fimmtudagur, febrúar 26 2009


Eins og dagatal í roki
skrifað @ 14:34 í [ Bloggið ]

Já dagarnir líða eins og dagatal í roki eins og pabbi gamli sagði svo oft.

null

Nú í dag er öskudagur hjá Aroni Elí. Hann er Turtleskallinn Rafael.

null

Annars segjum við allt gott, ég er byrjuð í spænskuskólanum og er í c.a. 10 manna hóp. Kennarinn er mjög almennileg og krakkarnir sem eru öll tuttugu og eitthvað ára mjög fín. Flestir þeirra eru Ítalir sem eiga mjög auðvelt með að bulla sig áfram á spænsku haha... Ég var sett í hóp sem tekur í raun tvö námskeið á einni önn og það skýrir hátt hlutfall Ítala en í hópnum eru líka þjóðverjar, Belgi og svo ég. Það er ekkert verið að fara neitt hægt af stað og við erum látin tala og skrifa á fullu sem er bara mjög gaman. Spænskuskólinn er í raun ætlaður fyrir þá sem eru hér í skiptinámi eða háskólanámi en ég tróð mér inn þar sem ég vissi að þarna yrði fólk á mínu leveli og svipuðum erindagjörðum og fæ því að vera með því ég er að reyna að komast inn í háskólann. Það skemmir heldur ekki fyrir að húsnæði skólans sem er hér rétt hjá er löngu sprungið utan af þeim og leigja þeir því skólastofur sem eru hér á neðri hæðinni hjá okkur, afar hentugt.

Ég er svo búin að sækja um í Háskólanum hér í Valencia í Mastersnám. Umsóknarferlið er byrjað í því sem mig langaði mest í, en það er ekkert tekið við umsóknum strax í plan b. og c. Nú krossum við bara fingur og tær, þeir geta reyndar kallað eftir fleiru eins og viðtali eða ritgerð eða einhverju. Sjáum bara til hvernig það verður.

null

Við erum nú búin að bralla ýmislegt undanfarið. Tókum bílaleigubíl eina helgi og fórum í IKEA og keyptum svefnsófa og græjuðum herbergið endanlega fyrir Aron Elí sem var afmælisgjöfin hans frá okkur og fleirum úr fjölskyldunni. Við fórum í bíltúr og skoðuðum þjóðgarðinn hér og kíktum í strandbæina í kring sem eru alveg steindauðir eins og sést á myndunum. Við héldum svo uppá afmælið hans Stubbs með að fara á risaeðlumynd á svona 180° (held að það heiti það) kúptu risatjaldi og svo fórum við út að borða. Aron Elí fór líka í húsdýragarðinn með skólanum sínum og þar fræddust þau um dýrin og skoðuðu þau öll og bökuðu úr hráefnunum sem móðir jörð leggur okkur til ;) Nú er hann alveg viss um að vorið sé komið því það voru komin tvö lömb. Raggi fór svo á risastóra MTV tónleika í garðinum með einhverjum Svíum og ég hitti stundum íslenska stelpu sem hér býr. Þannig að þið sjáið að hér er sko lif og fjör!

null

Já ég held að það sé bara rétt hjá honum Aroni Elí að vorið sé komið. Við erum ekki lengur að frjósa á nóttunni og marga daga fer hitinn uppí 20°, tréin eru farin að blómstra fallegum bleikum blómum og allt er að lifna við hér aftur og það er yndislegt að sitja í garðinum með skólabækurnar.

null

Við þökkum svo fyrir allar afmæliskveðjurnar og sendum knús og kossa heim til Íslands og njótið myndanna sem við settum inn!



fimmtudagur, febrúar 19 2009


Afmælisstrákurinn
skrifað @ 06:15 í [ Bloggið ]

Í dag er loksins runninn upp dagurinn sem Aron Elí hefur beðið svo lengi eftir. Hann er orðinn 5 ára!

Seinustu kvöld hefur hann átt erfitt með að sofna og því fannst honum ekkert undarlegt við það að við leyfðum honum að sofa í okkar rúmi. Þegar hann var sofnaður hófst verkefnið sem við höfum svo lengi beðið eftir, við settum saman hillur og settum upp punt sem við höfum verið að safna að okkur uppá síðkastið.

null

Þegar hann vaknaði í morgun sá hann að það voru blöðrur á hurðinni hans og afmæliskort og hann var að springa úr spenningi. Nýja herbergið sló í gegn og líka þessir 3 pakkar sem voru inní því og nú (eins og alltaf) er hann hamingjusamasta barnið í öllum heiminum.

null

Hann fer svo eldsnemma í skólann til þess að fara í leikhús svo ætlum við að borða afmæliskökuna í siestunni og svo fer hann aftur seinnipartinn með snakk, gos og nammipoka handa öllum bekkjarsystkinum sínum. Á laugardaginn heldur svo afmælishátíðin mikla áfram og þá ætlar litla fjölskyldan að skella sér í bíó og útað borða :)

null


Kveðja frá afmælis-"barninu"



mánudagur, febrúar 09 2009


Madrid-helgin mikla
skrifað @ 12:02 í [ Bloggið ]

Ég býst fastlega við því að þið viljið heyra ferðasöguna frá Madrid.

