Að það er til nammi sem heitir Olla???

Að það er til hljómsveit sem heitir Olla?

Að þessi myndarlegi hermaður heitir Silvio Olla?

Að mig langar rosalega til að lesa þessa bók!

Og líka þessa... örugglega einhverskonar Ollu-skyndihjálp

Að þessi padda heitir Olla?

Að ég varð eiginlega hálfhrædd þegar ég sá þetta?

Að þessi strönd á spáni heitir Playa Olla?

Að ég verð að eignast svona úr sem heitir Alessandra Olla

Að þessi kirkja heitir: Olla United Methodist Church

Að það er til bær í Bandaríkjunum sem heitir Olla???

Ég verð að komast þangað einhvern daginn, ætli ég fengi ekki konunglegar móttökur???
Þessi fróðleikur var í boði herra Google
fimmtudagur, nóvember 30 2006
Vissuði...
skrifað @ 15:33 í [ Bloggið ]
sunnudagur, nóvember 26 2006
Blessarrr.....
skrifað @ 21:27 í [ Bloggið ]
Helginni var eytt í lærdóm þar sem við skötuhjúin erum bæði að fara í próf og ég er í massa verkefnaskilum.
Við eiturhress á laugardagsmorguninn, eða allavegana ég :D
Svo fórum við Gormur að mála piparkökur á leikskólanum og buðum múttu og Hlyni með.
Hinn listamaðurinn með svaka grettu sem átti að vera bros fyrir stórusystur.
Mamman eins og hún sé full og Gormurinn að athuga hvort hann geti gert eins og Óli Símon ;)
Og afraksturinn........
Áðan vorum við eða sko "iðnaðarmaðurinn" að rífa niður vaskinn og spegilinn af baðinu. Það er ekki að ástæðulausu að kerfisstjórinn þurfi smið með sér á morgun. Jæja byrjum söguna. Hann náði s.s. speglinum af veggnum eftir að hafa fengið smá ábendingu frá mér, allt í lagi með það. En svo var það vaskurinn jú jú hann fór af á endanum. Fyrst sagði hann "æj mig vantar svona verkfæri til að geta skrúfað þetta, veit bara ekkert hvað það heitir" (var þá að meina til að skrúfa vatnslásinn af). Ég: "hmmm meinaru svona "væsgrip-töng""? Hann: "já örugglega, á ekki pabbi þinn svoleiðis?" Ég: "jújú en af hverju prufaru ekki bara að skrúfa þetta af með tusku?" Hann: "já sniðugt." Fer og nær í tusku. Hann: "er ekki betra að hafa hana blauta?" Og reynir að skrúfa frá krananum sem hann hafði sagt mér fyrir tveim mínútum að hann hefði tekið vatnið af, og ég hló. Til að gera langa sögu stuttu þá fór helvítis vatnslásinn af á endanum og eins og allir vita er alltaf vatn í honum og hvert haldiði að vatnið hafi farið??? Nú auðvitað beint í vaskinn!!!! Ég grét úr hlátri. Sumir búnir að lesa aðeins of mikið af Bill Gates bókum um helgina.
Þorði að setja þessa sögu inn af honum hér því ef mér verður hent úr rúmin þá vorum við að taka svefnsófa í pössun svo að það á ekki eftir að væsa um mig.
"Bubbi byggir held nú það"
Annars erum við bara eiturhress hér í Breiðuvíkinni og ætlum að setja baðinnréttinguna og nýja spegilinn upp á morgun ef að Byko hefur ekki klúðrað einhverju á morgun eins og undanfarna viku........
Jæja farin að læra, ekki veitir af.
fimmtudagur, nóvember 23 2006
Ísland best í heimi?
skrifað @ 15:18 í [ Bloggið ]
Greinilega orðin "vinsæl" í Bretlandi líka!
fimmtudagur, nóvember 16 2006
Já það er gaman að vera ég!
skrifað @ 19:52 í [ Bloggið ]

Ég er með tvö risastór bein undir tungunni.
Ég borða hamborgara alltaf á hvolfi.
Ég get sprautað munnvatni með munnvatnskirtlinum hátt í tvo metra.
Mér hafa verið lesin réttindi mín af rannsóknarlögreglumanni.
Annað eyrað á mér er álfaeyra.
Mig hefur alltaf langað til að verða lögga.
Ég keyri næstum aldrei í myrkri vegna hræðilegrar náttblindu.
Pælið í því hvað það er gaman að vera ég!
Er á leiðinni á morgun út að borða sushi

