Aron Elí stóð sig eins og hetja á lokahátíð skólans og mundi öll sporin og allt og við vorum að rifna úr stolti.
Svo kom hann heim með frábærar einkunnir og vitnisburð sem var fullur af hrósi og aftur vorum við að rifna.
Mamman stóð sig ágætlega í spænskuprófinu og var mjög fegin að komast í frí, það er nefnilega ekkert grín að sitja í skólastofu í 30 gráðu hita.
Sumarfríið Arons Elís byrjaði svo á hádegi á föstudeginum 19,6 og hafa mæginin verið að dúlla sér saman síðan þá.
Gunnhildur kom svo til okkar og var í nokkra daga, við gerðum ekkert annað en að hanga á ströndinni og drekka bjór. Einmitt það sem hún vildi.
Við fórum svo á Jónsmessunótt á ströndina og það var sko upplifun. Fólk sat allstaðar í sandinum með varðelda og svo voru tónleikar líka.
Raggi klárar prófin á morgun eftir lengstu prófatörn sem ég hef heyrt um.
Anna, Dóri, Ásta og Bjarki koma til okkar eitthvað um miðnætti á morgun. Við ætlum að sýna þeim borgina, ströndina og svo förum við öll saman í sumarhús í viku. Hér er svo mikil spenna að ég veit þið trúið því ekki.
Sumarið okkar byrjar sem sagt af alvöru á morgun þegar við fáum Ragga uppúr skólabókunum og þá förum við örugglega að segja fullt af sögum.
miðvikudagur, júlí 01 2009
Í fréttum er þetta helst:
posted @ 19:10 in [ Bloggið ]
1.7.2009 kl 21:22
Glæsilegt. Það er líka ótrúlega gott veður hérna á Íslandi ;)
Í fréttum er þetta helst:2.7.2009 kl 00:06
Frábært hjá litla krúttinu.
Í fréttum er þetta helst:Góða skemmtun með gestunum :)
2.7.2009 kl 13:58
Glæsilegt hvað Aron er að brillera :)
Í fréttum er þetta helst:7.7.2009 kl 17:00
Ætli þið séuð ekki öll á ströndinni núna að sleikja sólina. Góða skemmtun í sumarfríinu :)
Í fréttum er þetta helst:14.7.2009 kl 13:27
TIl lukku með drenginn og njótið sólarinnar og gestanna í fríinu :)
Í fréttum er þetta helst:15.7.2009 kl 21:43
Hæ, alltaf gaman að sjá lesa sögurnar ykkar. Frábærar myndir eins og venjulega. Það fer Stubb rosa vel að vera "sköllóttur". Kveðja úr Þorlákshöfn.
Í fréttum er þetta helst: