Að flengja apann hefur ákveðna merkingu á mínu heimili.
Ekki að það sé stundað mikið hér í Breiðuvíkinni að mér vitandi allavegana.
Þess vegna fékk ég hláturskast í bílnum þegar þetta lag hjómaði á Bylgjunni niður Ártúnsbrekkuna.
En eftir að hafa hlustað betur á lagið og lesið textann hef ég komist að því að ég held að það vanti nokkrar blaðsíður í mig, kannski bara heilu kaflana!!!
föstudagur, nóvember 09 2007
Að flengja apann!!!
skrifað @ 18:24 í [ Bloggið ]
laugardagur, nóvember 03 2007
Er á lífi...
skrifað @ 06:58 í [ Bloggið ]
Ég er alveg á lífi.
Bara búið að vera brjálað að gera.
Byrjuð að vinna sem þjónustufulltrúi í Landsbankanum.

Það er mjög fínt, góður andi og er í sama húsi og Raggoz vinnur í. En mikið að læra og hausinn á mér er á suðupunkti eftir daginn. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki verið mjög peninga-þenkjandi áður. Reynslan er hinsvegar örugglega mjög dýrmæt. Er alveg að venjast því að þurfa að vera í háhæluðum og ´"kvenleg" allan daginn ;) Er líka svo heppin að fjölgun Marteinslaugarbúa er í kortunum svo að ég fór tæmdi fataskápinn þar. Tók samt ekki Dóra föt.
Fyrstu tvær vikurnar voru hins vegar mjög erfiðar þar sem ég missti skyndilega heyrn á öðru eyranu (þessu góða, sem venjulega heyrir ágætlega), það var gat á hljóðhimnunni en svo hafði víst komið sýking inn fyrir. Ég heyrði ekkert sem sagt var við mig, þjáðist af innilokunarkennd sem erfitt er að útskýra og var endalaust þreytt og þegar eyrnalæknirinn sagði mér að nota dropa og hitta hann svo eftir nokkrar vikur, var ég næstum farin að grenja hehe. En heyrnin er að skána en ég þarf væntanlega að láta gera við gatið þegar sýkingin er farin
Svo er ég að fara til Köln að versla jólagjafirnar í byrjun desember. Hlakka mikið til. Raggoz er að fara í vinnuferð og ég fæ að fljóta með. Svo verður stutt viðkoma í Osló. Þannig að tvö lönd komast á kortið mitt sem fer stækkandi.

Bless í bili