rútu til Alicante og þaðan tókum við lest heim á fimmtudaginn og eigum pottþétt eftir að ferðast meira með lest enda frábær ferðamáti að fara inní landið og sjá það sem ekki sést frá hraðbrautunum.
Við getum ekki gert uppá milli hver er spenntastur að hitta "gamla"-settið sem er á leiðinni, en hlökkum mikið til að gefa afanum 50 ára afmælisgjöfina sem Aron Elí segir að sé "Indiana Jones veiðihattur".
Við Raggi viljum hins vegar meina að þetta sé veiðihattur af bestugerð úr 100% ull með goritexi og læti, svo kallinn ætti að vera flottastur í næstu veiðiferð með vinunum :)
Við höfum heyrt að allir ætli að elta tengdó á tónleikana sem þau eru að fara á á Benidorm og eyða með þeim 3 dögum þar og erum við sátt með það svo ekki sé meira sagt.  Reyndar tók Aron Elí ekkert alltof vel í hugmyndina en sagði svo: "Ég skal segja já við þessu ef ég má gera það sem ég vil þangað til!"  Spurning um hvort að hann sé ekki bara farin að lifa of góðu lífi barnið ;)
Við erum nú í vandræðum að byrja fleiri málsgreinar á "VIÐ" en Raggi á í einhverjum tæknilegum vandræðum með myndirnar, þið vitið hvernig þetta er, flísarinn nennir ekki að fúa milli flísanna heima, smiðurinn klárar ekki að setja upp parketlistana í stofunni sinni og vaskurinn í bílskúrnum  heima hjá píparanum er stíflaður í mánuði í senn.
Í fréttum er þetta helst:
Svo kom hann heim með frábærar einkunnir og vitnisburð sem var fullur af hrósi og aftur vorum við að rifna.
Mamman stóð sig ágætlega í spænskuprófinu og var mjög fegin að komast í frí, það er nefnilega ekkert grín að sitja í skólastofu í 30 gráðu hita.
Sumarfríið Arons Elís byrjaði svo á hádegi á föstudeginum 19,6 og hafa mæginin verið að dúlla sér saman síðan þá.
Gunnhildur kom svo til okkar og var í nokkra daga, við gerðum ekkert annað en að hanga á ströndinni og drekka bjór.  Einmitt það sem hún vildi.
Við fórum svo á Jónsmessunótt á ströndina og það var sko upplifun.  Fólk sat allstaðar í sandinum með varðelda og svo voru tónleikar líka.
Raggi klárar prófin á morgun eftir lengstu prófatörn sem ég hef heyrt um.
Anna, Dóri, Ásta og Bjarki koma til okkar eitthvað um miðnætti á morgun.  Við ætlum að sýna þeim borgina, ströndina og svo förum við öll saman í sumarhús í viku.  Hér er svo mikil spenna að ég veit þið trúið því ekki.
Sumarið okkar byrjar sem sagt af alvöru á morgun þegar við fáum Ragga uppúr skólabókunum og þá förum við örugglega að segja fullt af sögum.
Sögustund ala Olla Björk
Héðan er allt gott að frétta.  Ragginn er í prófum með tilheyrandi skeggvexti og táfýlu ;)  Ég er svo alveg að fara í próf og á sjálfan þjóðhátíðardaginn og svo frí!  Gunnhildur uppeldissystir mín af Suðurgötunni kemur svo 19/6 og ætlar að eyða með okkur helginni, mikið stuð og mikið gaman.
Nauðsynlegt að lesa blaðið
Annars segjum við mest lítið.  Við erum að fara á föstudaginn á lokahátíð í skólanum hjá Aroni Elí og eru þau búin að æfa mikið fyrir hana og hann hlakkar mikið til að sýna okkur, en þetta verður haldið í leikhúsi.  Ég hef nú samt meiri áhyggjur af því að hann verðu fyrir sálrænum skaða af því að þurfa að vera í búningnum sem ég var látin kaupa á hann.  Hann á sem sagt að vera rúmbudansari!
Rúmbudansari
Fréttirnar eru fáar en ég luma á nokkrum sögum:
Mæðginin voru á leið í skólann þegar Aron Elí söng hástöfum og vildi að móðirin tæki undir, hún var nú eitthvað treg til og þá sagði hann:  "Æjjj ertu hrædd um að fólk haldi að þú eigir ekki pening fyrir mat og hendi til þín peningum???"
Sofandi
Í vikunni kom hann heim með þær upplýsingar að einn strákur í bekknum hans hefði borðað strokleður og endað á spítala.  Eitthvað voru foreldrarnir tregir að trúa því og sögðu honum að fullorðið fólk segði stundum svona en yfirleitt næðu börn ekki að borða nógu mikið af strokleðri svo það gerðist.  Barnið var frekar pirrað og þvert og sagði bara JÚ!  Kennarinn fór með hann og allt.  Svo daginn eftir hittum við mömmu drengsins fyrir utan skólann og Aron Elí spurði hana um bekkjarbróður sinn og hún sagði honum að hann hefði brotið olnbogann sinn og þyrfti því að vera heima.  Þá sagði hann við hana:  "Já!!!  Hann borðaði strokleður og fór á spítalann!!!
