fimmtudagur, ágúst 31 2006


Ekki amalegur staðgengill
skrifað @ 20:59 í [ Bloggið ]

23" kvikindi

Ég á náttúrulega bara klikkaðan mann!!! En hann er samt bestur :D



miðvikudagur, ágúst 30 2006


R.I.P.
skrifað @ 10:50 í [ Bloggið ]

Elskulega sjónvarpið mitt, megir þú hvíla í friði.
Ég þakka þér allar góðu stundirnar sem við höfum átt tvö ein saman inni í svefnherbergi og þar áður í stofunni á fyrri heimilum.
Ég hef alltaf staðið með þér, líka þegar allir kvörtuðu yfir að það kæmi asnalegt hljóð úr þér og að fjarstýringin þín væri alveg ómöguleg. En undir það seinasta þegar þú fórst að færa myndina langt til hliðar svo að ég sá ekki 1/10 af myndinni og oft ekki byrjunina á textanum var ég orðin pínu pirruð. Svo bara ákvaðstu að drepa þig meðan brúðkaupsþátturinn já var að klárast, veistu ég hefði bara gert það líka, hata þetta ógeð líka.

En í dag ferð þú á haugana og fyrirliðinn lofaði að koma heim með nýtt eins fljótt og hægt er, allavega áður en hann fer til Amsterdam og Úkraínu.
I'll be missing U!!!
p.s. ég vona að þetta nýja verði með textavarpi og að það verði hægt að flakka á milli stöðva :D



miðvikudagur, ágúst 23 2006


Ég er alveg viss um að ef við leggjum allt þetta saman
skrifað @ 11:40 í [ Bloggið ]

Simon Le Bon 80's töffara
Simon Le Bon
Einn hallærislegan gothara
Gothari
dass af þessu
Skúnkur
Fáum við út þetta ógeð
Lukas Rossi
Rétt upp hönd sem eru sammála mér



miðvikudagur, ágúst 23 2006


Af hverju heita vettlingar ekki handklæði og handklæði vettlingar???????
skrifað @ 09:46 í [ Bloggið ]

Mér er bara spurn.

Auðvitað rignir meðan við Aron Elí erum í fríi.

Hvað langar þig í afmælisgjöf eru allir að spyrja mig að.

Verst að það verða allir farnir úr landi en það lítur samt út fyrir að Raggi verði heima hjá mér en ekki í Úkraínu eins og útlit var fyrir.

Það sem mig langar í í afmælisgjöf er:

Friður á jörðu
Hraðari fitubrennslu
LCD í stofuna og svefnó
Brún augu
Að baðinnrétting yrði sett upp meðan ég sef
Ferð til New York
Listræna hæfileika
Alvöru lit í hárið
Mótorhjól
Heimsókn frá afa
Eilífa æsku
Ungabarn, sem ekki þarf að ganga með, sefur allar nætur og kann ekki að gráta og þarf EKKERT að hafa fyrir
Aðeins fleiri og virkar heilasellur

En án gríns þá langar mig í:

Tivoli model one í piano black
Tivoli one
Cintamani peysu með hettu
cintamani
Cool málverk
málverk
Skó
skór
Kápu
kápa
Áskrift af gestgafanum
gestgjafinn
Matreiðslubækur Nönnu
nanna

En svona til að vera raunsæ þá er mér alveg sama hvað ég fæ í afmælisgjöf, bara að ég fái nokkur símtöl og góðan mat þá er ég sátt ;)




föstudagur, ágúst 18 2006


Ég er nokkuð viss um að ............
skrifað @ 22:43 í [ Bloggið ]

Það sé ekki til neitt fallegra en þetta!!!
Fallegasta barn í heimi

Svo fer ég að fara að blogga en á meðan getiði skoðað myndirnar sem ég var að setja inn hjá gormi.