fimmtudagur, maí 21 2009



skrifað @ 08:50 í [ Bloggið ]

Halló

Hvað segið þið gott? Maður heyrir frá öllum að gula kvikindið sé mætt á klakann, njótið vel!

Það er nú alveg hellingur að gerast hjá okkur.

Við tókum t.d. leigusalann í bóndabeygju og reyndum að fá hann til að lækka leiguna og breyta leigusamningnum og erum enn að bíða eftir því að konan hans segi af eða á. Þið vitið að konur ráða öllu og Spánn er engin undantekning.

Svo erum við komin með heimasíma, sama númerið en nú er hægt að tala í símann án þess að vera bundinn við tölvuna og svo eru gæðin betri. Aron Elí svarar ef þið hringið og þar sem þetta er HANS sími þá skellir hann á þegar hann hefur lokið málið sínu.

Við fengum svo kall í heimsókn um daginn til að laga flísarnar á baðinu því fúurnar héldu ekki lengur vatni og það lak vatn inní fataskápinn okkar. Mjög spes að allt í einu gaus upp alveg svakaleg reykingalykt og maðurinn stóð í baðinu og setti öskuna í rakt baðið. Þeir eru alveg svakalegir með þessar reykingar sínar hér.

Aroni Elí og okkur var svo boðið í afmæli hjá vinkonu hans úr skólanum um daginn. Hann skemmti sér svakalega vel og var afmælið haldið á "barnaskemmtistað" og það kom meira að segja töframaður. Þegar kom að kökunni vildu stelpurnar ekki köku og hann litli sjarmör sat einn með afmælisbarninu og borðaði köku henni til samlætis, hann sem borðar ekki einu sinni kökur haha... Hann var sem sagt eini strákurinn í afmælinu og tók ekki einu sinni eftir því og amma stelpunnar sagði okkur að hún talaði ekki um neitt annað en Aron Elí vin sinn í skólanum.

Við erum svo farin að geta farið á ströndina að sóla okkur og erum alltaf að færast nær og nær sjónum.

Það er svo að styttast í að við klárum skólann en við erum ekkert komin í sumarfrí eins og þeir sem eru í skóla á Íslandi, enda byrja annirnar miklu seinna hér eða í lok september og um miðjan febrúar. Ég á 4 vikur eftir af mínum skóla, Raggi er alveg að fara að detta í próf og Aron Elí á að ég held eftir e-ð um 5 vikur. Svo erum bara 6 vikur í fyrstu gestina.

Mig langaði svo að setja inn myndir með þessu en herra tölvukall er ekki heima til að redda vandræðunum sem ég er í.



sunnudagur, maí 03 2009


Sumarið er tíminn...
skrifað @ 08:04 í [ Bloggið ]

Heil og sæl!

Við segjum bara allt gott og fannst vera komin tími til að láta heyra aðeins í okkur.

Lífið hér gengur sinn vanagang. Við höfum ekki orðið mikið vör við stress útaf þessari svínaflensu þrátt fyrir að hún hafi greinst hér í borginni. Enn sem komið er er þetta fólk sem er nýkomið frá Mexico. Hins vegar er mikið talað um kreppuna þessa dagana sem er að ríða yfir Spán og það liggur við að maður nenni ekki að kveikja á fréttatengdu efni.

Við fórum á ströndina í gær og það var æðislegt. Það er orðið alveg nógu hlýtt til að sóla sig á ströndinni en maður er nú ekkert að henda sér í sjóinn samt.

Tókum myndavélina ekki með í þetta skiptið en hér er ein sem ljósmyndari tók og nær ströndinni okkar nokkuð vel.
Ströndin
Fengið af: http://www.flickr.com/photos/scooterjohn/ Honum er vonandi sama.

Það er alltaf jafn gaman hjá Aroni Elí í skólanum og þau eru alltaf að gera eitthvað skemmtilegt, t.d. í þessari viku fer hann í dýragarðinn svo er hann auðvitað mjög hamingjusamur með að fá sólarvörn á sig á morgnanna og fara í stuttermabol og stundum jafnvel í stuttbuxur líka. Í dag er mæðradagurinn og í skólanum föndraði hann rosalega fínt box handa mömmu sinni og var mjög grobbinn með það og mamman auðvitað rosalega ánægð :)

Hér er heimasíða skólans ef þið hafið áhuga.

Honum fer mikið fram þessa daganna, bara í ÖLLU! Hann hefur þroskast mikið og er orðinn okkur miklu auðveldari. Hann er t.d. farinn að sofa alla nóttina, jebb það teljast fréttir á þessu heimili. Sumum finnst það kannski ekki frétt að 5 ára gamalt barn sé ekki á einhverju næturbrölti en þannig hefur það bara alltaf verið á þessu heimili, því miður. Hann hætti reyndar að koma uppí eftir jól þar sem það svaf enginn þannig, en fór þá að kalla á okkur á nóttunni, sem endaði oftast með því að móðirin sofnaði til fóta hjá honum. Svo vorum við alltaf að ræða þetta fram og til baka að mamma geti ekki vakað svona á nóttunni og við sömdum um að hann megi kalla ef það er VIRKILEGA eitthvað að og þá bara einu sinni. Svo bara gerðist það að hann hætti að kalla og núna sefur hann næstum hverja nótt án þess að kalla og seinustu 2 vikur hafa verið þvílíkur LÚXUS!

Þið vitið það nú e.t.v. flest en ég (Olla) er kominn inn í háskólann hér í Valencia í drauma mastersnámið mitt. Námið er tvö ár og er kennt í lotum sem þýðir að það er engin sérstök prófatíð þar sem kennararnir koma margir hverjir úr háskólum um alla Evrópu og ég hlakka mikið til að byrja. Það er talað um að það sé pláss fyrir 30 manns á hverju ári og er ég ein af 11 sem eru komir inn í fyrstu innritun og nú þarf maður bara að standa sig!

Hér er hægt að lesa meira um námið ef þið hafið áhuga á því. Stendur reyndar að 40 sé hleypt inn en það hefur reyndar ekki verið raunin.

Fleiri fréttir á ég held ég bara ekki til.

Nokkrar góðar af Aroni Elí:

Að koma sér í skólafötin:
"Vá mamma getur þú hætt að tala! Ég er að reyna að einbeita mér að því að GIRÐA MIG HÉRNA!"

Að óska Hlyni Orra til hamingju með afmælið:
"Til hamingju með afmælið! Eigum við núna að segja fyrirgefðu að við vorum alltaf að berjast svona??? Þú segir fyrst fyrirgefðu við mig og svo segi ég fyrirgefðu við þig, okey?"

Í baði eftir að móðir hans hafði sagt honum hvaða hlutverk þessar tvær kúlur sem strákar eiga hafa þegar þeir verða fullorðnir, gólaði hann í átt að þeim:
"Halló!!! Við viljum eina stelpu HÉR!"

Svo var litli landkönnuðurinn að skoða heimskortið:
"Mamma??? Í hvaða landi eigum við að búa næst? Meina sko ekki Íslandi. Ég kann núna spænsku og ætla næst að læra ENSKU! Hvert eigum við þá að fara?"

Hér er svo hægt að fylgjast með veðurspánni ef þið hafið áhuga.

Bless í bili :*