Guten tag!
Við segjum bara allt það fína hér á Belgíugötunni.
Hvort sem það eru gróðurhúsaáhrifin eða eitthvað annað þá er nóvember búinn að vera alveg rosalegur! Það er um 25 gráðu hiti alla daga. Alveg merkilegt því á sama tíma í fyrra rigndi og rigndi.
Við erum öll rosalega upptekin og eitthvað hefur fréttasíðan fengið að finna fyrir því. En á meðan líður tíminn hratt og ekki kvartar maður þegar maður er að gera það sem mann langaði til, við erum svo heppin með það :)
Það er nú samt helst í fréttum að:
Feðgarnir koma heim 17. des
Móðirin þann 21. des
og verðum við á hótel tengdó.
Fram að 8 jan.
Aron Elí er svo búinn að missa sína fyrstu tönn og þroskaðist heilan helling við það. Tannmúsin laumaði litlum skopparaboltum undir koddan í stað tannarinnar. Herra þakklátur átti varla til orð yfir gjafmildi músarinnar þar sem boltarnir voru 5! og reyndi að deila þeim á milli okkar hér og er í stökustu vandræðum með 2 stk ennþá :)
Hann stendur sig vel í skólanum og er farinn að lesa á fullu og hefur gaman að.
Litla barnið okkar er semsagt búið að missa tönn og farinn að koma heim með heimavinnu á hverjum degi!
Lífið okkar hefur nú samt aldeilis breyst með nýjustu skólagöngu mömmunnar!
En við erum að aðlagast eins og við höfum þurft að gera svo oft áður ;)
Skólinn minn er nefnilega frá 16-21 mánudaga til fimmtudaga og 2-3ja hvern föstudag er próf á sama tíma.
Þessar vikur hafa samt liðið alveg svakalega hratt og ég er mjög ánægð í skólanum.
Ragginn er svo alveg að fara að detta í próf og þeir feðgar telja niður í ferðalagið sitt. Aroni Elí var boðið að vera einn af vitringunum þremur á jólaskemmtun skólans en þurfti að afþakka það vegna Íslandsferðarinnar og sýndi þvílíkann þorska og skilning.
Þetta foreldrahlutverk verður alltaf skemmtilegra og skemmtilegra.
Um daginn vakti hann okkur með orðinum: "Ég er að drepast í hálsinum og svo er ég líka heitur!" Mikið fannst foreldrunum vænt um þessa tilkynningu þar sem ekki fór ómældur tími í ágiskanir og mat á krankleikanum.
Hann átti svo þessa gullnu setningu um daginn: "Mamma ef þið pabbi viljið búa til barn, þá kemur þú með eggið. En pabbi verður að gá í tölvuna hvað hann á að gera!"
Orðheppna barnið borðaði svo kjúkling í barbí-sósu með hamborgarabaunum á kínastað í einu hádeginu :)
Við eigum svo íslenska vini hér sem koma stundum að horfa á fótbolta. Aron Elí spurði svo eftir nokkur skipti hvers vegna það kæmu alltaf bara tveir og tveir í einu en aldrei allir 3. Við urðum frekar undrandi og sögðum honum að Maggi og Þröstur væru bara tveir. Þá heyrist í honum "Nei nei það er einn með gleraugu og tveir ekki!"
Í seinustu viku á leið í klippingu bað hann um að verða ekki klipptur eins og BUBBI, foreldrarnir urðu tvö stór spurningamerki í framan og spurðu hvað Bubba hann væri að tala um og svarið var : "Æj þarna Bubbi Morthens!"
Litli Rómeo snéri sér að kennurunum sínum einn daginn þegar ég sótti hann og sagði: "Sjáið hvað mamma mín er sæt í dag!"
Um daginn steig ég svo berfætt á kakkalakka í svefnherberginu okkar Ragga og trylltist (en ekki hvað) og þá kom hann hlaupandi og sagði: "Nei nei þetta er allt í lagi, hann var dauður. Ég ýtti í hann í GÆR og hann hreyfði sig ekki." Mér leið ekkert betur að vita að ég hefði sofið með kvikindið við hlið mér alla nóttina.
Hann ákvað svo einn daginn að taka málin í sínar hendur eftir að það var ekki boðið uppá "smakk" í matvörubúðinni og situr og gæðir sér á spænskri-pylsu með tannstönglum!
Það sem dettur uppúr honum er reyndar ekkert alltaf voðalega fallegt. Á föstudaginn var hann reiður við mig því hann átti að fara í bólið og var alveg búinn á því og tilkynnti mér að ég væri LJÓT! Ég sagði honum bara pollróleg að fara að sofa og hugsa aðeins um það sem hann hefði sagt. Eftir smá stund kallaði litli Stubbur og baðs afsökunnar en sagði svo sér til málsbóta að ég væri nú ekkert falleg svona rétt á meðan ég litaði á mér augabrúnirnar!
Við biðjum að heilsa í bili og við hlökkum mikið til að koma heim og knúsa alla!
sunnudagur, nóvember 22 2009
24 gráður í Nóvember!
posted @ 14:56 in [ Bloggið ]
22.11.2009 kl 15:09
hahaha
24 gráður í Nóvember!Ég verð að vera sammála honum með aufabrúninrar. verð alltaf hálf hræddur við konur sem eru nýbúnar að mála þær!
Tel niður daganna þar til þið komið heim.
Kossar og knús frá okkur Söndru (og Plútó)
22.11.2009 kl 15:46
Gaman að heyra að þið hafið það gott. Vá hvað tíminn er samt fljótur að líða.... finnst einhvernveginn ekki eins og það sé að verða komið ár síðan við vorum að sleikja sólina á Tenerife:/ en hlakka til að fá ykkur á klakan!!:D
24 gráður í Nóvember!22.11.2009 kl 17:39
He he litli snilligurinn er að verða voða stór.vildi að við gætum komið á milli jóla og þess nýja til að knúsa ykkur :o
24 gráður í Nóvember!25.11.2009 kl 09:36
Þaðverður að fara snjóa hérna heima fyrir aron elí ;o
24 gráður í Nóvember!1.12.2009 kl 13:03
Þetta barn er algjör snillingur!
24 gráður í Nóvember!Kveðja úr snjónum, Ína.
10.12.2009 kl 15:37
Hehehe hann er algjör snillingur. En vá 24°á að ræða það eitthvað, ef ykkur vantar snjó endilega kíktu bara á facebook myndirnar úr Ólafsvík hehehe. Gaman að lesa um hvað ykkur gengur vel úti. hafið það sem allra best um jólin.
24 gráður í Nóvember!12.4.2010 kl 14:05
Jæja... er ekki eitthvað að frétta af Belgíugötunni?
24 gráður í Nóvember!Ekkert að frétta hjá okkur, jú það nýjasta geturðu nálgast hér,
http://www.borgarleikhus.is...
Kveðja úr 101 Reykjavík