Hæ hæ
Við vorum að setja inn myndir :)
Í gær fórum við að sjá Valencia-Sevilla spila á Mestalla. Við skemmtum okkur konunglega og tókum fullt af myndum. Aron Elí var smá tíma að átta sig og hann og móðirin voru mest allann fyrri hálfleik að komast yfir lofthræðsluna þar sem við sátum lengst uppi og úff þetta er bratt!!! Leikurinn fór 3-1 og þetta eigum við pottþétt eftir að gera aftur. Æðislegt að labba svona yfir götuna og sjá leik og Aron Elí var sofnaður í sínu rúmi 15 mín eftir leikslok, ég er ekki að ýkja!!!
Nú er þessu endalausa páskafríi senn að ljúka. Það er frídagur í dag hér á Spáni eða allavegana hér í héraðinu. Ekki samt misskilja þið vinnandi fólk, þetta er bara skólafrí fyrir þau börn sem fara eftir skóladagatalinu og nema. Þau börn sem eiga vinnandi foreldra fylgja öðru dagatali.
Aron Elí er búinn að vera duglegur að halda spænskunni við í fríinu þar sem hann er farinn að leika sér að mestu á spænsku og það er unun að hlusta á hann og fylgjast með hlutverkaleiknum sem hann er í.
Knús og kossar heim :*
mánudagur, apríl 20 2009
Nýjar myndir
skrifað @ 09:22 í [ Bloggið ]
fimmtudagur, apríl 16 2009
Hið langa páskafrí og fleira..
skrifað @ 09:02 í [ Bloggið ]
Hola todos!
Allir farnir að rukka okkur um blogg og best að henda inn nokkrum línum.
Eins og þið vitið þá fengum við góða gesti yfir „Las Fallas“-hátíðina og það var æði. Við gerðum margt og mikið og þið getið skoðað myndirnar því til sönnunar. Við fórum t.d. á vísindasafnið, röltum um bæinn, út að borða, horfðum á sprengjurnar og sáum þegar fígúrurnar voru brenndar. Sem sagt mikið gaman og mikið stuð.
Hér eru allir gestirnir með Aroni Elí

Okkar daglega líf gengur vel. Við erum ennþá í páskafríi og Aron Elí byrjar aftur í skólanum á þriðjudaginn og við á miðvikudaginn. Við erum búin að hafa það mjög notalegt í fríinu, mikið sófakúr og bíómyndagláp, góður matur, göngutúrar og svo erum við líka búin að kíkja aðeins niður að strönd að leika. Í kvöld fáum við svo gesti í mat og á sunnudaginn ætlum við að skella okkur á alvöru fótboltaleik! Við erum að fara að sjá Valencia-Sevilla keppa og er mikil spenna í liðinu, þ.e.a.s. okkur, ég veit ekkert hvernig stemningin er hjá leikmönnunum eflaust ekki góð þar sem heyrst hefur að kreppan hafi bitið spænska fótboltan verulega í rassinn og leikmenn Valencialiðsins fái engin laun þessar vikurnar, en vonandi bitnar það ekki á gæðum leiksins.
Aron Elí með Cars páskaeggið sitt

Og hér er hann búinn að ræna öllum jarðarberjunum úr salatinu á páskadag

Aron Elí kom heim með einkunnir fyrir páskafrí og við megum vera mjög stolt af honum. Hann er orðinn altalandi á spænsku og gefur hinum krökkunum ekkert eftir. Eins og alltaf fær hann hrós fyrir lundarfar, hvað hann er óhræddur við nýja hluti, félagslegahæfur og fleira.
Bekkjarmynd

Við fórum svo með hann í 5 ára skoðun eða við héldum auðvitað að það yrði einhver skoðun svo við vissum kannski hve hár hann væri og þungur en nei... hann fékk 2 sprautur og GUÐ MINN GÓÐUR!!! Þetta varð bara að sirkus, það var kakkalakki í biðstofunni, læknirinn (kona) var pirruð og truntuleg við okkur, hjúkkann klúðraði fyrstu sprautunni algjörlega og barnið trylltist. Fyrir seinni sprautuna tók hún hann úr mínu fangi og setti hann hjá Ragga og sú sprauta var nú bara rugl. Hún misheppaðist meira að segja meira en hin. Aron Elí hefur aldrei öskrað jafn hátt og verið svona trylltur. Pabbinn missti coolið algjörlega og mamman var hissa á vinnubrögðunum og skildi ekkert í sjálfri að hafa ekki farið með hann áður en við fluttum til Spánar eða látið gera þetta í næstu heimferð. Ætli hann verði eftir þessa reynslu ekki jafn hrifinn af sprautum og föðurfjölskyldan og það hefði alveg verið hægt að koma í veg fyrir...
Sætastur í búningnum sem hann ætlar í á leikinn

Af mér sjálfri er það að frétta að spænskuskólinn gengur bara mjög vel en þar er sko alveg nóg að gera. Þó ég fari ekki í tíma nema tvo morgna í viku þá eigum við að skila mikið af verkefnum, læra heima og fara í próf. Mér finnst það mjög gott því það heldur mér við efnið. Við vorum svo nokkrar stelpur að setja saman hóp sem ætlar að hittast á kaffihúsum og þessháttar til að æfa okkur. Hlakka mikið til að það fari í gang. Núna eftir páska á ég að fara á fund hjá deildarstjóra mastersnámsins sem mig dreymir um að fara í. Það eru ekki mörg pláss í þessu námi en það er kennt bæði á ensku og spænsku svo það myndi henta mér ennþá betur fyrir utan það þá snýst það um mitt aðaláhugamál sem er málefni innflytjenda, ef þið vissuð það ekki nú þegar ;) Ég fæ líka að vita það í mánuðnum hvort ég komst inn í varavalið svo það er allt að gerast.

Lofum að láta ekki líða svona langt á milli næst!
Kv. Herreros-fjölskyldan á Belgíugötu