föstudagur, ágúst 29 2008


Komin til Spánar
skrifað @ 08:40 í [ Bloggið ]

Þá erum við fjölskyldan komin til Valencia

Þetta er auðvitað sannkallað ævintýri eins og við var að búast.

Við erum ekki komin með netið ef þið eruð að spá í það heldur er bara einhver illagefinn nágranni í næstu blokk.

Lögðum af stað á miðvikudaginn eftir hádegi. Vorum með alltof mikinn farangur eða c.a. 36 kg í yfirvigt og sjónvarpið okkar í handfarangri. Raggi náði nú e-ð að sjarmera konuna uppúr skónum eins og honum einum er lagið og borguðum við því fyrir 17 kg en við höfðum svo sem alltaf reiknað með að borga e-ð í yfirvigt en kannski ekki 36 þús! Ég var nú mest stressuð yfir því að einhver setti úta það að við ferðuðumst með sjónvarpið okkar í handfarangri en svo var ekki.

Við gistum svo í Elche á Holyday inn sem er eða Á að vera rétt hjá Alicante flugvellinum en það er alveg ótrúlegt hvað ein röng beygja getur skipt miklu máli hehe.

Svo var það bara IKEA í Murcia sem er bara nákvæmlega eins og nýja IKEA heima nema að þar er aðeins meiri troðningur. Þar versluðum við nokkrar nauðsynjavörur eins og glös og diska og slíkt.

Þá var loks komið að því að fá íbúðina afhenta. Það var vægast sagt mikið sjokk!!! Það munaði litlu að tárin færu að renna hjá prinsessu frá Íslandi. Íbúðin var full af iðnaðarmönnum sem sögðu allir það sama "á morgun". Þar sem "manana" getur þýtt ansi margt hjá spánverjum hræddi það mig hvað það þýddu margir dagar hjá iðnaðarmönnum. Við eyddum svo kvöldinu að þrífa og kallarnir eru að klára sýnist mér bara á öllu. Þeir lofa nú líka að þrífa en við reiknum nú með því að klára það í kvöld. Þannig að í dag lítur þetta betur út en í gær og ekkert sem tuskur og IKEA geta ekki lagað. Nema kannski eldhúsið sem er ca 1 m x 10 m. Bara svo það sé á hreinu þá er eldhúsið METER á breidd!!! Verða ekki mikil eldhúspartý hér, nema þá kannski í einni halarófu.

Dagurinn í dag fer svo í að reyna að finna okkur e-ð til að fylla þessa stóru íbúð en í gær fluttum við inn í gestaherbergið með allt draslið okkar og vindsængur sem maður að nafni Jose keypti handa okkur, en Raggi heldur að hann sé frændi sinn (er samt ekki alveg með það á hreinu). Hann birtist allavegana hér og kyssti okkur og knúsaði og bauð okkur alla þá aðstoð sem okkur kynni að vanta.

Og svona í lokin langar mig að kæta þá sem ég hef verið að röfla í yfir því að Raggi hafi tekið mjög mikilvægt pláss í töskunum fyrir 2 risastór MILLISTYKKI með takka. Sem hann réttlætti með því að þau væru svo stór og góð, en sannleikurinn er auðvitað sá að hann bindst hlutum sem ganga fyrir rafmagni eða hægt er að setja í samband óeðlilegum tilfinningaböndum! Hann sagði auðvitað að þetta væri mjög stór þáttur í sparnaðaraðgerðum þar sem svona væri rándýrt.

Það fyrsta sem við rákum augun í í IKEA voru 2 nákvæmlega eins saman í pakka á 6 evrur eða um 700 kall!!!!

Hastala vista spánarfararnir



miðvikudagur, ágúst 06 2008


Myndir
skrifað @ 21:51 í [ Bloggið ]

Við erum búin að setja inn fyrsta skammtinn af myndunum úr brúðkaupinu eða réttara sagt veislunni á nýju myndasíðuna okkar.

Njótið!

Ætlum að laga hana svo aðeins betur til og þið eigið svo að geta fylgst með okkur á Spáni í gegnum hana. En það eru bara 3 vikur í brottför og nóg að gera þangað til.