Ég tók ekki bílpróf fyrr en ég var orðin 18 ára af þeirri einföldu staðreynd að við Raggi áttum engan bíl svo að ég hafði engann bíl til þess að keyra. Til þess að ýta á eftir mér að taka prófið og vegna þess að það var ómögulegt fyrir okkur að vera bíllaus ákváðum við að kaupa okkur bíl saman. Við fréttum af einum frúarbíl sem við gátum fengið á 30 þúsund. Við fórum og skoðuðum og leist afsakaplega illa á enda var bíllinn af gerðinni Lancia árgerð 1988. Einn kunningi minn hafi átt svona bíl og mér hafði alltaf fundist hann afspyrnu ljótur. Það varð þó úr að við keyptum bílinn og ég kláraði að taka bílprófið til þess að geta keyrt kaggann sem ég átti 50% í. Ég man vel eftir seinasta ökutímanum þegar ökukennarinn var að bjóða mér að taka með mér rúnt á dollunni því að það væri auðvitað allt annað að keyra svona haug en glænýjan Benz. Ég afþakkaði boðið enda treysti ég Ragga vel til verksins og þá sagði ökukennarinn við mig að ég gerði mér grein fyrir því að ef ég myndi lenda í árekstri á ÞESSU myndi bíllinn minna á kókdós sem stigið hafi verið á. Eftir þessu lifði ég svo á ferðum mínum á bílnum.
Ljótleiki bílsins var eitthvað sem vinahópurinn gat endalaust skemmt sér yfir en þó voru sumir öfundsjúkur útaf sætunum sem voru í bílnum en þau voru skærblá FILA sæti!
Einu sinni festumst ég og vinkona mín ;) inni í bílnum. Við höfðum keyrt nokkuð lengi með miðstöðina á fullu og þegar við ætluðum útúr bílnum gátum við ekki opnað því handföngin svignuðu alltaf eins og gúmmí og við bara gátum ekki opnað. Eftir að hafa legið í hláturskasti fastar í bílnum í nokkurn tíma fyrir utan Flétturimann hringdi ég í Ragga og bað hann að koma út að opna fyrir okkur. Hann hló og sagði, skrúfaðu bara niður gluggann og opnaðu þannig. Vá hvað ég er mikil ljóska hugsaði ég híhí.
Lancian var ekki með sjálfvirku innsogi sem gerði fólki erfitt fyrir að fá bílinn lánaðann en okkur fannst það ekkert mál og það var líka ágætt að sleppa við að þurfa að lána drossíuna. Bíllinn átti til að bila svolítið mikið en það góða var að það kostaði aldrei mikið að gera við hann, eitt var í ólagi alveg frá upphafi og það voru bremsurna og þær var ekki hægt að laga. Bremsan gekk alveg niður í gólf og þurfti maður að pumpa hana nokkrum sinnum þangað til hún tók við sér og fór versnandi. Nokkrum dögum áður en við seldum hann keyrði ég Ragga í vinnuna upp á Höfða og ætlaði svo í skólann, sú ferð mín endaði næstum því niðri í sjó því helvítis bíllinn bremsaði ekki neitt þrátt fyrir 20 pump á bremsuna. Við þetta varð ég ótrúlega hrædd og keyrði druzluna upp í Flétturima, fór inn og hringdi í Raggann og öskraði á hann í geðshræringunni að hann gæti troðið þessari bíldruzlu uppí rassgatið á sér og að hann mætti eiga minn hlut í henni og ég myndi aldrei keyra þessa druzlu aftur, að sjálfsögðu hágrenjandi. Ég jafnaði mig að lokum og labbaði í skólann en bílnum ók ég aldrei aftur. Við náðum að eiga bílinn í c.a. ár og seldum hann svo loks fyrir sömu upphæð og við höfðum keypt hann á, eftir að búið var að lappa uppá hann nokkrum sinnum. Við sáum hann svo stundum fyrir utan hjá vini hans Ragga með barnabílstól í og það fór alltaf um okkur hrollur.
Svona líta þessir bílar úr, þessi er reyndar að mér sýnist talsvert yngri en okkar var og okkar var reyndar "hvítur" og hrikalega ryðgaður!
sunnudagur, janúar 28 2007
Fyrsti bílinn
skrifað @ 08:28 í [ Bloggið ]
sunnudagur, janúar 21 2007
Klappað og klárt
skrifað @ 09:53 í [ Bloggið ]
Þetta erum við búin að panta í tvær vikur í sumar :D
Förum út 9 júlí og komum heim 2. ágúst sem gera rúmlega 3 vikur!!!
Verðum með þetta hús í tvær vikur í Torrevieja og förum svo að heimsækja langa-afa Herreros og afgangin af Herreros famelíunni í rúma viku og keyra um meginlandið.