Uppáhaldið
Svo minnir hann mig stundum á Ívar afa sinn heitinn.  Hann þarf að spjalla við alla sem hann hittir!  T.d. í dag fékk öryggisvörður í matvörubúðinni alveg ókeypis fræðslu um muninn á löggum og "bara" öryggisvörðum.
Eitthvað höfðu þau verið í biblíufræðunum í skólanum um daginn þegar hann horfði á okkur, faðmaði og sagði svo:  "Ég er Jesú barnið ykkar!"
Strandferð
Svo er hér ein gömul frá því á Tenerife:
Við vorum í hótellyftunni og þá gaus upp þessi svakalega fýla!
Mamman: "Aron Elí!  Veistu hvað er stranglega bannað að gera í lyftu???"
Aron Elí: "Jâ það er bannað að fara blautur inní lyftuna og blása reyk"
Mamman:  "Hlæjandi nei meinti svona meira að prumpa!
Aron Elí: "Nei það er ekkert svoleiðis merki!"
Hvað segið þið gott?  Maður heyrir frá öllum að gula kvikindið sé mætt á klakann, njótið vel!
Það er nú alveg hellingur að gerast hjá okkur.
Við tókum t.d. leigusalann í bóndabeygju og reyndum að fá hann til að lækka leiguna og breyta leigusamningnum og erum enn að bíða eftir því að konan hans segi af eða á.  Þið vitið að konur ráða öllu og Spánn er engin undantekning.
Svo erum við komin með heimasíma, sama númerið en nú er hægt að tala í símann án þess að vera bundinn við tölvuna og svo eru gæðin betri.  Aron Elí svarar ef þið hringið og þar sem þetta er HANS sími þá skellir hann á þegar hann hefur lokið málið sínu.
Við fengum svo kall í heimsókn um daginn til að laga flísarnar á baðinu því fúurnar héldu ekki lengur vatni og það lak vatn inní fataskápinn okkar.  Mjög spes að allt í einu gaus upp alveg svakaleg reykingalykt og maðurinn stóð í baðinu og setti öskuna í rakt baðið.  Þeir eru alveg svakalegir með þessar reykingar sínar hér.
Aroni Elí og okkur var svo boðið í afmæli hjá vinkonu hans úr skólanum um daginn.  Hann skemmti sér svakalega vel og var afmælið haldið á "barnaskemmtistað" og það kom meira að segja töframaður.  Þegar kom að kökunni vildu stelpurnar ekki köku og hann litli sjarmör sat einn með afmælisbarninu og borðaði köku henni til samlætis, hann sem borðar ekki einu sinni kökur haha...  Hann var sem sagt eini strákurinn í afmælinu og tók ekki einu sinni eftir því og amma stelpunnar sagði okkur að hún talaði ekki um neitt annað en Aron Elí vin sinn í skólanum.
Við erum svo farin að geta farið á ströndina að sóla okkur og erum alltaf að færast nær og nær sjónum.
Það er svo að styttast í að við klárum skólann en við erum ekkert komin í sumarfrí eins og þeir sem eru í skóla á Íslandi, enda byrja annirnar miklu seinna hér eða í lok september og um miðjan febrúar.  Ég á 4 vikur eftir af mínum skóla, Raggi er alveg að fara að detta í próf og Aron Elí á að ég held eftir e-ð um 5 vikur.  Svo erum bara 6 vikur í fyrstu gestina.
Mig langaði svo að setja inn myndir með þessu en herra tölvukall er ekki heima til að redda vandræðunum sem ég er í.
Sumarið er tíminn...
Við segjum bara allt gott og fannst vera komin tími til að láta heyra aðeins í okkur.
Lífið hér gengur sinn vanagang.  Við höfum ekki orðið mikið vör við stress útaf þessari svínaflensu þrátt fyrir að hún hafi greinst hér í borginni.  Enn sem komið er er þetta fólk sem er nýkomið frá Mexico.  Hins vegar er mikið talað um kreppuna þessa dagana sem er að ríða yfir Spán og það liggur við að maður nenni ekki að kveikja á fréttatengdu efni.
Við fórum á ströndina í gær og það var æðislegt.  Það er orðið alveg nógu hlýtt til að sóla sig á ströndinni en maður er nú ekkert að henda sér í sjóinn samt.
Tókum myndavélina ekki með í þetta skiptið en hér er ein sem ljósmyndari tók og nær ströndinni okkar nokkuð vel.
Ströndin
Fengið af: http://www.flickr.com/photos/scooterjohn/  Honum er vonandi sama.
