Við segjum halló
Við segjum allt fínt bara, en þið?
Við kvöddum Önnu, Dóra, Ástu og Bjarka á fimmtudaginn og eftir smá stund koma tengdó (þessa stundina eru þau í rúta á leið hingað til Valencia)
Við eyddum tveimur vikum hér í Valencia með fjölskyldunni. Bjarki greyið veiktist strax í byrjun og endaði á að eyða einni nótt á spítala með foreldrum sínum með vökva í æð og missti því af fyrstu dögunum hér. Aron Elí og Ásta fengu reyndar líka hita í einn og hálfan dag stuttu seinna en voru merkilega hress.
Við fórum með þau um alla borg og sýndum þeim miðbæinn, nýju flottu byggingarnar, garðinn okkar, rósagarðinn, tívolí og margt margt fleira. Auk þess fóru þau líka fjögur í dýragarð.
Við fórum svo öll saman með rútu til Cabo-Riog sem er á Torrivieja svæðinu. Þar eyddum við viku í sólbaði, bjórþamb og súkkulaðiát og höfðum gaman að.
Við tókum svo rútu til Alicante og þaðan tókum við lest heim á fimmtudaginn og eigum pottþétt eftir að ferðast meira með lest enda frábær ferðamáti að fara inní landið og sjá það sem ekki sést frá hraðbrautunum.
Við getum ekki gert uppá milli hver er spenntastur að hitta "gamla"-settið sem er á leiðinni, en hlökkum mikið til að gefa afanum 50 ára afmælisgjöfina sem Aron Elí segir að sé "Indiana Jones veiðihattur".
Við Raggi viljum hins vegar meina að þetta sé veiðihattur af bestugerð úr 100% ull með goritexi og læti, svo kallinn ætti að vera flottastur í næstu veiðiferð með vinunum :)
Við höfum heyrt að allir ætli að elta tengdó á tónleikana sem þau eru að fara á á Benidorm og eyða með þeim 3 dögum þar og erum við sátt með það svo ekki sé meira sagt. Reyndar tók Aron Elí ekkert alltof vel í hugmyndina en sagði svo: "Ég skal segja já við þessu ef ég má gera það sem ég vil þangað til!" Spurning um hvort að hann sé ekki bara farin að lifa of góðu lífi barnið ;)
Við erum nú í vandræðum að byrja fleiri málsgreinar á "VIÐ" en Raggi á í einhverjum tæknilegum vandræðum með myndirnar, þið vitið hvernig þetta er, flísarinn nennir ekki að fúa milli flísanna heima, smiðurinn klárar ekki að setja upp parketlistana í stofunni sinni og vaskurinn í bílskúrnum heima hjá píparanum er stíflaður í mánuði í senn.
Við segjum því bara bless bless!
laugardagur, júlí 25 2009
Fyrsta holl komið og farið og næsta í rútu á leið hingað
posted @ 14:06 in [ Bloggið ]
26.7.2009 kl 15:43
Benedorm segiru, það var ekkert verið að minnast neitt á að ég sé að koma 8-) ;)
Fyrsta holl komið og farið og næsta í rútu á leið hingaðVerður geðveikt að koma til ykkar í fyrsta sinn á fimmtudaginn :D skila kveðju á settið
26.7.2009 kl 16:14
haha já ég vissi ekki hvaða dag þú kæmir svo ég ætlaði að finna það út og svo gleymdi ég bara að koma því inní. Sorry :*
Fyrsta holl komið og farið og næsta í rútu á leið hingað