fimmtudagur, júní 28 2007


Þær eru svo miklir femínistar að þær borða banana þversum!
skrifað @ 09:34 í [ Bloggið ]

Langaði bara að benda ykkur á að Dóri mágur tók að sér að blogga um útileguna um seinustu helgi og setja inn myndir :P Nánar á: Eldorado og myndir líka.

Svo var ég að opna myspace síðu eins og allir hinir, hefur reyndar verið til heillengi en var neydd til að koma henni í stand, nefnum engin nöfn. Endilega skoðið hér.
Kannski ég noti hana til að koma hæfileikum mínum í dúkahekli og barnafatasaumi á framfæri ;)

Tölvan mín er svo komin heim eftir 3,5 mánaða fjarveru og þvílikir fagnaðarfundir!



miðvikudagur, júní 27 2007


Grillveisla í Breiðuvík
skrifað @ 09:00 í [ Bloggið ]

Grilltímabilið í hámarki. Allir að grilla. Húsmæður gleðjast yfir því að þurfa ekki að standa yfir pottunum, því bóndinn sér um grillið. VEI!

Þannig gengur þetta fyrir sig:
Frúin verslar í matinn.
Frúin býr til salat, græjar grænmeti sem á að grilla, og býr til sósu.
Frúin undirbýr kjötið. Finnur til réttu kryddin, setur kjötið á bakka ásamt grilláhöldum.
Bóndinn situr við grillið, með bjór í annarri.

Lykilatriði:
Bóndinn setur kjötið á grillið!
Frúin fer inn, finnur til diska og hnífapör.
Frúin fer út, og segir bóndanum að kjötið sé að brenna.
Bóndinn þakkar henni fyrir, og biður hana um að koma með annan bjór á meðan hann tæklar ástandið.

Annað lykilatriði:
Bóndinn tekur kjötið af grillinu, og réttir frúnni.
Frúin leggur á borð. Diskar, hnífapör, sósur, salöt og annað meðlæti, ratar á borðið.
Eftir matinn gengur frúin frá öllu.

Mikilvægast af öllu:
Allir þakka BÓNDANUM fyrir matinn, og hversu vel HONUM tókst upp.
Bóndinn spyr frúna hvernig henni hafi líkað "frídagurinn"...
og eftir að hafa séð svipinn á henni, ákveður hann að það er ómögulegt að gera konum til geðs.



miðvikudagur, júní 20 2007


Breytingar
skrifað @ 11:54 í [ Bloggið ]

Á flakki mínu um netið undanfarna mánuði hef ég tekið eftir nýjum ritháttum á hinum ýmsu orðum.

Hér eru nokkur af uppáhöldunum mínum, en þessi hef ég séð oft og mörgum sinnum:

aldrey = aldrei
gegt = geðveikt
útileiga = útilega

og uppáhald no 1:

víst að = fyrst að (t.d. fyrst að hún vill ekki með)

null

Er alveg fylgjandi því að málið þróist en ekki að það afskræmist!



Við ætlum að skella okkur í "gega" "útileigu" um helgina "víst að" kvefið hefur skánað annars komumst við "aldrey"!
null

Hljómar vel ekki satt?



fimmtudagur, júní 14 2007


Fótbolta-Seasonið er byrjað
skrifað @ 13:11 í [ Bloggið ]

Ég finn það á lyktinni í þvottahúsinu!!!

Þið sem þjáist af karlmannsleysi eru velkomnar í þvottahúsið til að finna lyktina og komist örugglega að þeirri niðurstöðu að einveran er bara alls ekki svo slæm!!!

Eitt er samt mjög fyndið, í vetur var sambýlingurinn alltaf að sannfæra mig (eða sjálfan sig) að boltasparkið yrði mjög lítið í sumar ef það yrði nokkuð. Svo í vor var hann alltaf "aukamaður" í vinnubolta hjá Ívari. Svo var ákveðið að strákar úr gamla liðinu myndu vera með í Carlsberg-deildinni sem er eiginlega svona utan-utandeild. Engar æfingar, bara leikir. Svo var hann farinn að vera auka maður í hinum og þessum utandeildarliðum í æfingaleikjum og svo er hann bara allt í einu farinn að spila alla leiki með liðinu hans Ívars sem heitir Hómer, btw ekki vinnuboltinn sko! Svo í gær þá byrjaði vinnubolti í vinnunni hans. Veit ekki alveg hvort að hann var að reyna að sannfæra mig eða sjálfan sig. Ekki misskilja mig, mér finnst frábært að hann hreyfir sig. Svo framanlega ef ég fæ ekki símtöl frá brósa eða vinum hans af slysó eins og svo oft áður.

En endielga komið og finnið lyktina!!!

Að öðru. Við litla fjölskyldan höfum boðið okkur fram í að vera stuðningsfjölskylda fyrir flóttamanna fjölskyldu sem kemur hingað í haust, enda er kominn tími til að láta e-ð gott af sér leiða. Þar að auki verður fjölskyldan spænskumælandi og við reiknum með að þetta verði þroskandi fyrir alla aðila, vonandi höfum við e-ð að bjóða ;)

Smá mont í loki:

Stubbur safnaði sér límmiðum á veggspjald fyrir að koma ekki uppí á nóttunni. Hann skipti svo límmiðunum út fyrir hlaupahjól, hann pantaði reyndar "Batman"-hlaupahjól en hann er þekktur fyrir ákveðnar skoðanir og er ekki ólíkur móður sinni að því leiti að hann ákveður að hann langi í e-ð sem ekki fæst í búðum og einhvern veginn þarf að "mixa". Ég rakst svo á þetta líka fína Spider-man hlaupahjól og sættir náðust ;)

Hér er hann þegar hann heimtaði mynd af sér á hjólinu.

null

Þessi litli gaur er alveg ótrúlegur, við höfum svolítið verið að taka hann á hrósinu í stað þess að vera alltaf að skamma. Hann hefur auðvitað launað það tvöfalt til baka, hér eru dæmi:

"Mamma! Þú ert rosalega dugleg að ganga frá eftir matinn"
"Mamma! Þú ert sæt!"
"Mamma! Þú ert rosalega sterk, næstum jafn sterk og pabbi!" (eftir að ég hélt á risagrillinu hans pabba með gamla niður 3 hæðir, án þess að blása úr nös (NOT))
"Mamma! Þú ert best í heimi!



miðvikudagur, júní 06 2007


ARG............................
skrifað @ 10:30 í [ Bloggið ]

Í morgun ákvað ég að ég væri að flytja til Spánar!!!
Ætla í dag að tjékka á því hvað gámurinn kostar og ákveða hvort ég ætla að leigja eða selja íbúðina.
Bless allir sem ég næ ekki að kveðja :P




Raggi neitar samt að svara á MSN hvort að hann er að koma með. Ég er komin með svo mikið ógeð á þessu skítaveðri.




Ætla að eyða deginum undir sæng í náttfötunum með skólabækurnar.


KRISTRÚN og SIGGA, ef þið kommentið þá.......

Verð ég farin áður en þið komið heim, múhahaha