Seint í gærkvöldi horfði ég á heimildarmynd um þjóðarmorðin (eða þjóðarhreinsun eins og það heitir víst) í Rwanda. Ég var svo reið að ég gat ekki sofnað og þegar aumingja Raggi vaknaði í morgun þá lét ég dæluna ganga og á tímabili var hann bara orðinn hræddur.
Ég vil í fyrsta lagi benda þeim sem ekki hafa séð Hotel Rwanda að skella sér útá leigu og næla í hana. Hún lýsir vel því sem gekk á í Rwanda 1994, og heimsbyggðin hundsaði.

En í heimildarmyndinni í gær var Kanadískum hershöfðingja að nafni Romeo Dallaire fylgt eftir í heimsókn sinni til Rwanda árið 2004, en hann var yfirmaður friðargæslunnu Sameinuðu Þjóðanna þegar ósköpin dundu yfir. Áhugasamir geta nælt sér í þessa bók eftir hann. Þar segir hann frá veru sinni í Rwanda og eftirköstunum en hann varð veikur vegna ástandsins og þjáist af áfallastreituröskun, þunglyndi og fleiru. Auk þess sem hann þjáist af samviskubiti vegna þess að hafa ekki gert meira, en það er ekki mikið sem einn maður gat gert.

En einnig er hægt að lesa um sögu Rwanda hér á Wikipedia.
Allavegana...............
Það sem gerði mig svona reiða var að einhvern veginn var ég viss um að flótti SÞ og afskiptaleysi Vesturveldanna hefði verið ýktur í Hotel Rwanda, en nei svo var ekki.

Þeir bara gerðu ekki JACK-ASS til að afstýra þessu og flúðu með lið sitt sem ekki hafði verið mikið í upphafi. Þeim var bent á hvað væri í vændum en ákváðu að aðhafast ekkert.
Aðrar þjóðir sendu herflugvélar til að smala útlendingum og HVÍTA MANNINUM útúr landinu. Sögðu svo við fólkið sem grét í þeim að þeir yrðu bara að greiða úr þessu sjálf. Til að vinna verkið komu þúsundir erlendra hermanna í landið en þeir gerðu ekkert nema að koma sínum eigin ríkisborgurum úr landi.
Mig langaði til þess að öskra. Þar sem Belgar báru ábyrð á þessum endalausu borgarastyrjöldum og aðskilnaði á Tutsi- og Hutus-mönnum. Það gerðu Belgar á nýlendutímanum með því að mæla erfðafræðilega þætti eins og höfðuð- og nefastærð og skylda íbúa Rwanda til að bera alltaf á sér skilríki sem tilgreindu hvorum hópnum þau tilheyrðu, enda munurinn víst ekki auðsjáanlegur.
Þá er einnig talið að Kaþólsa kirkjan hafi haft tækifæri til að stoppa þessi voðaverk með því að blanda sér í málið enda eru Hutu-menn strangtrúaðir og fara í einu og öllu eftir því sem kirkjan boðar. En það gerði hún ekki heldur lokaði augunum og með því samþykkti hún þessar þjóðar”hreinsanir”.

Vesturlönd gerðu heldur ekkert og Bill Clinton og fleiri hafa afsakað sig með því að segja að þeir hafi ekki haft hugmynd um ástandið. Öllum var bara DRULLUSAMA því í Rwanda býr svartimaðurinn og þar er ekki olía eða annað sem við getum ekki verið án.
Á nákvæmlega sama tíma horfði heimsbyggðin agndofa á réttarhöldin yfir OJ Simpson og fjölmiðlafárið í kringum það. Kanadíski hershöfðinginn reyndi hvað hann gat til að vekja athygli ráðamanna í vesturheimi og almennings á ástandinu með því að veita símaviðtöl en enginn hlustaði.
Kanadíski hershöfðinginn hefur verið mikið gagnrýndur fyrir það að 10 belgískir friðargæsluliðar féllu. Sorry ég bara verð að fá að hlæja aðeins............... Þessir 10 belgísku friðargæsluliðar skipta auðvitað meira máli en eitthvað um milljón líf Tutsa og frjálslyndra Hutua (sem einnig voru felldir af hersveitum Hutu-manna eða nágrönnum sínum) . Enda hafa þessir 10 friðargæsluliðar fengið sérstakan minningarreit á meðan a.m.k. milljón hvílir í fjöldagröfum, þ.e. ef þeir eru svo heppnir.

