Á morgun verður þetta blogg 1. árs og verður einni "Bettí Krokker" hent í ofninn af því tilefni og eru allir velkomnir!

En í kvöld er líka veisla því Hilmar Trausti mágur minn var að útskrifast og er veisla heima hjá tengdó í kvöld :D Við hér í Breiðuvíkinni óskum Hilla til hamingju með áfangann og lögguhúfuna eins og frændi hans sagði og auðvitað einnig til hamingju með samninginn við Keflavík. Hér er svo viðtal við kauða ef þið hafið áhuga.
Jólin eru búin að vera rosalega fín og fengum við fullt fullt af pökkum og allir rosalega sáttir.
Setningu jólanna á svo Gormur: Mamma ég vill ekki svona trefil, ég er ekki snjókall!!!

föstudagur, desember 29 2006
Og veisluhöldin halda áfram :S
skrifað @ 15:25 í [ Bloggið ]
laugardagur, desember 23 2006
Gleðilega jól
skrifað @ 19:51 í [ Bloggið ]
Gleðileg jól öll sömul
Jólin alveg að fara að bresta á, fór FÁRVEIK í próf, skatan í hádeginu og kallinn minn verður 27 ára á morgun og í gær vorum við búin að vera saman í 8 ár!!!
Jólakortin klikkuðu í ár og þeir sem við vitum netfangið hjá fengu rafræn þetta árið, því miður. En þeir sem vilja fá myndina geta fengið svoleiðis þegar og ef þær skila sér.
Jólakveðja úr Breiðuvík
mánudagur, desember 11 2006
Helgarfléttan
skrifað @ 12:08 í [ Bloggið ]
Helgin var fín eins og alltaf
Á föstudaginn sníktum við mat og rauðvín hjá tengdó.
Á laugardaginn birtust Kristrún og Ísabella hér á tröppunum hjá okkur, mörgum dögum á undan áætlun. Jeminn hvað ég var ánægð að sjá þær. Aron Elí var rosalega ánægður með að sjá Ísabellu loksins aftur þó svo að hún væri með glóðurauga, rispuð, með sína útgáfu af klippingu og með hálfa augabrún!
Um kvöldið kom svo Rakel að sækja mig í þessu líka klikkaða veðri og við fórum í partý þar sem hin heilaga ferning var sameinuð.
Í gærmorgun vaknaði ég ógeðslega þunn!!! En náði að sofna aftur og svaf til 11 og vaknaði hrikalega hress og fersk og setti upp jólaseríur og alles. Svo var haldið á jólahlaðborð á Hótel Borg og stubbur svaf hjá ömmu, Svenna og Hlyni í nótt. Maturinn var klikkaður og ég át yfir mig af kengúru, shit hvað hún var góð. Smakkaði ekki hangikjötið, hamborgarhrygginn, lambið eða brúnaðar kartöflur, þetta er eitthvað sem maður á eftir að éta öllu jólin sem styttist víst óðum í.
Og ég gleymdi bara að læra alla helgina!!! Æj so what.
Ég er samt farin að hlakka pínu til jólanna og sjá gorminn opna pakkana, kíkja í skóinn, fara á jólaball og sjá flugeldana. Hann er nú þegar búin að láta taka mynd af sér með Sveinka og skilur hana ekki við sig.
Það þarf ekki mikið til að skemmta manni í prófalesri. Ég sá í morgun að húsvörður í Mosfellsbæ heitir Vörður!!!
Vörður húsvörður!!! Pælið í að velja sér starf við hæfi.
Farin að lesa!
miðvikudagur, desember 06 2006
Jáhá það er sko flott að kúka heima hjá okkur núna!
skrifað @ 15:02 í [ Bloggið ]
Verkefnavinnan gengur bara ágætlega og er planið að henni ljúki um helgina og þá fer ég að kúra uppi í rúmi að lesa sem verður bara notalegt. Eina prófið mitt er þann 21 desember og ég kvíði því ekkert enda nægur tími til stefnu.
Við erum búin að setja eina jólakúlu með ljósi inní í eldhúsgluggan og jólaandinn að færast smám saman yfir. Aðventuljósið vildi samt ekki í gang og ég finn ekki jólaseríurnar og ég var orðin frekar pirripú en þá tók Gormur sig til og skellti aðventuljósinu í gólfið og fékk auðvitað reiðilesturinn yfir sig þangað til ég sá að við þetta hafði kvikindi hrokkið í lag híhí kannski ég sendi hann niður í geymslu að leita að seríunum.
Baðherbergið er náttúrlega allt að smella saman og þeir sem vilja sjá er velkomið að koma í heimsókn.
En að fyrirsögninni....
Gormur sat á klósettinu í gær og var að hlusta á móður sína dásama nýju innréttinguna og sagði: á ég að segja konunum á morgun að það er flott að kúka heima hjá okkur? Já maður segir það bara eins og það er þegar maður er ekki orðinn 3ja ára!