Fyrirsögnin er reyndar ekki rétt. Það eru bara engar fréttir af okkur hér af Belgíugötunni.
Það er búið að vera alveg brjálað að gera hjá Ragganum í skólanum því ef þið vissuð það ekki þá ætlaði hann alltaf að hafa fyrstu önnina hér bara easy! En svo klikkaði eitthvað eða þá að hann er bara klikkaður hehe... og hann skráði sig í 100% nám. Við erum samt að plana smá ferðalag eftir tvær helgar og ætlum að fara í sveitina til afa og halda þar svaka partý með allri fjölskyldunni eiginlega spænskubrúðkaupsveisluna okkar, vonandi gengur það upp.
Aron Elí er hugrakkasti strákurinn í öllum heiminum, var ég búin að segja ykkur það? Hann valhoppar alla morgna í skólann og liggur svo á að fara inn að hann gleymir að kyssa mömmu sína bless. Hann er búinn að læra alveg helling í spænsku og ég heyri hann æfa sig inni í herbergi við bílana sína. Hann er svo hrifinn af kennaranum sínum og kyssir hana og knúsar þegar hann mætir. Krakkarnir taka honum vel og það eru systkini sem hann talar mikið um og er hann farinn að kvarta minna um að hann skilji ekki krakkana. Enda er hann farinn að skilja alveg helling það sem verið er að ræða eftir aðeins 3 vikur! Hann er líka miklu sáttari eftir að hann byrjaði í skólanum og situr og dundar sér í herberginu sínu já.... og reiknar og reiknar!!! Það er ekki nóg með að hann geti lagt tvær tölur saman heldur finnst honum skemmtilegast að leggja þrjár tölur saman.
Nú er orðið svolítið svalt hér hjá okkur. Á morgnana er um 8° en hlýnar aðeins yfir daginn. En 8° er sko skítakuldi! Kannski ekki alveg úlpuveður en rakinn kælir mann ennþá meira. Í fréttunum var sagt að kaldaloftið sem hefur verið hér í nokkra daga komi frá norðurpólnum og þá vildi litli kortasérfræðingurinn fá að vita hvar á kortinu norðurpóllinn væri og ef það væri kalt loft hér, hvernig það væri eiginlega á Íslandi því það er nær norðurpólnum. Þetta er gáfað finnst ykkur ekki??? Sængurnar góðu eru því að gera mikla lukku hér og við erum farin að kynda svona... þegar rafmagnið virkar! Það eru nefnilega búnir að koma hingað margir margir rafvirkjar og stækka öryggi og auka eitthvað flæði og blablabal... en ennþá getum við bara haft 1 stórt rafmagnstæki í gangi. En það er að koma einn enn í þessum rituðu orðum og vonandi finnur hann vandamálið.
Við fengum svo evrurnar okkar loksins í gær svo að við eigum fyrir leigunni og reikningum. Annars fylgjast Spánverjar vel með ástandinu heima og eru almennt uggandi yfir ástandi á fjármálamörkuðum því hér er t.d. 11% atvinnuleysi og það finnst þeim bara alveg nóg, skiljanlega.
Við biðjum bara að heilsa og vonum að þið eigið góða helgi. Við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt eins og fara á Starbucks í kakó og í bíó og eitthvað fleira.
föstudagur, október 31 2008
Fréttir af Belgíugötunni
skrifað @ 08:52 í [ Bloggið ]
sunnudagur, október 19 2008
Nýjar sængur :D
skrifað @ 19:48 í [ Bloggið ]
Af okkur er allt gott að frétta.
Aron Elí byrjaði í skólanum og gengur rosalega vel. Hann er kátur að mæta í skólann og við njótum þess í botn að eiga 2,5 klst gæðastund saman milli 12.30 og 15 á hverjum degi. Honum finnst þetta reyndar svolítið spes ennþá þ.e. að þurfa að labba tvisvar á dag í skólann. Kennarinn hans segir að honum gangi mjög vel og hann sé farinn að reyna að tjá sig við hin börnin og sé ekkert lítill í sér eða neitt þannig. Hann er voðalega kátur þegar við sækjum hann en vill voðalega lítið ræða hvað hann sé að gera en það er væntanlega vegna þess að hann er að átta sig á hlutunum.
