Muniði ekki alveg örugglega eftir þessari færslu hér. Hún er skrifuð fyrir nákvæmlega ári síðan. Þó svo að hann hafi ekki svarað mér á MSN þetta skiptið þá leiddi þetta af sér ýmsar pælingar.
Nú hefur Herreros fjölskyldan ákveðið að fara að finna ræturnar og frekari menntun og flytja til Spánar. Það hefur svo sem ekki verið neitt leyndamál og flestir hafa heyrt af ráðahagnum.

Við stefnum á að fara í lok ágúst og ætlum við að búa í Valencia sem er þriðja stærsta borgin á Spáni. Raggi er kominn inní góðann tækniháskóla þar sem hann heldur áfram með tölvunarfræðina. Við stubbur ætlum hins vegar að læra spænskuna og þegar mín er orðin góð getur meira en vel verið að ég fari í frekara nám.

En fyrst og fremst lítum við á þetta sem ævintýri og tilbreytingu.

Þannig að við erum orðin svolítið mikið pennt fyrir þessu öllu og nóg að gera hjá okkur í skipulagningu. Öll okkar fjölskylda tekur vel í þetta hjá okkur og einhverjir hafa strax boðað sig í heimsókn í haust.
föstudagur, júní 06 2008
TILKYNNING
skrifað @ 08:08 í [ Bloggið ]
þriðjudagur, júní 03 2008
Ísbjörn
skrifað @ 11:07 í [ Bloggið ]
Seinast þegar ísbjörn kom til Íslands nam hann land í Fljótunum.
Þegar fréttir bárust af bangsa og að búið væri að skjóta hann hafði matargatið ég (þá 6-7 ára) mikin áhuga á að vita hvort að hægt væri að borða kvikindið og hvað yrði þá um allann matinn af skrokknum og vildi fara að sækja það til að fá smá smakk.
Svona gott hefur hann það örugglega í blíðviðrinu í dag ;)

Þessa sögu þreyttist hann pabbi minn ekki á að segja af mér og stæra sig af því hvað ég var/er dugleg að borða.
Ætli þetta hafi ekki verið á svipuðum tíma og við fórum á selaveiðar. Sem er b.t.w. það ógeðslegasta sem ég hef upplifað. Pabbi var svo sem ekkert hrifinn af því sjálfur. það sagði hann mér að minnsta kosti í vetur þegar ég var að skamm hann fyrir að hafa farið með okkur að skjóta seli. En Helgi heitinn besti vinur hans var veiðimaður mikill og skaut allt sem hreyfðist.
Annars gengur veikindafríið ágætlega er að horfa á Indiana Jones safnið, Sex and the city safnið, ætla að kíkja á Scrubs svona til að vita um hvað Dóri mágur er alltaf að tala, byrjaði á spænsku 102 og er farið að klæja í puttana að komast í smá skápatiltekt.
Ég er reyndar varla viðræðuhæf þessa dagana.
"HA!"
"Þú verður að horfa á mig svo ég skilji þig"
"Hættu að muldra ofan í bringuna á þér"
"HVAÐ ER KRAKKINN AÐ SEGJA???"
"Þú verður að koma hingað, ég heyri ekki rassgat í þér!!!"
"Raggi! Hvað sagði hún?"
"Ég get ekki horft á þessa mynd án texta"
Haldiði ekki að það sé gaman að búa með mér???
Toppaði reyndar allt um daginn þegar Ívar var að segja sögu, svo kom pönslænið og ég var enn að hugsa um byrjunina á sögunni. Og spurði:
"EN HVAÐ HÉLT JAY LENO AÐ HANN MYNDI GRÆÐA Á ÞVÍ AÐ GEFA HAMSTRI HELÍUM???"
Það var víst bara alls ekki það sem brósi var að segja og þið hefðuð átt að sjá svipinn á liðinu!
