Halló
Nú er haustið að koma hér hjá okkur. Það er samt ennþá mjög hlýtt og skiptinemarnir eru enn á ströndinni, við erum hinsvegar orðin svo spænsk að okkur finnst ekki nógu heitt til þess.
Ég fór á Októberfest til Munich í 5 daga um seinustu helgi. Það var alveg hrikalega gaman en svolítið strembið ferðalag en ég er ennþá svo ung að ég ætla ekkert að væla yfir því. Ég þurfti sem sagt að taka rútuna hér í Valencia kl. 00:30 til Alicante og átti svo flug um 7 og var komin til Munich um 9 eða það hélt ég hehe... En flugvöllurinn var langt fyrir utan Munich en sem betur fer kom Gunnhildur að sækja mig svo að þetta var bara gaman.
Í Munich hafði ég það bara notalegt og við Gunnhildur drukkum bjór og skemmtum okkur vel. Hátíðarsvæðið var miklu miklu stærra en mig grunaði og fólkið miklu miklu fyllra en ég bjóst við ;) Ólíkt því sem Spánverjarnir gera þ.e. að fara út á miðnætti þá var fólk að koma sér heim á miðnætti, sem hentar mér betur. Munich er rosalega falleg borg og allt svo rólegt þar og einhvern veginn svo "öruggt" eitthvað því maður upplifir það aldrei að maður sé staddur í risa stórri borg.
Heimferðin gekk líka bara vel en það var samt sem áður ólíkt þægilegra að ferðast svona að degi til. Ég held ég verði bara fastagestur þarna í Munich á þessum tíma um ókomin ár ;)
Aron Elí er voðalega ánægður að vera byrjaður aftur í skólanum og finnst rosalega flott að vera á elsta ári og nú er hann strax farinn að lesa helling og reikna mínusdæmi. Honum finnst stærðfræðin og enskan skemmtilegust. Þar að auki hefur honum farið svo mikið fram að kennarinn hans átti ekki til orð þegar hann kom til baka. Nú getur hann tjáð allar sínar hugsanir og langanir og hann segir henni víst ALLT það sem um er að vera hjá okkur hér á Belgíugötunni. Reyndar hefur hann kvartað svolítið yfir því undanfarið að hann sé alltaf einn að leika hér heima og langi í vin sem kemur heim með honum, mamman fær auðvitað sting í hjartað en...... hann er að græða svo margt annað á að vera hér. Hann segir að hann segi stundum "Rétt upp hönd sem vill koma heim með mér eftir skóla" og fullt af krökkum rétti upp hönd en svo komi bara enginn. Aumingja litli kallinn :( Við þurfum eitthvað að reyna að bæta úr þessu og finna okkur einhverja svona fjölskyldu á svipuðu reki og við en..... Það er erfitt því enginn hér á okkar aldri á 5 ára gamalt barn, stundum líður okkur eins og geimverum hehe...
Meðan ég var í "menningar-reisu" til Þýskalands fóru feðgarnir í sveitina til Afa, lang-afa og Paco og fjölskyldu og skemmtu sér mjög vel. Aroni Elí fannst æðislegt að geta talað við langa-afa sinn og alla hina og naut sín í botn.
Spænskuskólinn minn gengur bara vel og ég er ánægðari með þennann skóla en hinn sem ég var í og ég á ennþá eftir 5 daga í honum og svo ætla ég að sjá til hvað ég tek mikið með skólanum....
Já því námið mitt byrjar á þriðjudaginn (vó ég ældi næstum úr stressi að skrifa þetta). Ég hlakka samt mikið til og er að reyna að hafa jafn mikla trú á sjálfri mér og allir hinir virðast hafa. En ég er búin að fara á fund með stjórnanda námsins og flestum nemendunm og líst bara vel á og eftir fundin fór ég með nokkrum krökkum í bjór og var rosalega ánægð með andan í hópnum.
Þessi helgi er löng því á morgun er dagur Valencia og á mánudaginn er dagur Spánar held ég og ætlum við því að hafa það extra notalegt og kíkja á flugelda og skrúðgöngur og slíkt enda er hér æðislegt veður eða um 30 gráður eftir annast mjög votar 2 vikur.
Biðjum að heilsa heim í slydduna!!!
fimmtudagur, október 08 2009
Nú er haustið alveg að byrja ;)
posted @ 14:48 in [ Bloggið ]
8.10.2009 kl 18:11
Stormviðvörun hér á klakanum.. Aron Elí er svo mikill höfðingi haha, bara búinn að bjóða öllum bekknum heim með sér. Svona á að gera þetta ;)
Nú er haustið alveg að byrja ;)12.10.2009 kl 19:58
Já aumingja litli kallinn - ég er samt viss um að það á eftir að rætast úr þessu...
Nú er haustið alveg að byrja ;)Gangi þér vel í náminu.
23.10.2009 kl 21:23
HÆ Olla, gott að sjá hve góða vini þú/ið
Nú er haustið alveg að byrja ;)eigið. hlakka til að sjá ykkur í myrkrinu, kuldanum og kreppunni (ö-(
besta kveðja, afi geimvera.
31.10.2009 kl 21:16
ich bin ein man von germany vo kan night
Nú er haustið alveg að byrja ;)drink kleine beer so helpe me 112!