Nú er litla fjölskyldan að pakka niður fyrir komandi ferðalag alveg ótrúlegt að þetta sé alveg að bresta á. Raggi greyið situr reyndar sviettur og klárar seinasta heimaprófið fyrir jól
Flugið okkar er klukkan 7 í fyrramálið og þurfum því að vakna eitthvað fyrir 4 í nótt, sem verður STUÐ!!!
Við vonum að þig eigið öll yndisleg jól með fjölskyldum ykkar því það ætlum við sko að gera á Tenerife með hluta af okkar fjölskyldu.
Við komum svo heim þann 4 janúar og þá fáiði sko að sjá myndir og örugglega einhverja ferðasögu.
Olla, Ragnar og Aron Elí
p.s.
Þessum litla jólasveini finnst lagið "Ég sá mömmu kyssa jólasvein" greinilega álíka furðulegt og móður hans sem varð alltaf hálf sorgmædd þegar hún hlustaði á það. Hann var nefnilega að syngja það með sinni englaröddu áðan "ÉG SÁ MÖMMU KYSSA JÓLASVEIN" Og bætti svo við með annnarri rödd sem sem minnti á sjálfann kölska "OG ÉG VARÐ ALVEG BRJÁLAÐUR!!!"
laugardagur, desember 20 2008
Jólakveðja
skrifað @ 14:48 í [ Bloggið ]
fimmtudagur, desember 18 2008
Myndir
skrifað @ 07:06 í [ Bloggið ]
Það eru komnar myndir í albúmið hér tl hægri!
mánudagur, desember 08 2008
Heimilisfangið okkar
skrifað @ 12:14 í [ Bloggið ]
C/ Belgica 12 2 6
46021 Valencia
Espana
sunnudagur, desember 07 2008
Greiningardeild Belgíugötunnar gefur skýrslu
skrifað @ 11:20 í [ Bloggið ]
Við hér erum í löngu helgarfríi. Ég er samt engu nær hvers vegna en það er frí á mánudaginn hjá skólaköllunum sem er bara gaman. Fríin hér eru alltaf örðuhvoru megin við helgi sem er snilld. Meira að segja um daginn var einhver Fiesta á Sunnudegi og þá voru búðir og allt lokað á laugardeginum fyrir svo að allir fengju örugglega sitt frí. Hér er nefnilega allt lokað á sunnudögum nema veitingastaðir, það tekur smá tíma að venjast því aftur eftir að hafa upplifað geðveikislega opnunartíma í íslenskum búðum. Hér er reyndar allt opið fram á kvöld hina dagana.
Nú er búið að hlýna aðeins hjá okkur aftur og er miklu notalegra hér inni hjá okkur þessa dagana en í seinustu viku. Þetta marmaragólf breytist í klakastykki þegar það kólnar.
Það er sko nóg um að vera hjá Aroni Elí þessa dagana. Hann telur niður dagana í Tenerife og jólin með 3 dagatölum! Í skólanum eru þau svo að æfa leikrit, þar verður jólamatur, þau eru á leið í sirkus, safna mat, leikföngum og slíku handa fátækum og það kom sjónvarpsstöð í heimsókn á föstudaginn og þau verða í einhverjum þætti um næstu helgi.
Við höfum tekið svolítið af myndum um helgina og setjum þær inn svo þið getið séð glefsur frá Valencia. Í gær fórum við í göngutúr í miðbæinn og drukkum í okkur jólastemmninguna. Fengum okkur grillaðann maís og fórum á smá jólamarkað, það kom allavegana smá jólaandi yfir okkur.
Aron Elí er náttúrulega tæknitröllið í þessari fjölskyldu. Hann er ROSALEGU, ef pabbi hans er góður þá verður þessi sko miklu miklu betri. Hann situr t.d. stundum yfir einni sjónvarpsstöðinni þar sem fer fram kennsla á myndlykilsfjarstýringuna! Hann kann að tengja Wii-tölvuna með því að setja 3 snúrur í samband og skiptir um leiki. Hann getur svo tengt flakkarann líka og valið sér mynd að horfa á (en þá þarf maður að taka leikjatölvuna úr sambandi). Sem segir okkur reyndar það að hann sé nú orðinn að nokkru leiti læs eða með mjög gott sjónminni. Pabbi hans er nú samt ekki par hrifinn af þessum hæfileika sem þróast áfram með ENDALAUSU fikti. Bara svo þið vitið það þá tekur þetta mig mjög langan tíma og ég man aldrei á hvaða stöð á að vera eða neitt og þessi myndlykilsfjarstýring er mér mjög framandi. En að aðalmálinu í þessari löngu grobbsögu minni.
Aron Elí hefur sem sagt fengið að spila leik sem er í Ragga síma en hann hefur síðan við fluttum hingað reynt að komast að leyndarmálinu á bakvið takkalásinn á símanum og nú tókst það loksins. En það var ekki þannig að hann hafi séð okur gera það. Enda notar hann ekki hina RÉTTU leið. Við skulum bara leyfa honum að segja ykkur þetta með sínum eigin orðum: " Ég geri bara svona 9 1 og 1 ýti svo á þennann takka (call) og bakka svo bara aftur og þá er síminn ekki læstur lengur!" Já einhvern veginn komst hann að því að það er hægt að hringja í 911 með lyklaborðið læst, það er öryggisatrið sem er innbyggt í flesta síma, svo skellir hann á og spilar sinn leik því þá er hann búinn að ná lásnum af. Við kenndum honum með hraði hvernig skuli opna símann á réttann hátt til að forðast sjúkrabílareikninga!!!