Hér er hann í skólabúningnum (er reyndar hrifnari af stuttbuxunum en fór í þessar fyrir myndatöku)
Við þurfum líka svolítið að venjast þessu þar sem maður trítlar með barnið upp stiga á slaginu 9.30 og kveður hann á stigapallinum þar sem það er halarófa af foreldrum og börnum á eftir manni Svo þegar börnin eru sótt þá koma þau í röð niður stigann og kennarinn "afhendir" þau hvert af öðru. En í þessu fellst mikið öryggi þar sem það er ekki hver sem er að þvælast inn í skólann. Honum fylgir svo samskiptabók þar sem kennarinn skrifar hrós og skilaboð og foreldrar geta líka skrifað í ef það er eitthvað. Þetta finnst okkur alveg frábært. Þau fara svo oft í ferðir og fara t.d. í vikunni í bíó.
Eitt finnst okkur reyndar frekar skrítið en það kemur hárgreiðslustofa á nokkurra vikna fresti og klippir þau börn sem foreldrar vilja að séu klippt. Þetta kostar auðvitað eitthvað smotterí, og ætlum við að sitja hjá, allavegana í þetta skiptið. Mér datt nú bara í hug eitthvert stórfyrirtæki eins og "Google" þar sem starfsmennirnir þurfa ekkert að fara útúr húsi til að sinna svona erindum.
Annars fór vikan okkar eiginlega bara í þetta og mamman var eitthvað ótrúlega þreytt og naut þess í botn að fá smá tíma ein með sjálfri sér. En það hef ég ekki fengið síða einhvern tíma í sumar!!! Fyrstu dagana fannst mér ég að vísu hafa týnt einhverju en fattaði svo að "æxlið" var bara í skólanum.
Hér er svo ég og "æxlið" í garðinum sem er rétt hjá húsinu okkar
Við redduðum svo dvalarleyfi fyrir okkur Aron Elí í vikunni og ég nenni ekki að ræða hvað það var mikið vesen!!! Það er sko bara rugl. En nú megum við vera hér eins lengi og við viljum.
Svo keyptum við okkur sængur í gær og ætlum að prufa þær á eftir. Tvö vinapör voru nefnilega svo sniðug að gefa okkur gjafabréf í "El Corte inglés" og keyptum við okkur tvær hlýjar og vandaðar sængur. Þannig að ömmur okkar geta nú farið að sofa rólegar... okkur er hlýtt á nóttunni.
Við sáum svo í morgun Önnu Rós keppa í "Singing Bee" þættinum og við vorum alveg rosalega spennt og stolt þó svo að við hefðum vitað úrslitin haha... Aron Elí brosti útað eyrum, ég hélt að hann myndi rifna, klappaði. Já og við öll.
Annars höfum við orðið vör við að margir hafa áhyggjur af okkur og þykir okkur mjög vænt um það. En það er algjör óþarfi. Gengið og að geta ekki millifært er auðvitað ekkert skemmtilegt en það er heldur ekki óyfirstíganlegt. Það eru svo margir sem hafa það miklu verr en við og hugur okkar er hjá vinum okkar, kunningjum og fjölskyldu heima. Þó sérstaklega hjá þeim sem gætu misst vinnuna eða eru nú þegar búnir að því eins sorgleg staðreynd og það nú er.
Ef þið voruð eitthvað að pæla í því þá er ennþá stuttbuxna-veður hér. Hér eru allir dagar núna eins og íslenskir góðviðrisdagar svona í kringum 22°
Við settum svo eitthvað af myndum sem gestir okkar hafa tekið í myndaalbúmið undir "gestagangur"
Herreros fjölskyldan kveður að sinni :*

laugardagur, október 11 2008
Hver kemur svo???
skrifað @ 07:29 í [ Bloggið ]
Við vildum aðeins láta vita af okkur hér á Spáni.
Við erum allavegana ennþá ekki í jafn miklum vandræðum og margir námsmenn sem dvelja erlendis. Við höfum getað tekið út peninga úr hraðbanka. Hins vegar bíðum við eftir því að mega millifæra inná reikninginn okkar hér til að eiga fyrir leigunni og reikningum.
