sunnudagur, mars 15 2009


Las Fallas
skrifað @ 09:13 í [ Bloggið ]

Sæl öll, eða þið sem eruð ekki týnd í heimi facebook og búin að gleyma okkur!

Við segjum allt það fína frá Kína, djók erum enn í Valencia ;)

Eitthvað hafa pestirnar verið að pirra okkur hér undanfarið, kannski ekki skrýtið eins og öfgarnar eru hér í veðrinu á þessum tíma. Svo þið þurfið ekki að spyrja þá er svar mitt "já maður fær líka flensu á Spáni!!!" Veit ekki hversu oft ég hef svarað þessu undanfarið.

Það er alveg ótrúlegt hvað allt er að vakna hér af dvala og það er eins og spánverjarnir fari í hýði yfir köldustu mánuðina. Nú er reyndar gengin í garð Las Fallas hátíðin og allt hér iðandi af lífi. Við erum t.d. búin að fara á hátíð í skólanum hjá Aroni Elí og var farið í skrúðgöngu og þeira "Falla" brennd. "Föllur" eru styttur eða brúður sem eru brenndar. Æj frekar erfitt að útskýra. Skoðið linkana bara hér í lokin. Hann hefur líka farið klæddur sem "Fallero" í skólann alla daga vikunnar, en sú múndering samastendur af blússu og köflóttum klút.

null

Föllurnar eru hér útum allann bæ og í hverfunum og eru hrikalega flottar, stórar og litríkar.

null

Við erum líka búin að fara á sprengjurnar sem eru hér á hverjum degi klukkan 14.00 á ráðhústorginu. Þessar sprengjur eru bara hávaðasamar og var ég sem aldrei aldrei hef verið hrædd við flugelda eða sprengjur með hjartað í buxunum og fannst ekkert gaman hvernig húsin í kring nötruðu. Feðgarnir héldu þó "coolinu" eins og karlmönnum sæmir.
null

Svo fórum við á sýningu þar sem litlu föllurnar voru til sýnis áður en þær eru settar upp um alla borg skilst mér.

Hér er einhver búinn að vera svo elskulegur að búa til klippu á Youtube fyrir okkur


Nú eru básar útum allt sem selja allskonar góðgæti og Ragginn heldur fast um veskið þegar mæðginin sísvöngu eiga leið um borgina og horfa löngurnar augum á kræsingarnar. Hér hljóma sprengjur alla daga og nætur en raska svo sem ekki ró okkar ennþá en sjáum til í nótt þegar fyrsta flugeldasýningin verður kl 1.30!!! En þær eru svo á þessum tíma út vikuna.

Nú erum við sem sagt í viku löngu fríi og ætlum að njóta þess í botn. Fáum svo góða gesti eftir 2 daga og eftirvæntingin er mikil. Við eigum eftir að fara með þau um alla borg og upplifa hátíðina með þeim og sýna þeim þetta helsta hér sem við komumst yfir á 3 dögum.

Annars gengur lífið sinn vanagang hér. Við sjáum að vísu meira af Ragga en seinustu önn vegna þess að hann er í færri fögum og með betri stundatöflu. Við erum svo búin að pakka saman rafmagnsofnunum bæði vegna þess að það hefur hlýnað en líka vegna þess að rafmagnið hér er fáránlega dýrt. Fyrstu dagana eftir að við hættum að kynda var reyndar hræðilega kalt en nú 2 vikum seinna er ástandið mun betra og hefur hitinn verið að fara yfir 20° yfir daginn undanfarið, ekki hægt að kvarta yfir því. Þetta er eiginlega svo íslenskt veður, maður þarf að vera með hálfan fataskápinn með sér ;) Sumarið er orðið strax þétt setið og fjölskyldur okkar að leggja lokahönd á að bóka og græja, bara gaman!!!

Annars er það af Stubbi að frétta að hann er orðinn rosalega góður í spænskunni og reddar sér alveg. Hann fór t.d. með okkur í gær á írskann pub að horfa á leikinn með tveimur svíum og hann spurði þá spjörunum úr á spænsku og jarðaði þessa háskóladrengi alveg haha... Á þessum sama bar gladdi einn af kjaftforu Liverpool aðdáendunum hann alveg svakalega (okkur ekki eins mikið) með því að gefa honum GJALLARHORN!!! Hann er svo sáttur með gripinn og sat í hásætinu á öxlunum á pabba sínum og gólaði á leið okkar í gegnum bæinn: " Halló allir! Vinsamlegast setjist í sætin ykkar! " Hann sagði þetta á spænsku að sjálfsögðu og vakti mikla kátínu.

null

Hann fær mikið hrós í skólanum fyrir hvað hann er sætur í sér. T.d. fór ég með hann í skólann í vikunni og hann sá um leið að kennarinn hans hafði látið klippa mikið af síða hárinu sínu. Hann gekk til hennar um leið og sagði: "En fallegt hár!" Hún varð nú bara pínu rjóð í kinnunum hahaha....

Í skólanum finnst honum skemmtilegast að reikna og enskukennslan er í miklu uppáhaldi hjá honum og spyr hann óspart þessa dagana: "How are you?" Nennir reyndar ekki að bíða eftir svari frá mér eða vill monta sig og svarar sjálfur: "I am fine!" Hann hefur reyndar mikinn áhuga á tungumálum og spyr mikið um þau og hefur mikinn áhuga á að vita hvað hver og einn talar mörg tungumál.

Um daginn þá segir hann uppúr þurru: Ég sakna ömmu mikið..... og BARNSINS hennar. Ég fór að flissa og sagði: Láttu ekki svona, þú veist alveg að frændi þinn heitir Hlynur Orri. Hann: Já já.... hann er BARNIÐ hennar eins og þú ert BARNIÐ hennar. Ég má alveg segja það ef mig langar.

Svo er einn brandari af honum hér í lokin. Hann var sem sagt búinn að vera mikið kvefaður en ekkert lasinn beint. Svo var ég eitthvað að brasa við borðstofuborðið og færa til og eitthvað og hann spurði: "Hvað ertu að fara að gera?" Ég sagði honum eins og satt var að ég væri að fara að gera einn spænskan stíl. Hann hljóp argandi og gargandi í burtu og vældi "KVEFIÐ ER FARIÐ!" Hann er ekki mikill áhugamaður um stíla hahahaha...

Linkar sem tengjast Las Fallas
Dagskáin og fleira á ensku
Heimasíða hátíðarinnar þar sem hægt er að horfa á videoklippur og fleira
Sprengjurnar eins og þær eru sýndar beint í sjónvarpinu
Hér er svo sýnt frá því þegar ein af "Föllunum" var brennd í fyrra