Já við erum búin að ákveða jólagjöfina handa tæknitröllinu og já það er með fullt af tökkum og hægt að setja í samband en ekki hvað?
mánudagur, desember 01 2008
Fréttatími
skrifað @ 12:43 í [ Bloggið ]
Kæru aðdáendur!
Af okkur er allt fínt að frétta.
Raggi er ALLTAF í prófi. Þetta er sko alveg rosalegt, hann er bara alltaf að læra fyrir próf þannig að hann er aldrei að læra bara svona venjulega. T.d. í morgun átti hann að mæta í tvö próf með klukkutíma millibili! Sé hann fyrir mér sveittann í stærðfræði prófinu að stressa sig á því að hann myndi ekki ná í hitt á réttum tíma. En honum gengur nú bara vel kallinum, finnst hann nú vera full neikvæður á köflum og þá rassskelli ég hann bara múhahahaha....
Í dag eru bara 20 dagar í jólafríið á Tenerife. Það er nú ekkert smá sem þessi litla fjölskylda er farin að hlakka til að fá smá sól í kroppinn. Já hlæið bara. Það er alltaf sól, logn, heiðskýrt og þurrt hér, en maður minn það er svo kalt INNI hjá okkur hahaha... En þá þarf maður bara að vera í inniskóm og lopapeysu. Mér skilst reyndar að það sé skítkalt um allann Spán en við sleppum. Við höfum reyndar verið að taka svolitla veikindatörn á þetta með kvefi og veseni og svo fékk Gormur gubbupest seinustu helgi!
Aron Elí fór í tvöfalt afmæli um helgina. Það fannst honum æði. Það var haldið á svona barnaskemmtistað og þau ærsluðust allann tímann. Við hjónakornin notuðum tíman til að versla í matinn og skildum hann eftir, enda gat honum ekki verið meira sama um okkur. Þegar við sóttum hann var það fyrsta sem hann sagði við okkur "ÉG FÉKK KÓK!!!" Lesist með svona "brjáluðumvísindamannahlátri" Á leiðinni heim sagði hann okkur hróðugur frá því að með kökunni hefði verið boðið upp á gos, hann hefði fyrst sagst vilja Fanta og drukkið það. En þegar hann vantaði áfyllingu ákvað hann að nýta fjarveru foreldra sinna og óskaði eftir kóki í glasið sitt! Hann er mjög stoltur yfir þessum árangri sínum sem næst víst með því að segja: "Quiero Coca-Cola". Hann er búinn að segja mér það svona 20 sinnum að þetta sé sko spænska og svo kemur þessi tryllingslegi hlátur hahaha...
Núna svigna hillurnar undan spænsku jólasælgæti. Vá!!! eins og nammið er nú ekkert spes hér þá virðumst við Raggi ekkert eiga neitt erfitt með að finna eitthvað gott og þá sérstaklega í jólahillunum. Spánverjar borða kannski ekki mikið af nammi en þeir lyfta sér greinilega upp um jólin. Þó svo að þeir borði ekki mikið nammi þá spara þeir nú ekki sykurinn í morgunmat, frekar geðslegt eða þannig.
Við þurfum nú að horfa í hverja einustu evru sem við eyðum og höfum þróað með okkur alveg ótrúlega nísku.
Sparnaðarráð númer eitt er að það er bannað að fara í bað!
Það fara alltaf tveir og tveir saman í sturtu í einu, er samt ekki eins spennandi og það hljómar!
Merkjavara í mat er bara algjört no no.... Hver er tilbúinn að borga 3 evrur fyrir tómatssósu frá Hunts???
Merkjavara í sælgæti er líka alveg útúr myndinni, fake Mars er næstum jafn gott og þetta upprunalega en kostar miklu miklu minna.
Svo kaupum við bara allt frá "Hacendado" sem er merkið sem búðin okkar framleiðir undir. Meira að segja rauðvínið frá þeim er keypt!!!
Svo höfum við rekið okkur á að öll sérvara er mjög dýr. Sem gerir okkur frekar erfitt fyrir því við eldum ofsalega mikið indverskan og t.d. kínverskan mat og hráefnið í svoleiðis mat er rosalega dýrt þ.e. allt nema kjúllinn. Raggi var að bjóðast til að finna út úr því hvernig maður býr til sín eigin Nan-brauð svo að hann þurfi ekki að borða ristað brauð með Indverskun oftar, því það er ekki séns að ég kaupi Nan-brauð (þegar þau finnast) á 600 kr pakkann!
Í vikunni fáum við svo loksins myndavél!!!! Við fengum evrur frá spænsku fjölskyldunni hans Ragga í brúðargjöf og ætlum að splæsa á okkur myndavélinni sem við vorum búin að velja fyrir svo löngu en höfum ekki fengið okkur til að kaupa með íslensku krónunum okkar. Þá verðum við kannski bara myndaóð og setjum inn fullt af myndum :D
Hjá okkur er nú ekki mikill jólaundirbúningur og fara pakkarnir til litlu grísanna heima á Íslandi í póst á eftir og þá eigum við bara eftir að finna það út hvernig við ætlum að gleðja hvert annað. Já það er ekkert jólaskraut eða neitt hér á þessum bæ,
en gangi ykkur öllum vel að undirbúa jólin.