Í gær las ég uppskrift í blaðinu.
Í henni var lífrænt ræktað nachos!!!

Getur einhver sagt mér hvernig í andskotanum það er ræktað???
Vex það á trjám eða???
fimmtudagur, september 21 2006
Jahérna
skrifað @ 17:26 í [ Bloggið ]
föstudagur, september 15 2006
Mikið er ég fegin að ég fór ekki mað Ragga til Úkraínu
skrifað @ 18:59 í [ Bloggið ]
Held að það sé vandasamt að hitta í holuna!!!
*GUBB*
Góða helgi
miðvikudagur, september 13 2006
Boten Anna
skrifað @ 13:48 í [ Bloggið ]
Bara fyrir Ívar ;*(með texta)
Það er bara byrjað að spila þetta í útvarpinu og alles.
Þetta festist í hausnum á mér í nokkra daga um daginn, smitaði meira að segja drenginn!!!
mánudagur, september 11 2006
Opið bréf til fyrirliðans
skrifað @ 12:20 í [ Bloggið ]
Elsku Raggi
Ég lokaði ekki fataskápshurðinni minni áður en ég fór að sofa, hún var opin í alla nótt!
Veistu hvað???
Það gerðist ekki neitt, það var bara allt við það sama í morgun ;)
Ég gleymdi líka að slökkva forstofuljósið áður en ég fór að sofa,
og viti menn, það gerðist ekki neitt.
Svo ég gleymi alltaf að láta gorm pissa á miðnætti og veistu hvað????
Það gerist ekki neitt heldur!!!
Þú verður að drífa þig heim áður en ég kemst að fleirum svona samsærum!!!
Hafðu það gott í Úkraínu og ég bið að heilsa Ruslönu.
Kveðja Olla (sem er að reyna að telja sér trú um að það sé gott að vera án þín)
p.s. í nótt ætla ég að prufa að fara að sofa með ruslatunnuna fulla!!!
fimmtudagur, september 07 2006
Pabbi minn er víst prinsessa sagði barnið
skrifað @ 13:45 í [ Bloggið ]
Jabb
Það er sko aldeilis mikið um að vera. Raggoz flaug til Amsterdam í morgun til þess að fara á sýningu. Hann hitti víst megnið af Íslenska landsliðinu (sé hann alveg fyrir mér, eins og kallinn í auglýsingunni múhahahah). Svo er ferð hans heitið til Úkraínu gott fólk. Þetta ferðalag hans á eftir að taka 10 daga, úfff.......... Svo ákváðu Anna og Dóri að stinga af til Kanarí svo að þau sæti ekki uppi með okkur Aron Elí. Er enn að hugsa hvar við eigum þá eiginlega að sníkja mat. Ívar og Karen að byrja í Háskólanum og maður hefur ekki undan spurningaflóðinu hehe, ætli maður hafi líka verið svona stressaður? Tímarnir mínir eru líka byrjaðir hjá mér og þetta lookar bara ágætlega eins og vanalega. Á hverri önn finn ég mér e-ð til að láta mig dreyma um og trufla mig frá námsbókunum og þessi er engin undartekning, ætla ekki einu sinni að segja ykkur hvað það er, en það snýst um ævintýramennsku svo að þið farið ekki að troða einhverjum grillum í hausinn á ykkur!

En að öðru.
Það eru menn sem "stokka" mig! Það eru þessir helv.... "fjármálaráðgjafar" frá bönkunum. Ég er ekki alveg að ná þessu, eru bankarnir að græða svona hrikalega á námsmönnum að þeir geta haft tugi manna vinnanndi útum allan bæ við að bögga mann og auglýsa svo öll kvöld í sjónvarpinu. Þetta byrjar yfirleitt svona: Fyrirgefðu fröken, má ég aðeins trufla? Segi oftast nei takk. En ef maður nær ekki að stoppa þá af þá byrja þeir að spyrja mann hvar maður sé í viðskiptum, hvort að maður sé með yfirdráttarheimild, hvað maður straujar kortið oft og blablabla. Ég er orðin nokkuð flink að hrista þá af mér.
Nei á enga peninga, þýðir ekkert að tala við mig!!!
Nota debetkortið mitt eiginlega ekkert, lifi á manninum mínu.
Neibb er ekki námsmaður.
Já ég er í viðskiptum við ykkur og er rosalega ánægð
Já er búin að skrá mig og á von á símtali
Og svo finnst mér best að segja þeim að maðurinn minn skipti við t.t. banka og það sé ekki séns að fá hann til að skipta og svo set ég upp svona mæðulegan svip.
Þetta er auðvitað bara hvít lygi er það ekki?
Er næst að spá í að segja á táknmáli að ég sé heyrnalaus, hehe kann það.
Endilega segið mér frá ykkar tækni ;)
Toby rokkar
þriðjudagur, september 05 2006
Held ég verði að setja þessa bolta á pilluna
skrifað @ 09:37 í [ Bloggið ]
Helgin var æði!!!
Hún byrjaði á því að famelían kom í þessa svaka veislu.
Það var rosagaman og ég fékk fullt fullt af pökkum. Maturinn var rosalega góður og "brenninettlusúpan" hennar Önnu Rósar sló í gegn.
Golf-fíklarnir að horfa á golfvöllinn
Ásturnar mínar
Það voru auðvitað miklu fleiri í veislunni eða e-ð um 20 manns, en hina bara gleymdist að mynda.
Á laugardeginum kom þessi sæti prins að heimsækja okkur
Hann heitir Vigfús Fróði og og Aron Elí var ekkert smá hrifinn af honum, enda er mamma hans í miklu uppáhaldi hjá Gormi
Litli var sko ekki sáttur við að fara heim
Svo um kvöldið hittist hinn frábæri saumaklúbbur Makaskipti. Að þessu sinni vorum við 6 af því að KÓK stakk af til DK og verður fram á vor *snökt*. Atkvæðagreiðsla um nýtt par í klúbbinn fór útum þúfur eins og allt annað sem rætt er í þessum félagsskap ;)
Þessar sex manneskjur náðu að halda feitt partý án þess að bæta nokkrum við og var á tímabili eins og það væru 40 í kotinu.
Og svo er hér ein af mér með einhvern rosalegan svip, spurning hvert umræðuefnið var, er eins og ég sé sárþjáð, reið og drepast úr leiðindum allt í einu.
Morguninn eftir var ljúfur, fékk egg og beikon í morgunmat og var ekki þunn, greinilegt að hálf flaska af rommi er minn drykkur!!! Vissum svo ekkert hvernig við áttum að vera, kunnum ekkert að vera svona barnslaus og enduðum á að fara í 2ja tíma göngutúr. Gormur kom svo heim úr sumarbústað með ömmu sinni og Ragga fjölskylda borðaði hjá okkur tælenskan og svo horfðum við á Goal.
Já 3ja daga afmælisveisla er sko málið ;)
Takk fyrir afmæliskveðjurnar og gjafirnar :*