miðvikudagur, nóvember 19 2008


Brandarahornið
skrifað @ 08:40 í [ Bloggið ]

Æj mér fannst fyrri færslan eitthvað svo þunglyndisleg, sem segir mér það að maður á ekki að láta undan þrýstingi og blogga þegar maður er ekki í stuði.

Hér koma nokkrar sögur af gullmolanum okkar.

"Mamma, afhverju heitir þetta KIND ER EGG????"

"¿Alberto! Cómo te llamas, pipi y kaka?" Þetta sagði hann við 13 ára frænda sinn sem hafði verið á klósettinu og hafði mikinn áhuga á að vita hvort að hann hefði verið að pissa eða kúka. En..... setningin þýðir: Alberto hvort heitiru piss eða kúkur???

Um daginn langaði orminn eitthvað voðalega mikið í nammi í morgunmat en mamman var alveg hundleiðinleg og tók það ekki í mál og þá tók minn maður til sinna ráða og sagði mér að það væri síminn til mín inni í eldhúsi. Ég fór inn í eldhús þar sem hann var í hrókasamræðum í innstunguna af brauðristinni. Á línunni var enginn annar en bróðir hans sem hann átti víst einu sinni en er dáinn og hann vildi bara koma því á framfæri að Aron Elí mætti sko alveg fá nammi í morgunmat!!!

Svo tuðar hann alveg heil ósköp yfir því að allir hér á Spáni séu að herma eftir pabba hans. Finnst voðalega óþægilegt að sjá pabba sinn á öllum götuhornum.

Flestir hafa nú heyrt næstu tvo, en einn morguninn var ég vakin með orðunum "mammma, ég er búin að hugsa það í alla nótt að þú ert sæt, ég elska þig og þú ert líka prinsessa!!!"

Við stubbur vorum að skoða gamlar myndir sem við fundum af lang-ömmu hans á netinu....
Aron Elí: Mamma, þegar þú varst ung...
Ég: Uhhh ég er ennþá ung!
Aron Elí: Nei mamma! Ég er að meina þegar þú varst ung!
Ég: Ég er ennþá ung! Ertu að meina þegar ég var lítil???
Aron Elí: NEI!!! Ég er að meina þegar þú varst UNG! Æj ég nenni ekki að tala við þig þegar þú lætur svona við mig!

Svo er hér einn síðan um helgina:

Þegar við vorum að leggja af stað að hitta fjölskylduna hér á Spáni sagði litli kallinn: "Verður afi la luz þar líka?" Minnugur þess að í fyrra þegar við heimsóttum lang-afa hans í sveitina hans í risastóra húsið hans, að afinn gekk á eftir honum um allt og slökkti ljósin sem Stubburinn kveikti, muldrandi fyrir munni sér "la luz". Sem þýðir auðvitað "ljós". Núna heitir þessi lang-afi bara "afi la luz". Merkilegt þetta minni haha...



þriðjudagur, nóvember 18 2008


Sveitaferð
skrifað @ 14:18 í [ Bloggið ]

Þá erum við búin að heimsækja fjölskylduna í "sveitina". Við fórum reyndar ekkert í sveitina hans afa heldur vorum í Yeste sem er smábær sem þau búa í yfir veturinn. Við lögðum af stað á fimmtudeginum eftir að hafa farið í stórmarkað og verslað eitthvað í skápana til þess að nýta bílaleigubílinn. Ferðin tók um 2,5 tíma og beið okkar auðvitað kvöldmatur við komuna. Á föstudeginum tíndist fólk smám saman á staðinn og fjörið byrjaði. Aron Elí varð svo veikur með mikinn hita og við misstum því af sveppatínslu og grillveislu úti í náttúrunni. Hann naut þess samt sem áður að leika við krakkana og æfa sig í spænskunni eins og við.

Lífið gengur sinn vana gang hér. Kallarnir eru á fullu í skólanum og ég er farin að skilja helling og búin að finna góðan spænskuskóla sem ég ætla í.

Tvö bekkjarsystkini Arons Elís eru búin að bjóða honum í afmælið sitt þar næstu helgi og er hann rosalega spenntur að fara. Hann er líka orðinn mjög spenntur fyrir jólunum og hefur miklar áhyggjur af því að jólasveinninn viti ekki að hann sé fluttur til Spánar ;) Svo er hann kominn aftur á "afhverju?" skeiðið, nema núna eru þetta svona spurningar fyrir lengra komna!

Nú erum við eiginlega bara farin að telja niður dagana í jólafríið á Tenerife og erum orðin mjög spennt. Við reynum að hugsa ekki mikið um þróun krónunnar en það er erfitt og setur okkur í mjög erfiða stöðu en við reynum að missa ekki svefn yfir því og reynum að hlusta ekki á allar fréttir og svartsýnisspár en þetta hefur áhrif því er ekki að neita. Ekki hafa samt áhyggjur af okkur við erum með belti og axlabönd sem halda enn ;)

Knús og kossar