Við höfum miklar áhyggjur af ástandinu, það getur haft mjög keðjuverkandi áhrif á okkur hér úti eins og á alla heima. Hugur okkar er reyndar að miklu leyti heima þar sem við höfum áhyggjur af öllum og öllu.
En að öðru. Aron Elí er kominn inní "leikskóla" og byrjar á mánudaginn. Þetta er ekki leikskóli eins og á Íslandi heldur er þetta einkarekinn skóli sem skiptist í nokkurskonar vöggustofu (0-3) og svo smábarnaskóla (4-6). Hann verður með elsta hópnum þar sem flest öll 5-6 ára börn eru komin í opinbera skóla og því eru þau 4-5 ára elst þarna. Kerfið er líka voða spes. Hann byrjar 9.30-12.30 og fer svo aftur 15.00-17.30. Skólinn opnar reyndar klukkan 8 og er opinn til 19. Við ætluðum alltaf að hafa hann frá 8-13 eða 14, en þetta kemur svo sem útá eitt. Hann er 5 og 1/2 tíma og við fáum tíma saman í "siestunni". Það er reyndar alveg hægt að hafa hann milli 12.30 og 15.00 og vinnandi foreldrar gera það en það kostar frekar mikið og ætlum við því að prufa hitt til að byrja með.
Á eftir þurfum við að fara að kaupa á hann skólabúning sem samanstendur af bláum kvartbuxum og hvítum polo-bol og einhverju fleiru. Við fáum reyndar smá sérmeðferð fyrstu dagana svo að við þurfum ekkert að stressa okkur mikið á því þó að hann verði ekki alveg eins og hinir fyrstu dagana. Svo vorum við send heim með námsefni vetrarins í troðfullum haldapoka! Við mamma sátum og flettum í gegnum þetta, ekkert smá vandað námsefni. Því er skipt í 3 hluta og hverjum hluta fylgir geisladiskur með lögunum sem þau syngja og bækur til að lesa fyrir börnin auk efnis fyrir foreldra. Svo fylgdi skriftarbók, enskubók, stærðfræðibók og fleira. Hann er alveg rosalega spenntur að byrja og við líka að hjálpa honum að takast á við þetta. Þannig að litla barnið okkar er bara að byrja í skóla!!!
Mamma og Hlynur eru búin að vera hér hjá okkur í viku og fara í kvöld. Þau komu reyndar með gubbupest með sér og veiktust bæði en við höfum sloppið enn sem komið er. Þannig að það fóru 2,5 dagur í veikindi af þessum fáu dögum sem við áttum saman. Það hefur nú ekki verið nein stíf dagskrá en við fórum með drengina í sædýrasafnið og dýragarðinn. Mamma er búin að taka fullt af myndum og við setjum þær inn á myndasíðuna um helgina.
Aron Elí reynir að tjá sig eins og hann getur við alla sem hann hittir og svarar annað hvort með "sí" eða "no" óháð því hvort að það eigi við.
Við vorum svo í hraðbanka um daginn og þá spurði mamma hann hvort hann vissi hvað bankinn okkar héti hér úti. Hann hugsaði sig um í smástund og svaraði svo "já.... hann heitir bara Landsbyggðarbankinn"
Hann toppaði svo allt með því að ráðleggja ömmu sinni í uppheldisaðferðum á frændanum! Hann segir henni að hún verði bara að nota 1,2,3 og svo ef maður er ekki hættur þarf maður að hugsa málið segir hann henni. Hann er sem sagt varaður við með einum og tveimur en á þremur þarf hann að setjast niður og hugsa aðeins málið. En honum finnst að hann þurfi eitthvað að segja ömmu sinni, sem er starfandi leikskólastjóri með framhaldsmentun, til í þessum málum
Knús og kossar til ykkar allra þarna heima!!!
mánudagur, október 06 2008
Guð blessi Ísland!
skrifað @ 20:38 í [ Bloggið ]
Við höfum það ágætt og erum ekki að svelta hér á Spáni.
