laugardagur, mars 31 2007


Opið bréf til Péturs Blöndal
skrifað @ 14:17 í [ Bloggið ]

Sæll Pétur!

Ætlaru að segja mér að Stefán Ólafsson hafi rangt fyrir sér?

Ég sá þessa konu niðri í bæ í rifnum fötum með allt sem hún á í plastpoka!





null

Eigið góða helgi :D



miðvikudagur, mars 21 2007


Ást er: að sofa öll í sama rúmi
skrifað @ 13:44 í [ Bloggið ]

Ef ég hef ekki hringt í þig seinustu daga þá er það ekki rétt hjá þér, ég er perrinn sem andar alltaf í símann og þú ert búinn að sækja um nálgunarbann á!!! Ég bara get ekkert að þessu gert það hefur bara ekki komið hljóð upúr mér síðan um helgina!

Ég er í síðbúnum hádegismat þessa stundina að horfa á beina útsendingu frá sænska þinginu. Hljómar spennandi ekki satt??? Það er það nefnilega. Það vakti athygli mína að þeir eru með tvö púlt, þar sem þeir þingmenn sem takast á standa í sitthvorri. Er reyndar ekki mjög sleip í sænskunni en fannst eins og önnur þingkonan hafi verið með fyrirspurn til hinnar sem er þá væntanlega ráðherra. Það vakti líka áhuga minn hvað þeir sitja í þægilegum stólum en samt er salurinn nánast tómur eins og hér á Íslandi. Það sem ég var samt ennþá meira að spá í var að ætli þeir séu með svona klæðaburðarreglur eins og við hér? Kannski þær eigi ekki við konur þar frekar en hér sem er auðvitað bara misrétti! Allavegana var þingkonan í bleikum blettatígurs gallajakka uppí í pontu, Þorgerður Katrín hefur nú alveg átt sín móment en kræst!

Gormurinn er eitt af þeim börnum sem koma uppí og erum við alveg að fá nóg af því sérstaklega eftir seinasta útspil hans og félaga hans sem heita Viddi og Bósi Ljósár Geimlögga.
null



miðvikudagur, mars 14 2007


Til hamingju ég!!!!
skrifað @ 14:32 í [ Bloggið ]

Neðar




Neðar




Neðar



Neðar



Nei nei það er ekkert að mér sko, finna bara ekki svona drazl til að minnka myndina í Ragga tölvu og mín er hjá lækni ;)

Þetta er sem sagt nýji bíllinn okkar, Honda Accord sport 2006. Bíll sem mig hefur dreymt um lengi. Minnir að ég hafi meira að segja bloggað um það í janúar 2006.

Gormur er reyndar ekki ánægður með hann því hann langaði í GULAN SENDIFERÐARBÍL!



null



þriðjudagur, mars 13 2007


PETER PATRELLI
skrifað @ 09:39 í [ Bloggið ]

U can save me anyTIME!!!

null

Það er eitthvað óeðlilega hot og kunnuglegt við karl-hjúkkuna Peter Patrelli.

Milo Ventimiglia eins og hann heitir lék líka ógisslega hot gaur í Gilmore Girls!



föstudagur, mars 09 2007


Hrós vikunnar.....
skrifað @ 14:36 í [ Bloggið ]

Fær Anna Rós Ívarsdóttir NOT!!!

Fyrir að gera mig húkt á dýrasta brauðáleggi sem ég get hugsað mér að kaupa!

Smyrjið brauðir með ólívuolíu, piprið, setjið vel þroskað avakadó á brauðið ásamt tómötum, basilikum, mossarella og hráskinku.
Svo notiði auðvitað speltbrauð því það er svo out að borða hvítt hveiti ;)

*slef*

Ekki senda mér reikninginn samt.

Þess má geta að vinningshafi vikunnar hefur ekki látið ná í sig í dag til að taka við skömmunum en fær þær væntanlega á næstu dögum, ef ekki frá mér þá frá fjármálaráðherra Breiðuvíkur.

null

Matarklúbbur á morgun, ætla samt ekki að hafa samlokur.



miðvikudagur, mars 07 2007


Klöppum fyrir stelpunni sem kann ekki að ljúga.....
skrifað @ 12:35 í [ Bloggið ]

Ég er öll að koma til eftir vonbrigði seinustu viku :D

Incubus voru bara ágætir, var samt næstum sofnuð í vasaljósagjörningnum.
Skora svo á alla sem ekki sáu Kasljósið á mánudaginn að kíkja á það. Ætla ekkert að fara að ausa útúr mér einhverju kanahatri, en.... ég grét og er sjokkeruð. Ég veit að þeir trúa ekki á betrun heldur aðeins refsingu, sem mætti kannski bara kalla sálarmorð og fjöldaframleiðslu á verri glæpamönnum. Ég vona bara að Simmi hafi knúsað manninn vel og lengi á eftir.

