miðvikudagur, apríl 30 2008


Besta mamma í heimi er hálfnuð í hundrað
skrifað @ 13:55 í [ Bloggið ]

Besta mamma í heimi er hálfnuð í hundrað!

Ætlum að halda uppá það með partýi í kvöld.

mamma 50 ára

Hlakka svo til að gefa henni gjöfina frá okkur að ég get ekki beðið.



sunnudagur, apríl 13 2008


Breiðuvíkur gengið segir frá
skrifað @ 08:20 í [ Bloggið ]

Við erum bara í góðum gír hér í Breiðuvík.

Þessi vika fór reyndar í veikindi hjá gormi og því lítið mætt til vinnu. Ég notaði tímann hins vegar súper vel og tók til í öllum skápum og skúffum og hékk svo á internetinu og sendi hvern pakkann á eftir öðrum til Siggu og er því komin langt með innkaup fyrir "The big day".

Fyrir ykkur sem ekki vitið erum við Ragginn að fara að gifta okkur þann 19.7 :D
Skipulagningin gengur bara vel og er ég að verða búin að klára það sem var á minni könnu. Þarf svo að hjálpa Ragga við sitt þegar hann klárar þessi próf sín og verkefnið sem er eftir prófin.

Svo er auðvitað kominn nýr íbúi í Marteinslaugina í Grafarholti og auðvitað er hann með fallegri börnum sem hafa komið í heimin. Ég var svo ótrúlega heppin eða þau svo góð við mig að ég var beðin um að koma þegar hann var bara rétt nýfæddur alveg ótrúlega upplifun :D Enda ætlar þessi gormur að var "Ollu strákur" þar sem hinn gormurinn sem þarna býr fyrir er BARA "Ragga stelpa".

Það hljóta svo að fara að koma meira spennandi fréttir af okkur með vorinu og ég þarf að fara að vera duglegri að skrifa.