Það er ýmislegt sem hún móðir mín hefur kennt mér í gegnum tíðina. Þegar ég var lítil man ég að húsverkin voru henni ofarlega í huga nánast alla daga.
Mamma sagði t.d. að fötin mættu ekki liggja í þurrkaranum.
-Ég hef hinns vega komist að því að það gerist bara alls ekkert hræðilegt þó þau liggi þar í marga daga.
Mamma hafði það á hreinu að það þurfti að moppa yfir gólfin alla daga eftir vinnu.
-Ég hef hins vegar komist að því að það er alveg nóg að ryksuga einu sinni í viku.
Mömmu fannst best að ryksuga stofuna í miðjum æsispennandi leik í enska boltanum.
-Ég hef hins vegar komist að því að það er alls ekki ráðlegt og læt því aðra um ryksuguna.
Mamma sagði að maður þyrfti að straua sumt, maður bara ÞYRFTI!!!
-Nei mamma, það er vel hægt að komast af á þess að stauja neitt yfir höfuð!!!
Mamma var líka snillingur í að finna út hvort einhver var í blautum sokkum, því það koma svona ský á parketið.
-Mamma, þú bara verður að koma og sýna mér hvernig maður fær svona super-sjón.
Mamma sagði líka að maður þyrfti nánast að vaska upp áður en maður setti í uppþvottavélina.
-Nei mamma, hafragrautur, tómatssósa skolast af og svo er sigtið þarna alveg rosalega sniðugt.
Og svo skrökvaði hún því líka að fötin mín myndu skemmast ef þau væru látin liggja á gólfinu.
-Skil ekki alveg hvernig hún fékk það út, en ég hef unnið að tilraunum í mörg ár í þessum efnum og hún virðist bara hafa verið að skrökva!

Mamma hafði samt rétt fyrir sér með margt. Það ógeðslegt að drekka úr opinni mjólkurfernu, maður setur ekki blaut föt í óhreinatauið, maður verður að skola tuskuna eftir að maður notar hana til að þurrka e-ð upp (t.d. mjólk), já fataskápurinn minn er það mesta skipulagsslys sem sögur fara af og Raggi þolir ekki heldur að ég skuli ekki drullast til að loka klósettinu.
Ég er samt alveg ágætis húsmóðir, þó svo ég missi ekki svefn yfir ókláruðum húsverkum. Mamma mín er samt betri ;)
fimmtudagur, ágúst 23 2007
Húsverkin
skrifað @ 13:11 í [ Bloggið ]
mánudagur, ágúst 20 2007
Changes
skrifað @ 17:50 í [ Bloggið ]
Sagði ekki einhver að það væri gott að hafa nóg að gera og breytingar væru af hinu góða???
Muggur byrjaði á nýrri deild í morgun og byrjar á sundnámskeiði á morgun!
Raggoz er orðinn háskólanemi!
Ritgerðin mín er á lokasprettinum (held ég allavegana) og mig vantar VINNU!´
Svo eru bara nokkrir dagar í að ég verði ekki lengur 25 :S
föstudagur, ágúst 17 2007
Good times
skrifað @ 13:57 í [ Bloggið ]
Fann þetta eðal-lag og ákvað að deila því með ykkur.
Þetta lag var á fyrsta geisladisknum sem ég eignaðist. Foreldrar mínir létu sérpanta diskinn hjá Stjána Möller handa mér í afmælisgjöf því ég hafði nokkrum vikum áður verið að segja þeim frá þessum töffurum sem voru alltaf í fötunum öfugum.
Það fyndna var að mig langaði aldrei neitt í diskinn enda áttu Sigga og Gunnhildur hann og gat ég því hlustað á hann að vild hjá þeim, ég var/er líka svo svo hagsýn að mér fannst algjör óþarfi að við vinkonurnar ættum tvö eintök. Diskurinn er því ekki mikið notaður en hefur nokkrum sinnum verið spilaður í partýium og alveg furðulegt hvað margir kunna textana.
Eitt sinn fórum við Rakel líka á grímuball sem þeir félagar enda voru hæg heimatökin að taka bara fötin í skápnum hennar Rakelar og kíkja við hjá strák sem hún þekkti til að fá lánaða ýkta fylgihluti. Það er hins vegar skemmst frá því að segja að við unnum ekki verðlaunin það árið í Borgó enda föttuðu fæstir hvað við ættum að vera og fannst þessi tilraun okkar bara fáránleg þ.e. að fara í skopparafötin öfug. En okkur fannst við mega flottar enda er einkahúmor sá besti ;)
föstudagur, ágúst 10 2007
Spánn 2007
skrifað @ 09:49 í [ Bloggið ]

Séð út fjallaþorpinu Guadalest.
Við fórum héðan úr Breiðuvík rétt fyrir hádegi þann 9. júlí og lentum á Alicante flugvelli um miðnætti þar sem maðurinn sem leigði okkur hús pikkaði okkur upp og skutlaði í húsið í Torrevieja. Húsið var alveg fullkomið, það voru verandir fyrir framan og aftan og sundlaug í bakgarðinum. Þar að auki var allt til alls og allt mjög snyrtilegt.

