Sæl verið þið öll.
Jæja nú sitjum við kútur hér í sófanum og erum búin að sofa alein fyrstu nóttina hér án gesta síðan annan júlí. Svolítið tómlegt en notalegt engu að síður. Nú vantar okkur bara heimilisföðurinn svo lífið geti nú farið að fara í fastar skorður aftur. Raggi kemur hins vegar ekki heim fyrr en aðfaranótt föstudagsins en þessir dagar verða fljótir að líða. Aron Elí á að byrja í skólanum á morgun en það er ekki útlit fyrir að hann verði orðinn nógu hress til þess að mæta. Hann er nefnilega búinn að vera með hita í nokkra daga en svo núna fyrst er hor og hósti að koma.
En mikið rosalega leið þetta sumar hratt og mér finnst eins og það hafi veri í seinustu viku sem við vorum að græja gestaherbergið enda vað voðalega skrítið að sjá svefnsófann samansettann í gær. Við eigum örugglega aldrei eftir að gleyma þessu sumri.
Við erum orðin voðalega spennt fyrir þessum vetri, Aron Elí er að fara í bekk sem heitir Leones eða Ljónin og er hann svolítið spenntur fyrir því að læra að lesa. Við erum aðeins byrjuð að lesa á íslensku en hann gefst fljótt upp, en ég hef tekið eftir því að hann getur lesið alveg helling, bara ekki svona eftir pöntunum ;) Í sumar hefur hann aðeins verið að bæta við stærðfræðikunnáttuna og er farin að reikna stærri dæmi, lærði allt í einu muninn á hægri og vinstri og hann er alltaf að læra meir og meir á klukkuna. Það verður því gaman fyrir hann að koma aftur í skólann og hitta krakkana og kennarann sinn og halda hugarleikfiminni áfram.
Raggi ætlar svo í vetur að vera í fjarnámi frá HR. Planið var aðvitað að hann myndi skipta yfir í tækniháskólann hér í haust en þegar upp var staðið þá fann hann sig aldrei í skólanum hér úti og hætti því við að reyna að skipta. Það hefði líka þýtt glataðar einingar og fleira. Hann er því mjög kátur með að vera áfram í HR þar sem hann þekkir inná allt og skipulagið er 100% og þú veist til hvers er ætlast af þér. Raggi verður því heimavinnandi húsfaðir í námi sem þýðir ennþá meiri samvera fyrir okkur litlu fjölskylduna.
Ég aftur á móti byrja ekki í skólanum fyrr en 13 október og hlakka mikið til en kvíðahnúturinn stækkar líka um leið.... Ég er reyndar að byrja aftur á spænskunni eftir að hafa varla litið í bók í sumar og svo er ég að byrja að undirbúa mig svolítið fyrir skólann. Í fyrstu lotu er t.d. kennd saga fólksflutinga á 19-21 aldar og með hjálp internetsins er hægt að troða á sig einhverjum fróðleik svo maður geti nú giskað í eyðurnar þegar maður skilur ekki fyrirlesarann.
Þó svo að ég sé versti gestgjafi í heimi þá ætla ég að skella mér í smá húsmæðraorlof eftir átök sumarsins, ég er búin að bóka flug á októberfest 1-6. Október til Munich og ætla að heimsækja hana Gunnhildi mína í leiðinni. Ég hlakka svo til! Ég hef aldrei komið til Munich og hvað þá á Októberfest, í október get ég því strikað það út af "Það sem ég ætla að gera áður en ég dey" listanum ;)
Það eru svo allir að spyrja að því hvort við komum ekki alveg örugglega heim um jólin. Auvðitað gerum við það!
2/3 af Herreros-fjölskyldunni segja: "Yfir og út"
sunnudagur, september 06 2009
Sumarfríið endalausa senn á enda
posted @ 09:35 in [ Bloggið ]
7.9.2009 kl 12:46
Takk fyrir okkur
Sumarfríið endalausa senn á endaÉg er nú alls ekkert sammála því að þú sért versti gestgafi í heimi ;) Við Sandra notum þess alla veganna í botn að fá að vera hjá ykkur mæðgininum :)
kv. Ívar Örn
12.9.2009 kl 10:56
Lesið. Er ekki svo bara farið að telja niður í dagana sem þið komið til Íslands ? lalalala
Sumarfríið endalausa senn á enda23.9.2009 kl 17:07
Ég er alveg hætt að vera spennt fyrir þessari októberfest sko! Ég er búin að ákveða að halda mína eigin október fest hérna á Sigló. Dressa mig upp í tíróla kjólinn minn, grafa upp weisbier glasið (læt það duga þar sem bjórinn fæst ekki í bænum) og þræði síðan pöbbana..... get varla beðið!
Sumarfríið endalausa senn á enda29.9.2009 kl 11:17
Vei á loksins að kíkja heim á klakann :) Eru þið búin að ákveða hvað þetta verður langt stopp? Er ekki kjörið að hafa jólamatarklúbb??? :)
Sumarfríið endalausa senn á enda1.10.2009 kl 21:32
Hei, brúnu! Það er löngu komið haust og alls ekki í tísku að vera sólbrúnn!! ...Ein öfundsjúk! Hafið það gott :o)
Sumarfríið endalausa senn á enda