Undarlegir atburðir hafa átt sér stað í Breiðuvíkinni undanfarið. Á fimmtudaginn var bankað uppá og fyrir utan stóð helvítisdjöfulsinsógeðist njósnari frá RÚV. Fattaði reyndar ekki erindi hans strax því hann var kona, með mann með sér sem virtist vera þroskaheftur. Mér hafði verið sagt að þeir væru miðaldra karlar í gráum frökkum!!! Allavegana, hún vatt sér bara beint að efninu og spurði hvort að ég væri Ólafía, ég játaði og þá dúndraði hún framan í mig með bros á vör: "ertu með sjónvarp eða útvarpstæki?" Ég fölnaði og stamaði, horfði á hana og á gólfið til skiptist og kom svo með eitt niðurbælt "uhh já". Svo er maður bara látinn kvitta og simmsalabimms þú færð svo rukkun á næstu mánuðum. Já farðu bara í RASSGAT!!! Það eru bara tvö ár í að afnotagjöldin verði lögð niður. Ég sem horfi bara á Kastljósið á RÚV og kann ekki að ljúga!

Svo í fyrrinótt vaknaði Raggi við einhver læti. Sem ég reyndar heyrði ekki en hvatti hann til að fara fram að athuga. Hann fann enga innbrotsþjófa, eld eða neitt svoleiðis svo að við fórum aftur að sofa. Svo um morguninn kallar hann af baðinu: "Olla! Hvað er þetta i baðinu?" Ég sagðist hafa séð þetta áðan og héldi að þetta væri eitthvað drazl frá Gormi. Fer svo inn á bað og í sameiningu sjáum við að baðkarið okkar er brotið!!! Það voru víst lætin um nóttina :S Glerungurinn er bara farinn af á stórum bletti.

Svo langar mig að fá svar við 4 spurningum í lokin:

Er það satt að maður fái gyllinæð ef maður notar hitann í bílsætunum of mikið???
Eru tvíburar með eins fingraför og sama DNA???
Er í alvörunni asnalegt að segja "svita-rollon"?
Og eru það eðlilegir viðskiptahættir að maður geti tekið frá bíl á bílasölu í viku???

Þakka áheyrnina.





fimmtudagur, mars 01 2007


Viku útlegð
skrifað @ 10:06 í [ Bloggið ]

Hef ekki verið mjög dugleg seinustu vikuna að blogga. Hef bara ekki haft frá neinu að segja.

Við Gormur vorum heima í viku því hann fékk þessa ógeðslegu flensu og er enn að ná sér. Í nótt sváfum við Raggi næstum óslitið en það gerðist seinast sunnudaginn í seinustu viku!!!

Við Aron Elí héldum svo upp á afmælið hans með góðri hjálp fjölskyldu minnar, love U all!!! Ragginn var fjarverandi af óviðráðanlegum ástæðum ;)

Próftaflan er komin, lítur vel út
Er búin að sækja um leiðbeinanda fyrir BA-ritgerðina og negla niður efni svona nokkurn veginn.
Eitthvað tengt innflytjendum

Smá brandari í lokin:

Þegar Gormur var búinn að vera veikur í rúma viku ákvað ég að láta kíkja á hann hjá lækni því hann svaf ekkert á nóttunni. Ég gat ekki fengið tíma hjá okkar lækni svo að konan bauð mér annann sem ég þáði. Þegar við komum í afgreiðsluna var ég með Gorminn í fanginu, er sko orðin helmössuð á að burðast með þessi 16 kg í viku ;) og segi: Þetta er Aron Elí að koma að hitta Ulrik. Borga svo og við fáum okkur sæti. Gormur sat mjög rólegur allan tímann og fylgdist vel með hurðinni inn á læknaganginn. Svo kallaði þessi ungi myndarlegi maður á Aron Elí og við lögðum af stað inn ganginn. Gormur vildi ekkert horfa á lækninn og var að mér fannst að reyna að skríða inn í mig. Sem er mjög furðulegt því hann er alls ekki hræddur við lækna og gerir allt sem þeir biðja hann um. Læknirinn sem er útlenskur var að reyna að fá hann til að urra eins og ljón og segja honum frá stelpunni sinni, en Gormur var bara eins og frosinn. Allavegana náði læknirinn að skoða hann loksins og gaf honum svo límmiða og þá þiðnaði hann svolítið. Við þökkuðum svo fyrir okkur og gengum út. Þá segir Gormur frekar hneykslaður: Mamma, þetta var ekkert ÚLFUR!!! Þá hafði aumingja barnið haldið að mamma hans væri að fara með hann að hitta úlf og hann sem er SVO hræddur við úlfa hehehe.