og á Footlose!
þriðjudagur, nóvember 14 2006
Ekkert annað en 100 %
skrifað @ 15:14 í [ Bloggið ]
Ég var að spá.
Undanfarið hefur hraðinn í þessu þjóðfélagi okkar farið eitthvað ótrúlega í taugarnar á mér.
Maður hefur heyrt að fólk hverfi af vinnumarkaðinum vegna þess að það þolir ekki þennan hraða sem er að tröllríða öllu. Vegna skorts á vinnuafli hefði maður haldið að auðvelt ætti að vera að fá hlutastarf, þe vinna "aðeins" hálfann daginn eða til tvö. Hins vegar virðist það ekki vera í boði hjá atvinnurekendum.
Undanfarið hef ég þurft að réttlæta það að ég sé "aðeins" í 75% námi þessa önn og margir spyrja hvar ég sé að vinna á móti!!! Reyndar er ég ekki í 75% námi sjálfviljug en finnst þetta líka bara alveg nóg. Eins hefur fólk orðið hissa þegar ég segi að ég sjái ekki fram á það að ég eigi eftir að vera í 100% vinnu þegar ég er búin með skólann, enda á ég mann sem er í miklu meira en fullu starfi og ég sé ekki að það minnki eitthvað. Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að það hafa ekki allir efni á að hugsa svona. Vissuði að íslendingar vinna mest af öllum á norðurlöndum og þá sérstaklega konurnar og við eigum flest börn á haus!!!