Í fréttum um helgina var sagt frá því að fólk hefði setið fast í stólalyftum í Bláfjöllum á föstudaginn vegna rafmagnsleysis. Þetta kallaði fram minningar af eigin reynslu. Ég var s.s. 8 ára á Andrésar Andarleikunum og var búin að keppa og ætlaði að skjótast eina ferð í stólalyftuna sem var auðvitað hrikalega spennó þar sem það gafst bara tækifæri einu sinni á ári til að prufa svoleiðis. Allavegana þá brast á þetta líka klikkaða veður og vírarnir fóru útaf sporinu þegar stólinn átti c.a. tvö möstur eftir. Þarna sátum við Rakel Jónasar fastar þar sem hæðin niður var mest í að mig minnir hátt í 4 klukkutíma og á meðan sveiflaðist stóllinn það mikið að við vorum orðnar hálf sjóveikar. Margir spekingar komu þarna að og ráðgerðu ýmis plön um það hvernig ætti að koma okkur niður sem voru misgáfuleg verð ég að segja. Ég man svo vel eftir því þegar okkur var sagt að sparka af okkur skíðunum svo að það færi vel um okkur, sem reyndar gerði mig bara óöruggari, að ég hugsaði vonandi brotna þessi ógeðslegau skíði!!! Málið var að þetta voru notuð skíði, blá Rossignol skíði sem Gísli Már hafði átt og ég skammaðist mín fyrir. Þegar björgunarsveitin kom loks að ná í okkur vorum við rosalega ánægðar með okkur því öllum fannst við hafa verið svo duglegar, enda vorum við bara 8 ára. Við höfðum frá miklu að segja þegar við komum í skíðaskálann og um kvöldið vorum við kallaðar upp og fengum verðlaun fyrir dugnaðinn. Þetta var á sömu Andrésar Andarleikunum og Óli Valtýr fótbrotnaði, man það mjög vel því hann vildi nota sína styttu sem öskubakka!!! Sömu Andrésar Andarleikar og ég fann Metallica spólu sem var svikin af mér, sömu leikar og ég fór í fyrstaskiptið á pall, sömu og Árni Geir laug að mér að ef ég borðaði fleiri en 10 sykurpúða myndi ég sofna!!! Takk frændi, ég trúði þessu í mörg ár. Svo voru þetta sömu leikar og ég sá stórustrákana BTW þá 12 ára slumma stelpurnar bless sem þeir höfðu kynnst yfir þessa 4. daga og öll rútan horfði á, man að mér fannst þetta frekar ógeðslegt............................
Þetta var það skemmtilegasta sem maður gerði, alltaf fullt af ævintýrum í þessum ferðum og þeim fjölgaði bara eftir því sem að maður varð eldri ;) Einu sinni eignaðist ég meira að segja kærasta frá Ólafsfirði...... án þess að vita af því, fórum margar ferðir að kíkja á Gubba frá Húsavík sem allar stelpurnar voru skotnar í, versluðum í Sigga Gúmm, Pabbi kom einu sinni öllum vinkonum mínum til þess að grenja yfir draugasögu sem þær vildi endilega að hann segði þeim en ég ráðlegði þeim að hlusta ekki því hann væri svo mikið kvikindi. Hamagangurinn var svo rosalegur að hann braut stólinn sem hann sat á og svo gerðum við auðvitað at í öllum búðum á Akureyri. Okkur fannst við vera rosalega fyndnar þegar okkur var boðin aðstoð í bakaríinu en sögðumst bara vera að skoða eða þá þegar við þóttumst vera að leita að afmælisgjöf í herrafataverslun sem hét/heitir held ég JMA eða eitthvað svoleiðis, afmælisgjöfin var ekki af verri endanum.... jakkaföt á 10 ára grisling. Svona vorum við rosalega fyndnar!
föstudagur, janúar 19 2007
Helgin að bresta á!!!
skrifað @ 12:57 í [ Bloggið ]
Vá hvað ég er eitthvað leiðinlegur bloggari þessa dagana, þið megið bara þakka fyrir það að ég skuli ekki segja ykkur hvað ég borðaði í morgunmat. Ohhhh nú eruði orðin forvitin.... það var hafragrautur.
Fínt að frétta af okkur hér The Herreros family, Stubbur er reyndar að fá jaxla, er kvefaður og þurfti endilega að renna sér á grindverk í gær þannig að hann beit næstum í gegnum vörina sína. Hann er því frekar óhamingjusamur en nær nú samt að láta okkur hlægja þegar hann tekur nýjasta stuntið, en það felst í því að þykjast ekki geta staðið upp og minna leikrænutilburðirnir á Ítalskaboltann.