Því "Marshall aðstoðin" kom frá Íslandi með "Season-All" krydd og bók með kartöfluuppskriftum frá Íslandi. Mamma er sem sagt komin með litla bróður. Hún vildi nú líka kaupa sængur handa okkur á Íslandi. Sem við samþykktum auðvitað ekki. Hún kom reyndar með vinkonu mína hana GUBBUPEST með sér og er búin að liggja í sólarhring núna og reiknum við fastlega með því að við tökum við hvert af öðru, sparast væntanlega eitthvað í fæðisgjald. Þetta sparnaðarráð var í boði ættmóðurinnar!
Hilli fer svo í nótt til Þýskalands og er hann orðinn dekkri en bróðir sinn, sko þessi með spænsku genin!
Við erum svo komin með leikskóla í sigtið fyrir Aron Elí. Það er ef hann kemst ekki inn í skóla af biðlistanum, en það er allt í skoðun ennþá.
Skólinn gengur vel hjá Ragga en hans helstu vandræði þessa dagana er að hann lítur út eins og spánverji og fatta kennararnir ekki strax að spænska er ekki hans fyrsta mál, þannig að þeir halda kannski bara að hann sé svona treggáfaður greyið.
Annars er ekki mikið að frétta. Annað en það að hér kemur okkur ýmislegt spánskt fyrir sjónir hahaha... (nei ekki orðin þreytt á þessum)
Um daginn var hringt í okkur og við rukkuð um internet reikninginn. Hér virkar kerfið þannig að þú gefur upp þitt bankanúmer ekki öfugt eins og við eigum að venjast! Leigusalinn tekur t.d. útaf okkar reikningi, sem við vorum lengi að átta okkur á. Alla vegana þá brá Ragga auðvitað að heyra það að internetið hefði ekki borgast um mánaðarmótin enda maður sem vill hafa allt sitt á hreinu og lofaði að fara í bankann daginn eftir og kippa í liðinn. Svo fer Raggi í bankann sem internet fyrirtækið er í viðskiptum við og ætlar að borga þennann reikning. Þá sagði gjaldkerinn honum að því miður væri bara hægt að borga reikninga milli 10 og 14 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga!!!
JÁ SÆLL!!!
Svo er festival hér á fimmtudaginn, dagur borgarinnar er haldinn hátíðlegur og þá er bara líka frí á föstudaginn. Svona á að gera þetta! Við ætluðum í eitthvað road-trip og langaði okkur að skreppa eitthvað yfir landamærin þar sem við erum með bílaleigubíl í viku. En eftir atburði seinustu daga held ég að við geymum það bara aðeins.
p.s. slátrið má senda á Belgíugötuna número 12
fimmtudagur, október 02 2008
Into the wild
skrifað @ 21:12 í [ Bloggið ]
Nenni ekki að tala um krónuna, kreppu eða neitt því tengt!
En samt ætla ég að tala um svolítið sem tengist henni kannski svolítið ;)

Mig langar svo að benda ykkur á mynd sem ég horfði á í gærkvöld og ég er enn að hugsa um hana.
Hún heitir "Into the wild" og er leikstýrt af Sean Penn. Hún fjallar um strák sem gefur í raun skít í samfélagið, peninga, eignarhaldið og allt "krappið" og leggur af stað í ferð, myndin er gerð eftir bók sem heitir líka "Into the wild" og er byggð á sannsögulegum atburðum.
Linkur á myndina á IMDB.COM
Hún fær mann til að hugsa um ALLT, s.s. tilgang lífsins, hamingju, fjölskylduna, hvað sé velgengni auk þess sem hún inniheldur alveg geggjaða tónlist. Mann langar líka að fara að lesa einhverjar alvöru heimsbókmenntir eftir að hafa horft á þessa mynd.
Ég fór að hugsa mikið í kjölfarið, ætla nú ekki að deila því með ykkur það sem það er of persónulegt og heimspekilegt.
Þið eruð kannski öll löngu búin að sjá hana en ef ekki mæli ég með því að þið horfði á hana.
Og hér er svo titillagið úr myndinni með glefsum, bæði af hinum upprunalega Chris McCandless:
(glefsurnar eiga svo sem ekki að eyðileggja neitt fyrir ykkur, en ef þið eruð mjög sérvitur þá lokiði bara augunum og hlustið á þessi tvö lög).
og meira:
Það er rosalega langt síðan mynd hreyfði svona rosalega við mér!!!