Ég er með kenningu. Þetta er allt saman tilkomin vegna þess að ALLIR eiga að vinna!
Allir eiga að eiga starfsframa.
Allir eiga að eiga börn.
Og allir eiga að vera í 100% vinnu eða námi hvort sem þeir kæra sig um eða ekki.
Eða ÞURFA!
Vissuði líka að öryrkjar eiga erfitt með að komast aftur út á vinnumarkaðinn af því að þeir treysta sér oft ekki í fullt starf strax heldur vilja byrja rólega og bæta svo við sig, en það er bara ekki í boði.
Sá um daginn í Dr. Phil að þar voru tveir hópar að rífast, annar samanstóð af heimavinnandi mæðrum og hinn af útivinnanndi mæðrum. Þetta voru sko ógeðslega fyndnar umræður og ég grenjaði úr hlátri á hlaupabrettinu. Útivinnandi mæður vanrækja börnin sín og þau verða glæpamenn sagði ein og önnur sagði heimavinnandi mæður ekki nenna að vinna. Þetta er auðvitað ekki svona svart eða hvítt.
Mömmur og eflaust pabbar eru endalaust með móral yfir því að vera ekki heima með börnin sín og svo líka með móral þegar þau eru heima, hvers vegna???
Svona til að enda þetta, þá þekki ég einn pabba sem vinnur hálfan daginn á móti konunni sinni. Get alveg ímyndað mér að hann sé orðinn þreyttur á að þurfa alltaf að vera að réttlæta sig við aðra, miðað við viðbrögðin sem maður hefur fengið frá öðrum þegar maður segir frá þessu.
Erum við e.t.v. uppfull af fordómum?
Ég held að við ættum að leyfa fólki að hafa það eins og það vill og hætta að dæma aðra því að ég held að fólk viti sjálft hvað er því fyrir bestu.
Vá hvað ég er eitthvað mikill nöldrari í dag.
föstudagur, nóvember 10 2006
Bara svona af því að ég hef ekkert að gera
skrifað @ 08:38 í [ Bloggið ]
1.Do you still talk with the person you LAST kissed?
Uhh já. Hef reyndar ekki talað við hann síðan ég kyssti hann síðast, enda bara 20 mín síðan
2. Have you ever seen your best friend naked?
Já
3. Do you like more than one person right now?
Já mér líkar auðvitað við marga, í meiningunni "skotin" Nei
4. What was the last thing you ate?
Hafragrautur í morgunmat
5. Did you get any compliments today?
Ekki í morgun nei, mörg í gærkvöldi ;) En best var í gær þegar gormur sagði að mamma kynni að keyra en ekki pabbi múhahaha.
6. Where are you going on your next vacation?
Í sumar ætla ég í sólina á Spáni
7. Are most of your friends guys or girls?
Uhh átti einu sinni eiginlega bara strákavini, en stelpurnar eru að hafa vinninginn
8. Do you know how many stars and stripes are on the U.S. flag?
50 stjörnur og hmmmm örugglega 12 eða 13 rendur
10. If you could have one superpower what would it be?
Myndi vilja geta verið á mörgum stöðum í einu
11. Where have you lived most of your life?
Siglufirði staðan er 15/10
12. Why is the sky blue?
Vegna endurkasts ljóss af rykögnum í himingeiminum :S
13. When was the last time you took a long drive?
Það veit ég ekki, keyrði í Haust á Þingvelli
14. What is your least favorite sound?
Barnsgrátur á nóttunni
15. Are you moody?
Jebb
16. What is your most favorite movie of all time?
Boondock saints
17. Have you ever done anything hurtful to a classmate?
Já, hver man ekki eftir matsóman!!!
18. Have you ever played Spin the Bottle?
Já
19. Have you ever toilet papered someone's house?
Nei, aldrei
21. Have you ever gone to a nude beach?
Nei það hef ég ekki gert
22. Have you ever gone streaking?
Nei, læt aðra um það
23. Have you ever had a stalker?
Ó já, það var scary lífsreynsla á tímabili
24. Have you ever gone skinny dipping?
Nei, en ég hef brotist inn í sundlaug. Fær maður stig fyrir það?
25. How many hours a day do you watch TV?
Við skulum bara segja alltof alltof mikið
26. Have you ever been in love?
Já
27. Why are you taking this survey?
Af því að ég er að bíða eftir því að tíminn byrji og hafði ekkert betra að gera
28. Last restaurant you ate at?
Fór Subway með Raggoz í mán, kannski ekkialveg veitingahús
29. Who was the last person who called you?
Pabbi hringdi í gærkvöldi meðan ég var í búðinni
uss hvað þetta var boring!
Góða helgi allesammen, veit að mín er allavegana vel plönuð :D
fimmtudagur, nóvember 09 2006
Fjölmenning í Reykjavík
skrifað @ 10:30 í [ Bloggið ]
Fyrir þá sem hafa áhuga, þá er hér fallegasta, gáfaðasta og besta mamma í heimi í viðtali í Kastljósinu (á eftir félagsráðgjafanum).
Mamma leikskólastjóri Fellaborgar hér.
Svona á að gera þetta!!! Meiri jákvæðar umræður og lausnir, já takk!
miðvikudagur, nóvember 08 2006
Frjálslyndiflokkurinn ekki svo frjálslyndur???
skrifað @ 09:39 í [ Bloggið ]
Djöfull er ég farin að pæla mikið í pólitík hehe, greinilegt að kosningar eru á næsta leiti.
Umræðan er þörf en...................
Ég þoli ekki:
Þegar það er talað um ÞETTA fólk.
Þegar það er talað um erlent vinnuafl, eins og þetta séu vélar.
Að einn hópur sé tekinn út, frekar en annar.
Skyndihjálparnámskeiðið var frábært, verst að maðurinn sem sat við hliðina á mér geispaði full mikið ;)
Námskeiðið var miðað sérstaklega að börnum s.s. slysum, og lærðum við ýmislegt gagnlegt. Ég fór svo út í apótek og keypti sjúkrakassa því plástur er það eina sem hefur verið til á heimilinu til þessa.
Þetta kemur nú ekkert sérstaklega mikið á óvart
Raggoz kom svo heim í gær með þjóðverja sem er að setja upp einhverja svakalega fína tækni í vinnunni hans. Ég varð mér víst ekki til skammar þó svo að ég hafi náð að renna niður tveimur bjórum áður en þeir komu til að lækna skjálftann hehe. Þetta var samt bara fínt, kallinn var hress og kátur. Ragginn er nefnilega kominn með meiri ábyrgð í vinnunni þar sem hann er orðinn verkefnastjóri tölvudeildar plús auðvitað kerfisstjóri. Hann er meira að segja farinn að mæta í skyrtu í vinnuna kallinn.
mánudagur, nóvember 06 2006
Nýjasta tíska
skrifað @ 11:33 í [ Bloggið ]
Nýjasta tíska virðist vera rasismi!!!
Það hræðir mig. Hef aldrei verið jafn hrædd við neina tískubólu, ekki einu sinni e-töflur.
Helgin var fín þrátt fyrir að söknuður dauðans sé að ásækja mig!!!
Fékk humar og hvítvín á föstudagskvöldið.
Langaði út en sofnaði um 9 og sárvorkenndi sjálfri mér að bæði Sigga Maja og Kristrún búa í útlöndum.
Fann fyrir söknuðinum sem aldrei fyrr og meira að segja súkkulaði læknaði ekki sársaukann. Og nú er ég farin að tárast. Best að tala um eitthvað annað.
Ég má víst ekki minnast á klósett í þessari færslu, hehe. Við fórum því að leita að nýrri innréttingu á BAÐHERBERGIÐ á laugardeginum (sagði ekki klósett) og sturtuhurð. Það gekk fínt, erum búin að negla þetta alltsaman, nema sturtuhurðina fundum bara eina með einhverjum geðveikum 80's röndum, ekki alveg að gera sig sko. Fórum á KFC í hádeginu og enn sat ég og vorkenndi mér *snökt*. Svo komu Rakel, Garðar og Aldís Ylfa í kaffi og þá hætti ég að vorkenna mér. Krúttin léku sér saman allan tímann og það vær unun að horfa á þau skiptast á dóti og tala saman. Svo mættu Ívar og Karen á svæðið og borðuðu hjá okkur. Drukkum nokkra bjóra og höfðum það huggulegt. Á sunnudeginum fékk ég að sofa út, eða sko til 9.30 hehe já það kallast að sofa út. Svo var matur hjá ömmu hans Ragga og náði hún að gleðja mitt litla hjarta með að hafa tvær uppáhaldkjöttegundirnar mínar í einni máltíð, kjúllabringur og blæðandi naut. Kláruðum svo Prison Break, djös snilld eru þessir þættir mar.
Já og bara fyrir þig bauninn minn, þá er ég farin að fljóta.

Í kvöld er svo stefnan tekin á skyndihjálparnámskeið, og ég hlakka mikið til.