Þá eru boðskortin að detta inn um lúgurnar hjá þeim sem er boðið í party ársins.
Undirbúningurinn gengur vonum framar og ég er farin að hræða sjálfa mig með Monicu skipulaginu *hóst hóst*
Stubburinn er auðvitað að fara að giftast mömmu sinni eins og sönnum mömmurassi sæmir og á hverjum morgni förum við í gegnum sömu rútínuna, þar sem hann vill fara í nýju spariskónum á leikskólann. Já það er erfitt að bíða.
Raggi er svo búinn að kaupa handa okkur Nintendo Wii og eru íþróttamót haldin í stofunni á hverjum degi núna og allir með harðsperrur, efast um að Íbbó geti pikkað á tölvuna í dag ;)
Á morgun á ég svo að mæta í aðgerð á eyra á Borgarspítalann. Þarf að vera heima í 10 daga að gera ekki neitt :S Ekki laust við að ég sé stressuð, hef ekki verið svæfð í 24 ár. Þarf í þokkabót að liggja inni í eina nótt. En ef ég fer að heyra e-ð og gatið grær þá er ég alveg tilbúin að leggja þetta á mig.
miðvikudagur, maí 28 2008
Allt að gerast
skrifað @ 15:59 í [ Bloggið ]
sunnudagur, maí 18 2008
Þetta finnst mér FYNDIÐ!!!!
skrifað @ 10:24 í [ Bloggið ]
mánudagur, maí 05 2008
..........
skrifað @ 21:53 í [ Bloggið ]
Ég er alveg ótrúlega heppin.......
Ég á þessi fallegu fjölskyldu :D
Þau eru líka mínir bestu vinir.

En þetta var afmælisgjöfin okkar til mömmu, létum setja myndina á striga og blindramma og gat ekki annað séð en að kellann væri ánægð. Svo fékk hún auðvitað líka smá pakka.
Litli frændi fékk svo nafn og heitir hann Bjarki!

Þarna erum við nafni og "péturssporsfélaginn" að kúra okkur, (uhh já ég er sko montin!!!)

Ég fer svo örugglega að fara að blogga eitthvað. Finn hvað hugurinn er allur að skýrast og þrekið að aukast. Hvernig er annað hægt þegar maður er svona rosalega heppinn eins og ÉG!