mánudagur, júlí 31 2006


4 dagar í frí
skrifað @ 17:41 í [ Bloggið ]

Nú á ég bara eftir 4 daga eftir í vinnunni :)

Við erum að plana ferð norður um verslunarmannahelgina og vonandi verðum við Aron Elí lengur en fram yfir helgi.

Annars er allt fínt bara, fórum í eina nótt í bústað með Dóra mági, Ástu og frú Gúrme ;) Það var rosa fínt.

Svo eigum við víst pantaðan bústað í heila viku frá 11 til 18 ágúst. Erum að spá í að semja við Sigga storm um veðrið.

Bloggið mitt eða tölvan með einhvern mótþróa og neitar að leyfa mér að setja inn myndir.

Svo eru reyndar einar stórar fréttir. Litli gormur tók þá ákvörðun að hætta með bleiu, og er bara hættur og ekkert vesen.

Fer svo að fara að blogga e-ð gáfulegt þegar þessi blessaða vinna mín hættir að eyða allri minni orku :*



fimmtudagur, júlí 20 2006


Ég hlakka svo til að.......
skrifað @ 21:54 í [ Bloggið ]

fara með múttu og systu til Köben 5-9 október.

Svo er ég líka hrikalega ánægð með hvað Magni er að standa sig vel í Rockstar.
Ég bjóst bara engan veginn við þessu.

Raggi og Aron Elí byrja í sumarfríi á morgun, úff hvað ég held að þetta eigi eftir að verða erfiðar tvær vikur fyrir mig í vinnunni.

Langar svo að gera e-ð um helgina, veit bara ekki alveg hvað.



þriðjudagur, júlí 11 2006


Fyrir ykkur sem hafið jafn gaman að þessu og ég
skrifað @ 08:46 í [ Bloggið ]

Smellið hér



mánudagur, júlí 10 2006


Vegna óviðráðanlegra ástæðna.....
skrifað @ 17:40 í [ Bloggið ]


....verður þessi síða lokuð þangað til ég er búin að horfa á alla Nágranna þættina sem ég fann á netinu ;)
Var s.s. búin að ná bretanum og komst svo í feitt núna þegar ég fann síðu með þáttum sem er verið að sýna í Ástralíu.

Annars er ekki mikið að frétta.