Það er alltaf jafn gaman hjá Aroni Elí í skólanum og þau eru alltaf að gera eitthvað skemmtilegt, t.d. í þessari viku fer hann í dýragarðinn svo er hann auðvitað mjög hamingjusamur með að fá sólarvörn á sig á morgnanna og fara í stuttermabol og stundum jafnvel í stuttbuxur líka.  Í dag er mæðradagurinn og í skólanum föndraði hann rosalega fínt box handa mömmu sinni og var mjög grobbinn með það og mamman auðvitað rosalega ánægð :)
Hér er heimasíða skólans ef þið hafið áhuga.
Honum fer mikið fram þessa daganna, bara í ÖLLU!  Hann hefur þroskast mikið og er orðinn okkur miklu auðveldari.  Hann er t.d. farinn að sofa alla nóttina, jebb það teljast fréttir á þessu heimili.  Sumum finnst það kannski ekki frétt að 5 ára gamalt barn sé ekki á einhverju næturbrölti en þannig hefur það bara alltaf verið á þessu heimili, því miður.  Hann hætti reyndar að koma uppí eftir jól þar sem það svaf enginn þannig, en fór þá að kalla á okkur á nóttunni, sem endaði oftast með því að móðirin sofnaði til fóta hjá honum.  Svo vorum við alltaf að ræða þetta fram og til baka að mamma geti ekki vakað svona á nóttunni og við sömdum um að hann megi kalla ef það er VIRKILEGA eitthvað að og þá bara einu sinni.  Svo bara gerðist það að hann hætti að kalla og núna sefur hann næstum hverja nótt án þess að kalla og seinustu 2 vikur hafa verið þvílíkur LÚXUS!
Þið vitið það nú e.t.v. flest en ég (Olla) er kominn inn í háskólann hér í Valencia í drauma mastersnámið mitt.  Námið er tvö ár og er kennt í lotum sem þýðir að það er engin sérstök prófatíð þar sem kennararnir koma margir hverjir úr háskólum um alla Evrópu og ég hlakka mikið til að byrja.  Það er talað um að það sé pláss fyrir 30 manns á hverju ári og er ég ein af 11 sem eru komir inn í fyrstu innritun og nú þarf maður bara að standa sig!
Hér er hægt að lesa meira um námið ef þið hafið áhuga á því.  Stendur reyndar að 40 sé hleypt inn en það hefur reyndar ekki verið raunin.
Fleiri fréttir á ég held ég bara ekki til.
Nokkrar góðar af Aroni Elí:
Að koma sér í skólafötin:
"Vá mamma getur þú hætt að tala! Ég er að reyna að einbeita mér að því að GIRÐA MIG HÉRNA!"
Að óska Hlyni Orra til hamingju með afmælið:
"Til hamingju með afmælið!  Eigum við núna að segja fyrirgefðu að við vorum alltaf að berjast svona???  Þú segir fyrst fyrirgefðu við mig og svo segi ég fyrirgefðu við þig, okey?"
Í baði eftir að móðir hans hafði sagt honum hvaða hlutverk þessar tvær kúlur sem strákar eiga hafa þegar þeir verða fullorðnir, gólaði hann í átt að þeim:
"Halló!!!  Við viljum eina stelpu HÉR!"
Svo var litli landkönnuðurinn að skoða heimskortið:
"Mamma???  Í hvaða landi eigum við að búa næst?  Meina sko ekki Íslandi.  Ég kann núna spænsku og ætla næst að læra ENSKU!  Hvert eigum við þá að fara?"
Hér er svo hægt að fylgjast með veðurspánni ef þið hafið áhuga.
Bless í bili :*
Nýjar myndir
Við vorum að setja inn myndir :)
Í gær fórum við að sjá Valencia-Sevilla spila á Mestalla.  Við skemmtum okkur konunglega og tókum fullt af myndum.  Aron Elí var smá tíma að átta sig og hann og móðirin voru mest allann fyrri hálfleik að komast yfir lofthræðsluna þar sem við sátum lengst uppi og úff þetta er bratt!!!  Leikurinn fór 3-1 og þetta eigum við pottþétt eftir að gera aftur.  Æðislegt að labba svona yfir götuna og sjá leik og Aron Elí var sofnaður í sínu rúmi 15 mín eftir leikslok, ég er ekki að ýkja!!!
Nú er þessu endalausa páskafríi senn að ljúka.  Það er frídagur í dag hér á Spáni eða allavegana hér í héraðinu.  Ekki samt misskilja þið vinnandi fólk, þetta er bara skólafrí fyrir þau börn sem fara eftir skóladagatalinu og nema.  Þau börn sem eiga vinnandi foreldra fylgja öðru dagatali.
Aron Elí er búinn að vera duglegur að halda spænskunni við í fríinu þar sem hann er farinn að leika sér að mestu á spænsku og það er unun að hlusta á hann og fylgjast með hlutverkaleiknum sem hann er í.