Laugardagurinn var fullkominn.
Set inn eina mynd og lauma kannski fleirum inn seinna.
Fjölskylda okkar og vinir áttu mikinn þátt í því hversu vel þetta heppnaðist og viljum við auðvitað þakka þeim öllum fyrir sinn þátt.

mánudagur, júlí 21 2008
Brúðkaup 19/7
skrifað @ 22:02 í [ Bloggið ]
miðvikudagur, júlí 09 2008
Olla GÆS
skrifað @ 19:55 í [ Bloggið ]
Þá er búið að gæsa mig :D Var elt norður á Siglufjörð til þess.
Það var klikkað gaman, vill samt ekkert vera að segja frá því svo ég eyðileggi ekki fyrir stelpunum. Lofa að segja betur frá því seinna og e.t.v. fæ ég lánaðar nokkrar myndir.
Ég fékk ógeðslega flottann bleikann vasapela með nafninu mínu á og næstum heila helgi með þeim.
Á pottþétt bestu vinkonur, mágkonu og systur í heimi sem eru tilbúnar að leggja mikið á sig til að ná mér ;)
Nú eru bara 2 vinnudagar eftir í sumarfrí sem varir í 3 vikur.
Svo er brúðkaup þann 19/7
Annað þann 8/8
Seinasti vinnudagurinn 15/8
Flug til Spánar 27/8
Eigum von á tveimur hollum af gestum í September/október
SVO
Og jól á Tenerife
SHIT HVAÐ ÞAÐ ER GAMAN AÐ VERA ÉG!!! (já eða við Herrerosarnir)