mánudagur, október 30 2006


Hrós helgarinnar hlýtur...............
skrifað @ 07:41 í [ Bloggið ]

.......................klósettið í Breiðuvíkinni

null

Fyrir að vera þarfasti þjónninn.


Helgin fór s.s. allt allt öðruvísi en í fyrstu var planað, eða aðallega í að slást um klósettið.

Setningu helgarinnar á hins vegar Hlynur bróðir (2,5 ára) þegar hann var kominn með nóg af því að móðir hans héngi ofan í klósettskálinni og vildi fara í göngutúr og stóð með kuldaskóna við útidyrahurðina en mútta vildi leggja sig: "ég er kominn með nóg af þessari vitleysu!!!"

Já gubbupestin fór víða um helgina!



föstudagur, október 27 2006


Tattoo-vera
skrifað @ 12:51 í [ Bloggið ]

Jebb, hvað gerir maður þegar manni finnst maður vera að drukkna í verkefnum???

Jú svarið er auðvitað, EKKI NEITT!!!

..............nema fara í Laugar í tvo tíma, borða mjög hægt þegar heim er komið, lesa Fréttablaðið í ræmur (sem minnir mig á það að ég á Birtu og Blaðið enn eftir), horfir á tvo þætti af Nágrönnum, fara blogghring og endar svo á því að blogga.
Og þetta læknar alveg stressið, NOT!

Allavegana, fer á eftir á fyrirlestur sem tengist rannsókn sem ég er að gera. Mjög spennó allt saman. Ætla svo að halda náttfatapartý með múttu, stóru systur og börnum á morgun. Karlarnir verða nefnilega ekki heima þessa helgina. Vegna "veiðiferðar", eða sko Raggi og Dóri, Svenni er í Finnlandi að leita að Múmínálfunum.

Sendi Siggu póst í gær vegna þess að hún átti afmæli og fékk svar í nótt. Allt gott að frétta og hún orðinn húseigandi og að byrja í masternum og alles. Hún bað að heilsa öllum og væntanlega ykkur líka.


Endum þetta á broti úr koddahjali úr Breiðuvíkinni:

"Þegar við eignumst stelpu, eigum við þá að láta hana heita Veru?" "Uh... nei eða ekki, ef hún fær sér tattoo þá verður hún kölluð Tattoo-vera"

(Tattoo)-Vera Ragnarsdóttir Herreros, þegar hún er orðin stór
null



fimmtudagur, október 26 2006


Líður eiginlega svona
skrifað @ 11:12 í [ Bloggið ]

null



fimmtudagur, október 19 2006


Og allt í einu vorum við bara farin að veiða hvali!!!???
skrifað @ 13:27 í [ Bloggið ]

Segi nú ekki annað.

Hlakka til að fá kallinn minn heim á morgun, eftir tæprar viku dvöl í Úkraínu.
Hann er víst orðinn að klakastykki, hehe.
Hann er náttúrulega sannur Íslendingur og hlustaði ekki á ráðleggingar um hlý föt.
"Hey man i'm icelandic!" En borgarstjórinn er víst ekki búinn að kveikja á kyndingunni í Kænugarði.
Múhahahaha.

Eins og þið munið kannski eftir þá var hann þar fyrir mánuði líka og þá sýndi ég ykkur mynd af holu á skrifstofunni hans sem þeir kalla víst klósett.

Nú hefur hann verið að segja mér frá því að þetta er ekki eina undarlega við klósettmenningu þessarar þjóðar, maður þarf víst að fara í búðina og kaupa sér klósettpappír og handsápu ef maður þarf að fara að "tefla við páfann" SAY WHAT???






föstudagur, október 13 2006


Obbosí!!!
skrifað @ 15:08 í [ Bloggið ]

Hildur Vala í viðtali: Svo verð ég bara að ráða annan píanóleikara svo að Jón geti verið heima að PASSA á meðan ég plögga plötuna.

Að stelpa sem rétt er orðin tvítug skuli segja svona er alveg hreint ótrúlegt!!!

Þarf nokkuð að ræða þetta einu sinni enn???



