fimmtudagur, janúar 24 2008


Takk allir
skrifað @ 14:08 í [ Bloggið ]

Undanfarnir dagar hafa verið okkur systkinum, mökum og börnum mjög erfiðir.

Mig langar til að þakka öllum fyrir stuðninginn og kveðjurnar.
Við eigum greinilega stórt og myndarlegt stuðningsnet og pabbi er örugglega stoltur af því hvað við stöndum þétt saman.



föstudagur, janúar 04 2008


Þeir hringdu í morgun og sögðu að Britney væri orðin óð!
skrifað @ 19:26 í [ Bloggið ]

Þetta listaverk kom sonurinn með heim úr leikskólanum.

null

Hann sagði að ég væri með svona fallegt svart hár! Ég varð frekar súr á svipinn og spurði hvort að ég væri líka með svona mkið svart skegg! En þá "ruglastist" hann, þetta átti auðvitað að vera mynd af pabba. Fjúkket!