Hola todos!
Héðan er allt gott að frétta. Ragginn er í prófum með tilheyrandi skeggvexti og táfýlu ;) Ég er svo alveg að fara í próf og á sjálfan þjóðhátíðardaginn og svo frí! Gunnhildur uppeldissystir mín af Suðurgötunni kemur svo 19/6 og ætlar að eyða með okkur helginni, mikið stuð og mikið gaman.
Annars segjum við mest lítið. Við erum að fara á föstudaginn á lokahátíð í skólanum hjá Aroni Elí og eru þau búin að æfa mikið fyrir hana og hann hlakkar mikið til að sýna okkur, en þetta verður haldið í leikhúsi. Ég hef nú samt meiri áhyggjur af því að hann verðu fyrir sálrænum skaða af því að þurfa að vera í búningnum sem ég var látin kaupa á hann. Hann á sem sagt að vera rúmbudansari!
Fréttirnar eru fáar en ég luma á nokkrum sögum:
Mæðginin voru á leið í skólann þegar Aron Elí söng hástöfum og vildi að móðirin tæki undir, hún var nú eitthvað treg til og þá sagði hann: "Æjjj ertu hrædd um að fólk haldi að þú eigir ekki pening fyrir mat og hendi til þín peningum???"
Í vikunni kom hann heim með þær upplýsingar að einn strákur í bekknum hans hefði borðað strokleður og endað á spítala. Eitthvað voru foreldrarnir tregir að trúa því og sögðu honum að fullorðið fólk segði stundum svona en yfirleitt næðu börn ekki að borða nógu mikið af strokleðri svo það gerðist. Barnið var frekar pirrað og þvert og sagði bara JÚ! Kennarinn fór með hann og allt. Svo daginn eftir hittum við mömmu drengsins fyrir utan skólann og Aron Elí spurði hana um bekkjarbróður sinn og hún sagði honum að hann hefði brotið olnbogann sinn og þyrfti því að vera heima. Þá sagði hann við hana: "Já!!! Hann borðaði strokleður og fór á spítalann!!!
Svo minnir hann mig stundum á Ívar afa sinn heitinn. Hann þarf að spjalla við alla sem hann hittir! T.d. í dag fékk öryggisvörður í matvörubúðinni alveg ókeypis fræðslu um muninn á löggum og "bara" öryggisvörðum.
Eitthvað höfðu þau verið í biblíufræðunum í skólanum um daginn þegar hann horfði á okkur, faðmaði og sagði svo: "Ég er Jesú barnið ykkar!"
Svo er hér ein gömul frá því á Tenerife:
Við vorum í hótellyftunni og þá gaus upp þessi svakalega fýla!
Mamman: "Aron Elí! Veistu hvað er stranglega bannað að gera í lyftu???"
Aron Elí: "Jâ það er bannað að fara blautur inní lyftuna og blása reyk"
Mamman: "Hlæjandi nei meinti svona meira að prumpa!
Aron Elí: "Nei það er ekkert svoleiðis merki!"

miðvikudagur, júní 10 2009
Sögustund ala Olla Björk
skrifað @ 16:17 í [ Bloggið ]