þriðjudagur, október 10 2006


Haustferð mæðgnanna 2006
skrifað @ 11:50 í [ Bloggið ]

Fimmtudagur
Vöknuðum kl 5.00
Sáum Take That í Leifstöð
Þorðum ekki að taka mynd af þeim
Gleymdum okkur í fríhöfninni
Náðum ekki að borða
Vorum með þeim seinustu inní vél
Fórum upp á hótel
Sem var mjög fínt, enda 4ra stjörnu
“The bellboys” voru hrikalega sætir
Fórum í Fisketorvet, versluðum svolítið
Fórum svo heim á hótel að sofa snemma
Auluðumst til að fikta í mini-barnum
Hann var gjaldfærði allt sem var fært til sjálfkrafa

Föstudagur
Fórum í Field’s og vorum þar allan daginn, vegna rigningar
Fórum á Sushi stað, það var geðveikt.
Hlógum og drukkum frameftir.
Einn sá besti matur sem ég hef smakkað
En skrítið að sitja á borði með öðrum furðufuglum
Sem maður BTW þekkir ekki neitt

Laugardagur
Fórum á Strikið
Hitti Alla, Sibbu og Einar á röltina :)
Rífandi stemmari vegna leiks Dana og N-Íra
Hálfgerð verlsunarmannastemning í Nýhöfn og Strikinu
Gleymdum okkur á veitingastað
Röltum um og skoðuðum og höfðum það kósý
Fórum og borðuðum geðveikan indverskan mat
Þjóninn var sá besti sem ég hef hitt
Fórum á alvöru scottish-bar með trúbador og alles

Sunnudagur
Fórum í ennþá fleiri búðir
Svo í sightseeing með heyrnatól í eyrunum
Ógeðslega gaman, sá fullt sem ég sá ekki seinast
Röltum um og drukkum í okkur menninguna og bjórinn
Og enduðum á Jensens steikhúsinu
Urðuðm reyndar fyrir pínu vonbrigðum
En nautið var gott og nánast baulaði
Alveg eins og ég vil hafa það
Lentum svo á einhverjum rugluðum leigubílsstjóra
Hann hafði mikinn áhuga á því hvort að við værum giftar
Hélt að við værum ríkar
Anna laug að honum að við ættum Magasin

Mánudagur
Fengum morgunmat í rúmið
Pökkuðum og tjékkuðum okkur út
Fórum á bæjarrölt
Áttum svo flug kl. 23.40
Sem við komumst með naumindum í
Vegna þess að starfsmenn Kastrup sendu okkur út og suður
Kellingarbeyglu í tjékkinninu.
Vegna Tax-free og vegna 25 kg yfirvigtar sem átti að kosta 30.þús
Sem ég átti BTW ekki. Bara svo það sé á hreinu
Þetta slapp samt fyrir horn, með naumindum þó

Það var gott að komast í sturtu og upp í sitt eigið rúm
Fékk svo kaldar táslur uppí til mín um 5 leitið.
Það var svo gott!!! Og þvílíkt knús sem ég fékk.

Kallarnir mínir höfðu greinilega saknað mín
Og voru ánægðir með gjafirnar sínar
Og auðvitað ég líka með það sem ég keypti mér

En nú tekur raunveruleikinn aftur við.
Eftir frábæra 5 daga í Köben er maður samt ekki alveg til

p.s. ekki rukka mig um myndir :S



mánudagur, október 02 2006


Hvað skal segja
skrifað @ 10:18 í [ Bloggið ]

Ástæða þessa bloggleysis er einfaldlega sú að ég hef ekki haft neitt að segja.

Köben á fimmtudaginn!!!
Fyrirliðinn óðum að jafna sig eftir aðgerðina og ég er ekki hans sérlegi einkabílstjóri lengur, sem betur fer, þarf ég að segja meira???
Skólinn gengur bara vel, er samt einhvern vegin ekki komin í gírinn.
Spennandi námskeið en kannski heldur mikið um vettvangsferðir.
Er með hálsbólgu.
Sakna Siggu Maju og Kristrúnar óendanlega :'(
Er strax orðin kvíðinn fyrir BA ritgerðinni eftir áramót :S
Barnið bað mig um lítinn bróður í afmælisgjöf

Ástandið verður væntanlega SVONA bráðum.





Um daginn drap msnið mitt sig og ég þurfti að fá mér nýtt á olla@raggoz.com
Það vantar ennþá fullt af fólki inn sem ég hélt ég hefði sett inn. Endilega addið mér aftur og svo líka hinir sem þekkja mig.