föstudagur, júní 30 2006


Föstudagur
skrifað @ 10:34 í [ Bloggið ]

Hann Raggi sendi mér þess mynd í morgun, líklegast til að minna mig á að við ættum ekki mesta prakkaraorm í heiminum, það væru til einhverjir verri.
Shit
Á meðan ég hló að myndinni fattaði ég að það var e-ð óvenjulega hljótt hérna í Breiðuvíkinni og stökk af stað og fann Lasarus á svefnherbergisgólfinu með snyrtiveskið mitt. Búinn að borða tvo varaliti, maka glimmeraugnskugga útum allt og fá sér svolítið gloss, á bumbuna!!!!
The joke is on me!!!



fimmtudagur, júní 29 2006


Blómamorðingi með meiru
skrifað @ 10:10 í [ Bloggið ]

okedía
Þeir sem þekkja mig vita að ég er einn mesti blómamorðingi sem sögur fara af.

Þegar við fluttum inn kom pabbi með þessa hrikalega flottu orkedíu og ég svitnaði við tilhugsunina og spurði gamla hvort að það væri ekki í lagi með hann því hann veit jú alveg hvernig mér gengur að halda lífi í plöntum. Hann gaf mér einhverjar leiðbeiningar sem ég man auðvitað ekkert hverjar voru. Orkedíur eru rosalega falleg blóm og var þessi búin að blómstra tveim og var svo með tvo knúppa. Svo kom Anna systir í heimsókn og þegar ég fór að sýna henni blómið og deila með henni áhyggjum mínum af því að þetta blóm myndi ekki eiga langa ævi framundan þá sagði hún mér að ég myndi pottþétt drepa hana ef ég tæki hana ekki úr suðurglugganum því hún myndi ekki þola svona mikla sól og hita, þessu hlýddi ég svo samviskulega. Það skrítna er hins vegar að ég vökva þetta blóm mjög mjög sjaldan og hugsa ekkert um það, en það heldur áfram að blómstra á fullu og er ekkert að fara að gefast upp. Ég hef því komist að því að þetta blóm er einhverskonar masókisti því að löngu á eftir þessu blómi flutti annað inn á heimilið sem mér tókst að drepa á mánuði, svo ekki sé minnst á sumarblómin sem húsfélagið plantaði fyrir utan hurðina hjá mér og ég fattaði nokkrum vikum seinna að væri mitt verk að vökva :S Já þau eru s.s. í misjöfnu ásigkomulagi.

Annars gerist ekki mikið hér, er búin að vera með gorminn heima veikann frá því í gær.
Gormi finnst hann eiga mjög ósanngjarna foreldra því seinustu daga hefur hann vælt mikið yfir því að það sé ekki tölva í hans herbergi, hann eigi ekki GSM og að pabbi hans hafi tekið bílinn okkar!!!! Hélt sko að þetta byrjaði ekki strax, nú er hann rétt rúmlega tveggja ára en hvernig verður þetta þá eiginlega, þarf ég s.s. að fara að útskýra hvernig börnin verða til í haust úfff!!!!
hvaðan koma börnin



sunnudagur, júní 25 2006


Svipmyndir helgarinnar
skrifað @ 21:59 í [ Bloggið ]

Við byrjuðum helgina á því að fara í göngutúr og kíkja í smá fjöruferð. Aron Elí hafði aldrei farið í eina slíka og hafði því mjög gaman að.
Fjöruferð
Þegar Herreros fjölskyldan vaknaði var farið í búðina og pakkað niður fyrir dagsferð á Þingvelli þar sem karlpeningurinn dittaði að bústaðnum.
Borið á pallinn
Svo var farið með gormana í göngutúr til þess að reyna að þreyta þá og þeir voru í essinu sínu.
Sveitakallar
Þegar búið var að grilla ofan í mannskapinn voru flest allir mjög þreyttir. Svo brunuðum við heim um 11 til að sofa í okkar rúmi ;)
Kvöld lesturinn
Svo í morgun var farið í sund og tjillað heima og svo buðu tengdó okkur í svín!!!
Er það skrítið að maður sé þreyttur eftir svona helgi????

En Herreros junior skemmti sér mjög vel og er orðinn vel sólbrúnn og verður líklegast búinn að ná pabba sínum í taninu um mitt sumar.
Herreros



þriðjudagur, júní 20 2006


Allt og ekkert
skrifað @ 16:23 í [ Bloggið ]

Ég ætla að fara á eftir að hitta hana Ástu sætu.
Hún kannski sýnir okkur Aroni nýja herbergið sitt meðan Dóri og Raggi horfa á boltann.
Ástuskott
Hún er eiginlega fallegri en orð fá líst

Ég sá loksins The notebook, var búin að vera svo forvitin af því að það voru allir að tala um hana og alltaf verið að vitna í hana í þáttum í TV-inu. Varð sko ekki fyrir vonbrigðum en kláraði heila eldhúsrúllu *snökt*, svo sá ég líka loksins Goal sem er náttúrulega bara snilldar ræma og vel hægt að grenja yfir henni líka. Ein eftirminnileg er frá seinustu vikum er líka Hooligans, green street, eða eð svoleiðis, hún er um fótboltabullur og maður er stjafur allan tímann. Elska bíómyndir sem koma EKKI frá Hollywood.

Raggi: Svo vorum við að fá okkur þetta borðstofuborð
Eiki: Flott mar, hvar fenguð þið það
Ég: Eruði þroskaheftir, við borðuðum öll við það um daginn *hneyksl*

Hver bíður sig fram sem fyrsta tilraunadýrið???
Tilraunaeldhúsið

Nennir svo einhver að vekja mig þegar það hættir að rigna???





mánudagur, júní 19 2006


partýið
skrifað @ 15:55 í [ Bloggið ]

Það var hrikalega gaman í partýinu á lau.

Sangrían sló í gegn, hún var líka geðveikt góð


Hluti af gestunum


Mætingin var samt ekki góð enada kannski ekki gáfulegasti dagurinn til að halda partý.

Vaknaði ekkert þunn á sunnudaginn og náði að sofa til hádegis sem er met fyrir mig eftir djamm og svo fórum við á kfc áður en við sóttum gorminn, sem vildi reyndar ekkert koma heim með okkur.

Það er líka eins gott að það er komin smá pása í samkvæmislífinu, uhhh eftir útskriftina sem verður á lau.



miðvikudagur, júní 14 2006


Örblogg
skrifað @ 09:03 í [ Bloggið ]

Það er fínt í vinnunni
Er búin að kynnast fullt af stelpum
Fórum í óvissuferð
Það var rólegt
Sigga er búin að útskrifast :)
Innflutningspartýið á lau.
Hlakka til
Var að pæla í að gera sangríu
Hvar er sumarið???
Íbúðin er alveg að komast í stand
Vá hvað ég er orðin strax þreytt á þessum fótbolta
Aron Elí er kominn inn á nýja leikskólann
byrjar í haust

leiter



þriðjudagur, júní 06 2006


Pabbi hvaðan kemur rafmagnið
skrifað @ 18:13 í [ Bloggið ]

Hafði séð nýju auglýsinguna frá Orkuveitu Reykjavíkur, ég held ég skjóti mig í hausinn þegar þetta helvíti byrjar næst!!!