mánudagur, febrúar 18 2008


Lillmundur Herreros 4 ára
skrifað @ 21:53 í [ Bloggið ]

Í dag 19. febrúar er lillmundurinn orðinn 4 ára. Hann fékk veisluna sína á sunnudaginn þar sem boðið var uppá pizzur og transformersköku. Frá settinu fékk hann hinn marg um talaða "transformersflutningabíl sem breytist í byssu" og var miklu meira en sáttur. Það var líka gott að geta kætt litla kallinn.

Við heldum svo uppá það að pabbi hefði orðið 50 ára á laugardaginn og skáluðum í kók og prins.

Á laugardaginn er svo útskriftarveisla.

Ofsalega skrítið að vera dapur, spenntur, kvíðinn, kátur og reiður allt í bland. Þá er líka gott að eiga góða að, vini sem hlusta, systkini sem standa saman, mömmu sem vildi geta tekið allt á sig ef það væri hægt, stubb sem strýkur mér, kyssir og er ekki ófeiminn að játa ást sina og auðvitað hann Ragga minn sem er kletturinn minn.