Mínar spurningar er því þessar:
Hvers vegna var Romeo Dallaire sendur til Rwanda með lið ef hann hafði í raun EKKERT hlutverk?
Berum við í Vesturheimi ekki ábyrð á bræðrum okkar í Afríku og annarsstaðar, sérstaklega þar sem nýðst var á þeim og þeir arðrændir á nýlendutímabilinu?
Skipta sum mannslíf meira máli en önnur???
Veit einhver hvað er nákvæmlega að gerast í Darfur núna eða er öllum sama???
Eru SÞ bara eitthvað punt?
Og hversvegna fær eitt barnshvarf á læknisdóttur í Evrópu svona mikla umfjöllun, er það vegna þess að líf eru misverðmæt? Eða er það vegna þess að ALLT er pólitík???
Maður bara spyr sig!!!
fimmtudagur, maí 31 2007
Mannslíf sama og mannslíf???
skrifað @ 20:20 í [ Bloggið ]
sunnudagur, maí 27 2007
Allar einkunnir komnar í hús
skrifað @ 08:12 í [ Bloggið ]
Nú eru allar einkunnir komnar í hús og er ég MJÖG sátt, fékk meira að segja tvær 9-ur :D
Svo er ég bara á fullu að undirbúa BA-ritgerðarskrif og er að ná að þrengja mig niður en efnið er FJÖLMENNING hvað annað ;)
Það er bara tæp vika í að árgangurinn minn, eða allavegana nokkrir úr honum ætli að hittast hér í Breiðuvík og grilla. Ég hlakka mikið til.
Svo bara verð ég að segja ykkur!!! Sigga mín kemur að heimsækja mig í sumar, vá hvað ég hef saknað hennar. Ég held að hún hafi líka saknað mín því hún er alltaf að reyna að fá mig til að flytja til sín til Phoenix.
Svo styttist í Spán, bara 5 vikur til stefnu!!!
Þannig að það verður sko nóg að gera í sumar
föstudagur, maí 18 2007
Sagan um álfinn
skrifað @ 14:25 í [ Bloggið ]
Í tilefni þess að það er föstudagur langar mig að deila með ykkur sögu.
Sagan er af vini mínum sem sagði mér þessa sögu fyrir nokkru af sjálfum sér og vona ég að honum sé sama að ég deili henni með ykkur. Þeir sem þekkja mig og hann vel fatta um leið af hverjum sagan er.
Þessi vinur minn er mörgum kostum búinn, en það verður að segjast eins og er að enskukunnátta er ekki einn af þeim. Hann á fyrirtæki og hefur eins og svo margir aðrir nokkra útlendinga í vinnu hjá sér.
Eitt kvöldið var hann að hringja í starfsmennina og segja þeim að morgunin eftir ættu þeir að mæta til vinnu í álverið í Straumsvík til að vinna verk.
Þegar kom að símtalinu í einn af erlendu starfsmönnunum þurfti hann auðvitað að leiðbeina manninum á staðinn.
Þá fattaði hann að hann hafði ekki hugmynd um það hvernig maður segði álver á ensku svo að hann reyndi að segja við hann:
-You drive through Hafnarfjörður and there you will see a very big house and we will be working there.
Þetta fannst starfsmanninum ekki nægjanlega góðar leiðbeiningar og vildi fá betri útskýringu á því hvernig húsi hann væri að leita að.
Þegar honum var ljóst að very very big house outside Hafnarfjörður væru ekki nógu góðar leiðbeiningar kallaði í kærustuna sína sem var að brasa inni í þvottahúsi.
-Hvernig segir maður álver á ensku?
Þar sem kærastan var langt í burtu og heyrði ekki vel í honum, kallaði hún á móti.
-Fairy!!!
Vinurinn reyndi því að byrja upp á nýtt á leiðbeiningunum og sagði:
-Yes, You drive through Hafnarförður and there you will see a FAIRY!!!
Starfsmaðurinn hváði við og spurði
-Did you say a FAIRY???
Yes á very big FAIRY!!!
Starfsmaðurinn var orðinn nokkuð ringlaður og spurði hvers vegna í ósköpunum hann ætti að sjá ÁLF rétt fyrir utan Hafnarfjörð, en vinurinn sem var orðin nokkuð pirraður á þessu skilningsleysi í manninum sagði
-Af því að hann er þar!!!
.jpg)
Svona gekk þetta í nokkra stund og strafsmaðurinn orðinn enn ringlaðri og æstur og vinurinn varð bara pirraðri og pirraðri.
Hann kallar því aftur á kærustuna sem var enn í þvottahúsinu og segir henni að maðurinn sé bara ekki að skilja hann.
Kallar hún þá á móti:
-Prufaðu að segja ELF!!!
Vinurinn byrjar því upp á nýtt og segir hægt og rólega tvisvar sinnum.
-You drive through Harfnarfjördur and there you will see a very big ELF!!!
Um leið og hann sagði þetta lúshægt í seinna skiptið var eins og eldingu væri laustið í hausinn á honum og kallaði í kærustuna:
-Af hverju í andskotanum ertu að láta mig segja ÁLFUR!!!
Kærastan hafði s.s. ekki heyrt almennilega hvað hann var að spyrja um og hélt að hann væri að reyna að segja ÁLFUR á ensku.