Ég var að spá.... mig langar svo að hitta markaðsstjóra Hreyfingar og heilsa uppá hann. Þessi maður/kona hlýtur bara að teljast snillingur. Ætlaði eiginlega ekkert að stafa þetta en jú þetta er kaldhæðni dauðans.
Eftir að hafa mætt einu sinni í viku í mánuð færðu gsm-ól. Get ekki annað en hlegið, þetta var eitthvað sem öll 13 ára börn voru með 2004. Svo ef maður mætir einu sinni í viku í tvo mánuði þá fær maður að mig minni handklæði merkt Hreyfingu, ohhh eins og mann vanti enn eitt merkta handklæðið. Við hér erum allavegana að drukkna í handklæðum. Að seinustu fær maður merkta íþróttatösku eftir að hafa mætt einu sinni í viku í 3 mánuði!!! Já þá myndum við hér eiga eina merkta tösku í viðbót við þessa frá Öryggismiðistöðinni, ISS, Securitas, Creditinfo group auk fleiri ómerktum. Áfram svo allir í Hreyfingu þó svo að það væri nú ekki nema til þess að græða þessa eðal hluti ;) Einn heppinn fær kannski límiðamerkingar á bílinn sinn múhahaha.
Allar einkunnir eru komnar í hús og er ég bara nokkuð sátt enda með yfir 8 í meðal einkunn fyrir önnina! Svo erum við búin að finna okkur sumarhús á Spáni ohhh ég hlakka svo til og verður ferðin pöntuð í dag....
Varð svo fræg að sjá glefsur úr myndbandinu fræga í gær, ég vil helst ekki ræða þetta og held ég þurfi áfallahjálp... hef reyndar lært svolítið í sálrænni skyndihjálp í skólanum svo að ég ætla að nota þessa helgi í að vinna úr þessari reynslu og enda þá meðferð svo á að sjá Skoppu og Skrítlu á sunnudaginn og nei ég vil ekki ræða þetta og þið fáið mig ekki til að lýsa þessu fyrir ykkur ég verð aldrei söm.......... Góða helgi lille ven!
þriðjudagur, janúar 16 2007
Halló!!!
skrifað @ 17:29 í [ Bloggið ]
Þið verðið bara að afsaka þetta bloggleysi en ég hef bara ekki viljað færa þessa mynd af bróður mínum að blása í rassinn á kind neðar, alveg priceless!!!
Þá er skólaskrattinn byrjaður einu sinni og ef allt gegnur upp er þetta mín seinasta önn, eða sko allavegana í BA-námi ;) Skýrist allt betur á næstu dögum. Er búin að mæta í tvö fög og eru bæði mjög spennó hugsa samt að ég þurfi aðeins að hressa uppá félagsfræðina því það hefur fallið eitthvert ryk yfir Durkheim og Weber- þekkingu mína, en þessi heilsufélagsfræði er eiginlega allt öðruvísi en ég bjóst við, sem er gott. Hitt er fjölmenning og vita flestir um áhuga minn á þeim málefnum og hvaðan hann kemur.
Svo erum við á að leita okkur að sumarhúsi á Spáni næsta sumar og maður er bara byrjaður á fullu í ræktinni því fyrst ég komst ekki í kjólinn fyrir jólin skal ég komast í bikiní fyrir sumarið.
Seinustu daga hef ég verið frekar mikið utan við mig, fattaði t.d. eftir c.a. 20 mín í morgun í Laugum að ég var í sömu buxum og ég var í í gær þegar ég skrúbbaði sturtuklefann. Þær voru s.s. allar útí hvítum klessum af ræstikremi!
mánudagur, janúar 01 2007
Til hamingju með nýja árið!
skrifað @ 17:01 í [ Bloggið ]
Nú er við hæfi að gera upp árið 2006.
Eftirfarandi gerðist í réttri röð:
Aron Elí varð 2ja ára
Við keyptum bílinn
Við keyptum íbúð í Breiðuvík
Við seldum íbúðina á Dyngjuvegi
Við eyddum páskunum í að mála og kaupa húsgögn
Við fluttum
Ég fór í próf
Ég vann hjá TR um sumarið
Við fórum í sumarbústað í viku
Ég kvaddi Siggu Maju sem flutti til USA
Aron Elí byrjaði á nýja leikskólanum
Ég kvaddi Kristrúnu sem fór í skóla til DK
Ég varð 25 ára
Ég byrjaði aftur í skólanum
Ég fór í stelpuferð til DK með mömmu og Önnu Rós
Við tókum baðið í gegn
Ég fór í verkefnavinnu og próf
Og við héldum jól
Og auðvitað margt margt fleira......
-*-*-*-*-*-
Mig langaði svo að deila þessari mynd með ykkur af mínum ástkæra bróður sem Dóri tók á aðfangadag. Ég er sko búin að hlæja í allan dag.
