Í dag er Gormurinn 3ja ára!!!
Hann fékk man.utd búning no 8 með ættarnafninu aftan á og Puma-skó.
Hann var svo ánægður að hann sagði þegar hann var að máta góssið: “Mamma, þetta er æðislegt!” Fyndið að heyra hann nota orð í fyrsta skiptið.
Við á leið á Selfoss
Árshátíðin var mjög skemmtileg og var flugferðarþema. Flugfreyjurnar fóru á kostum og leituðu á fólki og hentu prufum af snyrtivörum yfir okkur. Ég fékk t.d. fulla körfu af möskurum yfir mig, sem vakti mikla kátínu hjá borðfélögunum. Svo var hið vinsæla paraball haldið á hótelinu og var búið að segja okkur að þetta væri skemmtilegasta ball ársins. OMG vil ekki mæta á hin þá :S
P.s. Raggi ég keypti handa þér Acinton, þú veist til hvers ;)
p.s.s.Til ykkar allra sem hafið verið að hringja og senda SMS vegna þess að við séum flækt í Nígeríska svikamyllu, ÉG VAR AÐ DJÓKA!!!!
mánudagur, febrúar 19 2007
Afmæli no 3
skrifað @ 12:36 í [ Bloggið ]
fimmtudagur, febrúar 15 2007
Olla Bolla
skrifað @ 15:30 í [ Bloggið ]
Fékk óstjórnlega löngun til þess að blogga meðan ég borða fyrstu rjómabollu þessarar vertíðar :P
Reyndar er hún ekkert spes, með einhverjum slimy búðing. Ohh mamma setur aldrei svoleiðis, en þetta var seinasta bollan í bakaríinu.
Komst svo að því áðan að helvítis auðkennislykillinn minn er ónýtur!!! Hefur kannski farið í fýlu af því að ég er búin að blóta þessu drasli svo mikið. Krappíólí!!!
Í gær var mér boðið á svaka date. Reyndar ekki vegna Valentínusardagsins því við höldum ekki uppá hann, heldur hittist þetta bara svona á. Raggi tók sér frí í vinnunni og bauð mér í Baðstofuna í Laugum, út að borða á VOX og svo í Kringluna að versla......... Ótrúlega gaman.
Annars er stefnan tekin á hnakkabælið Selfoss um helgina á árshátíð Creditinfo Group. Erum meira að segja að spá í að kíkja á Draugasetrið í leiðinni og eitthvað fleira.
Svo erum við búin að bæta Benidorm inní ferðaplanið í sumar :D Vonandi verðum við ekki mjög ofarlega á þessu hóteli sem við höfum bókað í tvær nætur með tengdó :S

þriðjudagur, febrúar 13 2007
Risaeðlan
skrifað @ 16:41 í [ Bloggið ]
Hingað í Breiðuvíkina virðist vera flutt risaeðla.
Þessi risaeðla hefur verið að gera okkur lífið leitt undanfarnar vikur og er farin að færa sig talsvert uppá skaftið. Hún á það nefnilega til að fikta í tölvunni minni þegar ég sé ekki til og rusla til í herberginu hans Gorms og ýmislegt fleira virðist vera þessari risaeðlu, sem ekki er komin með nafn, að kenna. Ég hef ekki enn hitt risaeðluna en Gormur segir mér stöðugt að hún sé til og hún sé alltaf að gera eitthvað af sér. Segjum sem svo að þvotturinn sem ég var að brjóta saman sé allt í einu kominn í hrúgu á gólfið þegar ég kem inn í stofu og spyr: Bíddu??? Hvað er eiginlega í gangi hér? Þá segir Gormur: Það var ekki ég, uhhhh það var bara risaeðlan.

Svo í gær fékk ég nú bara nóg af þessari risaeðlu sem hafði víst sagt Gormi, eftir að ég fór fram eftir að hafa lesið fyrir hann bók, að hann þyrfti ekki að fara að sofa. Ég var nýkomin fram og kallaði þá Gormur í mig og sagði mér að risaeðlan hefði verið fyrir utan og sagt honum að hann þyrfti ekkert að fara að sofa. Þá fékk mamman nóg og reif upp gardínuna og kallaði út í myrkrið að þessi risaeðla ætti ekkert að vera að skrökva svona því hér í Breiðuvík ræður mamma!!! Gormurinn varð svolítið hissa á svipinn og ég fór fram aftur og einu sinni enn kallaði Einar Áskell, en í þetta skiptið til að segja mér að risaeðlan hefði komið aftur en hann hefði sko sagt henni að mamma stjórnar hér í Breiðuvík, ekki risaeðlan og það væri bannað að skrökva og hún fór víst svo bara aftur.
Ég vona bara að þessi risaeðla fari ekki að koma hér á hverju kvöldi að bulla svona í barninu.
Hér er svo ein mynd af mömmunni hér í lokin sem "risaeðlan" tók á símann sem pabbinn á og hún er alltaf að stela til þess að taka myndir með ;)
þriðjudagur, febrúar 06 2007
Sjúkdómafræði 101
skrifað @ 17:42 í [ Bloggið ]
Ég verð að viðurkenna eitt!!!
Ég er ekki bara astma-sjúklingur í afneitun,
heldur er ég líka sykursjúk á sérfæði :(
Hef aldrei sagt neinum frá því.
Þetta felst í því að ég er sjúk í sykur (og ég elska salt) og þarf að borða allt sem ég sé!!!
Nei án djóks þá er ég fársjúk af einni pest sem heitir:
ÉG GERI ÞAÐ Á MORGUN!!!
mánudagur, febrúar 05 2007
Sokkaskrímslið ógurlega!!!
skrifað @ 16:36 í [ Bloggið ]
Shit hvað ég var orðin geðveik á því að vera alltaf sokkalaus og alltaf að þurfa að vera að þvo þvottinn til þess að eiga sokka fyrir morgundaginn. Kannski hefði verið gáfulegt að kaupa bara fleiri. En..... ég er nýbúin að því og skildi ekkert í því hvert allir sokkarnir mínir höfðu farið. Ég var farin að halda að sokkaskrímsli ógurlega væri alvörunni til.

Í gær leystist svo ráðgátan og nú á Olla litla 30 pör af sokkum :D
Sambýlingurinn var sökudólgurinn, hann hefur greinilega haft þann háttinn á þau c.a. 6 skipti sem hann hefur brotið saman þvottinn síðan við fluttum hingað um seinustu páska, að setja sokkana mína í hrúgu með sokkum sem eru ósamstæðir og þar var komið þetta þvílíka fjall!!! Ætla að spyrja á eftir hvert hann setji naríurnar mínar sem hann dömpar örugglega einhverstaðar af því að hann er ekki viss um hvernig á að brjóta þær saman ;)