föstudagur, október 12 2007


Herra rokk
skrifað @ 09:37 í [ Bloggið ]

Herra rokk var ánægður í gær þegar hann sá að mamma hans hafði skilað "bleika-ógisslega-stelpubolnum" eins og hann kallaði hann, og fengið þennann fína bol sem ber nafnið rokkarabolur.
null



miðvikudagur, október 10 2007


Þvílík blogglægð
skrifað @ 16:40 í [ Bloggið ]

Það er ekki þar með sagt að lítið sé um að vera þó svo að ég bloggi ekki mikið.

Ég fékk t.d. óvæntan gest á föstudagskvöldið, var svo hissa að ég var næstum dónaleg. En Sigga Maja og Finnur stóðu allt í einu hér fyrir utan. Hanna Sigga Maja halda svo upp á afmælin sín á laugardagskvöldið og ég hlakka mikið til. Þarf reyndar að fara að ná þessari flensu úr mér svo ég geti eytt tíma með henni áður en hún fer til Ameríku aftur.

Flensan hefur nefnilega verið í mér í næstum tvær vikur og náði hámarki sínu í gær þegar ég gat ekki sofið fyrir hálsbólgu og ef ég dottaði þá vaknaði ég alltaf upp við hrotur og ætlaði að fara að snúa öðrum kallinum mínu en komst þá að því að þetta var í mér, ekki slæmt að vakna við eigin hrotur.

Hér eru svo þrjár myndir fyrir ykkur að njóta:

fyrst er hér verðandi herra Ísland með bleika bolinn sem mamma gaf honum en hann neitar að máta og er vægast sagt reiður við ömmu sína að hafa dottið í hug að hann myndi fara í bleikan bol ;)
null

Svo er ég að dansa við kjúllann með bjórinn í rassinum
null

Og í lokin ein góð af frændunum
null






mánudagur, október 01 2007


Búin að kaupa???
skrifað @ 20:01 í [ Bloggið ]

null