laugardagur, júlí 25 2009


Fyrsta holl komið og farið og næsta í rútu á leið hingað
skrifað @ 14:06 í [ Bloggið ]

Við segjum halló

Við segjum allt fínt bara, en þið?

Við kvöddum Önnu, Dóra, Ástu og Bjarka á fimmtudaginn og eftir smá stund koma tengdó (þessa stundina eru þau í rúta á leið hingað til Valencia)

Við eyddum tveimur vikum hér í Valencia með fjölskyldunni. Bjarki greyið veiktist strax í byrjun og endaði á að eyða einni nótt á spítala með foreldrum sínum með vökva í æð og missti því af fyrstu dögunum hér. Aron Elí og Ásta fengu reyndar líka hita í einn og hálfan dag stuttu seinna en voru merkilega hress.

Við fórum með þau um alla borg og sýndum þeim miðbæinn, nýju flottu byggingarnar, garðinn okkar, rósagarðinn, tívolí og margt margt fleira. Auk þess fóru þau líka fjögur í dýragarð.

Við fórum svo öll saman með rútu til Cabo-Riog sem er á Torrivieja svæðinu. Þar eyddum við viku í sólbaði, bjórþamb og súkkulaðiát og höfðum gaman að.

Við tókum svo rútu til Alicante og þaðan tókum við lest heim á fimmtudaginn og eigum pottþétt eftir að ferðast meira með lest enda frábær ferðamáti að fara inní landið og sjá það sem ekki sést frá hraðbrautunum.

Við getum ekki gert uppá milli hver er spenntastur að hitta "gamla"-settið sem er á leiðinni, en hlökkum mikið til að gefa afanum 50 ára afmælisgjöfina sem Aron Elí segir að sé "Indiana Jones veiðihattur".

Við Raggi viljum hins vegar meina að þetta sé veiðihattur af bestugerð úr 100% ull með goritexi og læti, svo kallinn ætti að vera flottastur í næstu veiðiferð með vinunum :)

Við höfum heyrt að allir ætli að elta tengdó á tónleikana sem þau eru að fara á á Benidorm og eyða með þeim 3 dögum þar og erum við sátt með það svo ekki sé meira sagt. Reyndar tók Aron Elí ekkert alltof vel í hugmyndina en sagði svo: "Ég skal segja já við þessu ef ég má gera það sem ég vil þangað til!" Spurning um hvort að hann sé ekki bara farin að lifa of góðu lífi barnið ;)

Við erum nú í vandræðum að byrja fleiri málsgreinar á "VIÐ" en Raggi á í einhverjum tæknilegum vandræðum með myndirnar, þið vitið hvernig þetta er, flísarinn nennir ekki að fúa milli flísanna heima, smiðurinn klárar ekki að setja upp parketlistana í stofunni sinni og vaskurinn í bílskúrnum heima hjá píparanum er stíflaður í mánuði í senn.

Við segjum því bara bless bless!



miðvikudagur, júlí 01 2009


Í fréttum er þetta helst:
skrifað @ 19:10 í [ Bloggið ]

Aron Elí stóð sig eins og hetja á lokahátíð skólans og mundi öll sporin og allt og við vorum að rifna úr stolti.

Svo kom hann heim með frábærar einkunnir og vitnisburð sem var fullur af hrósi og aftur vorum við að rifna.

Mamman stóð sig ágætlega í spænskuprófinu og var mjög fegin að komast í frí, það er nefnilega ekkert grín að sitja í skólastofu í 30 gráðu hita.

Sumarfríið Arons Elís byrjaði svo á hádegi á föstudeginum 19,6 og hafa mæginin verið að dúlla sér saman síðan þá.

Gunnhildur kom svo til okkar og var í nokkra daga, við gerðum ekkert annað en að hanga á ströndinni og drekka bjór. Einmitt það sem hún vildi.

Við fórum svo á Jónsmessunótt á ströndina og það var sko upplifun. Fólk sat allstaðar í sandinum með varðelda og svo voru tónleikar líka.

Raggi klárar prófin á morgun eftir lengstu prófatörn sem ég hef heyrt um.

Anna, Dóri, Ásta og Bjarki koma til okkar eitthvað um miðnætti á morgun. Við ætlum að sýna þeim borgina, ströndina og svo förum við öll saman í sumarhús í viku. Hér er svo mikil spenna að ég veit þið trúið því ekki.

Sumarið okkar byrjar sem sagt af alvöru á morgun þegar við fáum Ragga uppúr skólabókunum og þá förum við örugglega að segja fullt af sögum.