Sonurinn að borða dreka með bestu lyst á kínastað ;) Varð smá misskilningur vegna myndar á matseðli.
Fyrsta daginn hélt Raggi að ég væri að ljúga þegar ég kíkti út og sagði honum að það væri hellidemba, en það ringdi bara til 11 og svo ekkert meira alla ferðina. Svo fórum við bara að versla helstu nauðsynjar og gleymdum okkur kannski aðeins í úrvalinu því við vorum eins og fávitar þegar við löbbuðum heim með allt góssið í 15 handónýtum plastpokum.

Svo fór fyrsta vikan bara í afslöppun á pallinum og í sundlauginni til skiptist. Keyptum líka stóra uppblásana sundlaug handa Gormi sem ég held að ég hafi eytt meiri tíma í en hann. Löbbuðum alltaf í bæinn á hverju kvöldi og fengum okkur að borða, kíktum í tívolíið sem er flottasta barna tívolí sem ég hef séð. Úrvalið af veitingastöðum í miðbænum hefði samt alveg mátt vera meira.

Þegar við vorum á áttunda degi sóttum við bílaleigubílinn og þá hófst ævintýrið fyrir alvöru. Við fórum t.d. að skoða Guadalest sem er pínulítið fjallaþorp fyrir ofan Benidorm þarf sem búa aðeins um 100 manns en þorpið er fullt af ferðamönnum frá morgni til kvölds allt sumarið. Útsýnið er alveg ótrúlegt úr bæjarvirkinu en bærinn er fullur af Máraminjum og söfnum.
Við kíktum einig til Cartagena sem er smáborg sem er full af söfnum og stríðsminjum, við komumst þó ekki yfir allt sem okkur langaði að skoða. Kastalinn var ótrúlegur og páfuglar í garðinum spilltu ekki fyrir.
Þá fórum við einnig í dýragarð þar sem Gormur fékk að halda á slöngu og stóð sig eins og hetja. Dýragarðurinn var ekki stór en Gormur var sáttur og það er fyrir öllu. Tókum líka einn hring í Alicante borg.

Gormur náði sér í svakalega sæta spænska kærustu á ströndinni.
Eftir tvær vikur í húsinu var komið að því að skila því af sér og keyra í sveitina. Við lögðum af stað um hádegi og vorum komin í Tuus um 4 sem var fyrsti áfangastaðurinn. Þar var útbúinn fyrir okkur þessi líka rosalegi „hádegismatur“ og komu svo allir að hitta okkur en þarna voru komnir saman afi hans Ragga, bróðir pabba hans og konan hans og börn. Tuus er dreifbýli en frændi Ragga, kona hans og fjölskylda hennar reka þar ferðaþjónustu fyrir Spánverja sem samanstendur af Hóteli, sundlaug og fjallakofum. Okkur var svo úthlutað einum fjallakofa sem við elskuðum. Á daginn vorum við oftast í sundlauginni en kíktum einnig til Yeste sem er næsti bær og í raun heimabær fjölskyldunnar þar sem frændi Ragga býr yfir veturinn með fjölskylduna og pabbi hans og systir pabba hans eiga einnig íbúðir í sama húsi. Þá var einhver rosaleg rokkhátíð rétt fyrir utna Yeste yfir helgina og við kíktum þangað á föstudaginn og fengum smá sýnishorn af Spænsku eðalrokki. Og já ég fór í mína fyrstu alvöru fjórhjólaferð. Ó man ég verð að eignast fjórhjól!!! Kannski ekki alveg jafn kraftmikið og Paco á því kvikindið komst endalaust hratt þegar hann spændi á því upp fjöllin.

Gormur að leggja í hann með Paco frænda
Eftir fjóra frábæra daga í fjallakofanum og matarboð bæði í „hádeginu“ og „kvöldmat“(hádegismatur var yfirleitt um 15 og kvöldmatur um 23) færðum við okkur enn um set og fórum í sveitina þar sem fyrir voru pabbi Ragga, bróðir hans (9 ára) og afi hans fór líka. Afinn á „sveitabæinn“ þar sem engin dýr eru en áður fyrr rækaði hann kanínur, ólívur og var með víngerð og búð. Nú býr hann þar stundum einn en er oftast hjá syni sínum og fjölskyldu í þorpinu. Húsið er risastórt með 10 svefnherbergjum með uppbúnum rúmum og af lyktinni á að dæma úr sumum þeirra hafa þau ekki verið opnuð svo mánuðum skiptir. Í sveitinni var rosalega rólegt og vorum við þar í 3 nætur og prufuðum að baða okkur í ánni og keyrðum um og tókum rölt og vildu allir bjóða okkur heim og allir voru mjög forvitnir um Ísland og okkur almennt.

Þegar við kvöddum sveitina á mánudagsmorgun skelltum við okkur í heimsókn til frænku hans Ragga til Albacete sem er borg með c.a. 170.000 íbúa og eyddum deginum þar og keyrðum svo til Benidorm að hitta tengdó og Arnar Daða mág. Það var rosalega gott að hitta þau og þessir 3 dagar liðu bara alltof fljótt, en við fórum t.d. á ströndina og í vatnsrennibrautagarð.

Þegar við komum svo útúr Leifstöð um 1.30 aðfaranótt föstudags hélt ég að ég myndi deyja úr kulda, samt hafði flugstjórinn sagt að það væru einhverjar 11° sem mér leist ekkert illa á á þeim tíma. Svo þegar við fórum í Bónus á föstudagsmorguninn fór Gormur á kostum þegar hann vældi á leið inní Bónus að hann hefði þurft að fara í vetrarúlpuna sína og heimtaði vettlinga hehe.