Við vöknuðum snemma á föstudagsmorguninn og tókum strætó niður á aðalrútustöðina hér í borg. Ferðin með rútunni tók nákvæmlega 4 klukkutíma og er þetta bara fínasti ferðamáti. Það snjóaði svolítið á leiðinni og það var stoppað einu sinni á leiðinni og þá föttuðum við að við Valenciu-búarnir getum sko ekkert vælt yfir kulda. Þegar við komum til Madrid hoppuðum við beint í Metro og vorum komin á hótelið okkar á korteri þökk sé Google-maps! Hótelið okkar var alveg niðri í miðbæ en samt inni í svona frekar sóðalegri hliðargötu. En það var alveg frábært þetta hótel, við vorum búin að herða okkur uppí kulda yfir næturnar með teppi og lak en hótelið var hlýtt og notalegt og starfsfólkið vinalegt með eindæmum.


null

Föstudagurinn fór í rölt um bæinn í kuldanum og það snjóaði meira að segja aðeins á okkur, Stubbur átti ekki til orð þegar hann sá alla með regnhlífar í snjókomunni, hann hafði nú bara aldrei séð annað eins! Ferðin gekk eins og önnur ferðalög Herreros fjölskyldunnar útá það borða. Matseðillinn samanstóð af.... pizzum, brauði með spænskri-kartöflueggjaköku (mörgum sinnum), Fridays, bjór, kaffi, kleinuhringjum í öllum regnboganslitum, berlínarbollum fylltum með hvítusúkkulaðikremi (ný trúarbrögð fjölskyldunnar eru "Dunkin-Donuts halelúja amen!!!"), Indverskur og Pakistanskur-matur (sem var æði en 7 evrur fyrir einn skammt af hrísgrjónum er bara of mikið, sama hvað gengi er notað og þó að þau séu ræktuð við erfiðar aðstæðir í fjöllum Himalaja). Heitt súkkulaði fékk alveg nýja merkingu.... Við erum að tala um heitt súkkulaði í bókstaflegri merkingu!!! Og svo borðuðum við auðvitað kínverskan en klikkuðum alveg á að fá okkur tapas, það er nefnilega ekki mikil hefð fyrir tapas hér í Valencia og við ætluðum að svala þörfinnni í Madrid en það bíður bara betri tíma.

null


Madrid er mjög dýr borg og það var svolítið dýrt að borða þar en það má heldur ekki gleyma því að við vorum auðvitað föst í hinum týpísku túristagildrum í miðbænum.



Við sáum höllina og hallargarðinn, allar gömlu byggingarnar, landslið Rúmena í Rugby sem völtuðu yfir spænskalandsliðið á laugardagskvöldið enda full rúta af nautum. Við ætluðum í kláf en hann var ekki opinn og heldur ekki lestarsafnið því febrúar er auðvitað ekki mikill ferðamannatími. Við fórum í hofið á hæðinni, á heimavöll Madrid fótboltaliðsins sem er örlítið fallegri en Valencialiðsins og svo fórum við á frægasta útimarkað Spánar á sunnudagsmorguninn. Ég er pottþétt að gleyma einhverju en myndirnar tala örugglega sínu máli. Við tókum svo rútuna aftur heim kl 17 í gær (sunnudag) og vorum ennþá sannfærðari um að þessi ferðamáti er rosalega fínn.

null

Við mælum sem sagt alveg með Madrid. Æðisleg borg sem sefur aldrei og er full af iðandi mannlífi allann sólarhringinn og greinilega allann ársins hring. Þrátt fyrir kuldann og frostið þá skemmtum við okkur konunglega og eigum örugglega eftir að heimsækja Madrid aftur og þá kannski að vori til.


Annars höfum við það rosalega gott. Raggi er búinn með prófinn og næsta önn er strax byrjuð. Hann fékk sem sagt bara frí yfir helgina frá skólanum. Við finnum vorið nálgast og það er svo margt spennandi framundan hjá okkur. Næstu helgi ætlum við í smá roadtrip með viðkomu í IKEA. Aron Elí er nefnilega alveg að verða 5 ára og ætlum við að gefa honum húsgögn í herbergið í afmælisgjöf og svo eigum við von á gestum og það er kominn tími til að fjárfesta í svefnsófa. Það slæma er að IKEA er í talsverði fjarlægð frá Valencia en við ætlum að reyna að gera eitthvað skemmtilegt í leiðinni.

Talandi um gestagang þá eigum við vona á Siggu, Finni og Gunnhildi í mars þegar Las Fallas er en það er aðalhátíð Valenciu-búa. Það er því mikill spenningur í gangi og heyrst hefur að fleiri séu fastagestir á síðum flugfélaganna í leit að fari til okkar sem okkur finnst alveg frábært og vonumst til að það láti sem flestir sjá sig í sumar.


null