Góða helgi!!!
mánudagur, maí 14 2007
Vúhú ég græddi heilan dag!
skrifað @ 08:41 í [ Bloggið ]
Seinni partinn í gær var ég að tala við Ragga um það hvenær Ívar ætti að fara í próf og fattaði þá að það er aðeins 14. maí í dag og því á ég ekki að skila ritgerðinni í dag heldur á morgun! Ég sem er vön að missa úr heilu dagana græddi bara heilan dag. Þvílík hamingja!!! Svona verður maður CRAZY í stressi.
.jpg)
föstudagur, maí 11 2007
There should be a holiday for girls like me!!!
skrifað @ 10:39 í [ Bloggið ]
Hef ekkert að segja vegna anna en ákvað að deila með ykkur nokkrum gullmolum frá Gormi
A: Mamma ert þú eldgömul???
M: Uhhh nei ég er bara 25!!!
A: Já! eldgömul.
A: Flytur Kristín líka?
M: Jájá auðvitað.
A: En kexið???
M: *fliss* já já hún tekur kexið örugglega með sér
A: Hún er besta vinkona mín
Gormur hafði mestar áhyggjur af því að konan í afgreiðslunni myndi líka flytja með vinnunni hans Ragga því hún á alltaf kex.
A: Mamma!!! Hvar er guli bíllinn minn?
M: Ég veit það ekki þú verður bara að leita (ekki það að hann kunni það frekar en pabbi sinn)
A: Ohhhh ég finn hann ekki! Ásta hefur bara borðað hann!!!
Líklegasta skýringin þar sem það er alltaf verið að forða öllu smádóti frá bleika skrímslinu.
A: Ég ætla sko ekki að bjóða þér út að borða!!!
Þetta segir hann núna þegar við erum ekki sammála um eitthvað, er greinilega búinn að komast að því að móðgunarfrasinn: "Ég er ekki að leika við þig". Er ekki að duga á mig.
.jpg)
Gormur í sýndartölvuleik á svölunum.
föstudagur, maí 04 2007
Hvað ætlaru að verða þegar þú verður stór?
skrifað @ 20:05 í [ Bloggið ]
Ég man fyrst eftir að hafa sagst ætla að bjarga heiminum.
Þegar ég var spurð, hafði ég ekki hugmynd um frá hverju.
Svo vildi ég verða smiður, hárgreiðslukona, lögga, listakona, félagsráðgjafi eða eiga eigið fyrirtæki svo eitthvað sé nefnt.
Nú er ég hins vegar komin í hring og hef ákveðið að ÉG ætli að BJARGA heiminum, veit bara ekkert frá hverju svo allar uppástungur eru vel þegnar.