mánudagur, maí 29 2006


Smá spurning
skrifað @ 17:44 í [ Bloggið ]

Sko!!!

Ég er búin að vera að pæla í einu í mörg ár. Segjum sem svo að einhver eigi gæludýr, þá meina ég svona alvöru eins og hund eða kött. Þessi manneskja á svo mann/konu eða bólfélaga. Allavegana ef að hundurinn eða kötturinn labbar inn á mann þegar maður er að stunda heimaleikfimina, eða bara kynlíf svo að þið farið nú ekki að snúa útur, hendir maður þá hundinum/kettinum út eða leyfir honum bara að horfa á????????? Svo er náttúrulega til fólk sem leyfir dýrunum að sofa uppí!!!!! Nenniði plís að upplýsa mig um þetta bara verð að fá að vita þetta.

Já og Kristrún er greinilega sú eina sem ætlar að mæta 17 júní. Allavegana hafa hinir glatað andmælarétti sínum.

jabb



fimmtudagur, maí 25 2006


17 júní!!!
skrifað @ 16:42 í [ Bloggið ]

Hvernig hljómar 17 júní fyrir innflutningspartýið???

einfaldlega bestur í heimi



þriðjudagur, maí 23 2006


Tryggingastofnun góðan dag
skrifað @ 17:35 í [ Bloggið ]

Sæl veriði

Þá er mar bara byrjaður að vinna eins og allir hinir.
Þetta er bara rosalega fínt en mikið að læra OMG, en þar sem ég er ekkert sérstaklega treg (segir mamma allavegana og ekki lýgur hún) þá hlýtur þetta að síast inn.

Ég á s.s. að byrja á að vinna í símaverinu því ég læri mest á því og fer svo kannski e-t annað eftir þörfum í sumar. Er samt ekki komin með mitt borð ennþá þannig að ég verð ekki á MSN til að byrja með ;)

Helgin varð óvænt bara allt öðruvísi en planað hafði verið. Já ég vil þakka vinum mínum fyrir stuðninginn við þá ákvörðun mína að vera edrú, eða þannig! Svo kenni ég bara áfenginu um en það skaðar dómgreindina eins og er í tísku að segja að í stað þess að labba heim því ég var í göngufæri enda á "æskuslóðunum", fór ég í bæinn og heim aftur. Aumingja Raggi þurfti svo að borga leigubílinn eftir að ég var búin að rífast við leigubílsstjórann um inneignina á kortinu mínu :s Fyrirliðinn vaknaði bara út á bílastæði með debetkortið sitt og illa klæddur en var samt fljótur að átta sig, enda að verða vanur.

leiter



föstudagur, maí 19 2006


Hæ hó
skrifað @ 09:24 í [ Bloggið ]

Jó jó jó

Ég er sko ekki búin að liggja í leti frá því að ég kláraði seinasta prófið ef að þið haldið það.

Fór á djammið með stelpunum.
Var þunn í sólbaði.
Er búin að vera að útrétta helling.
Lét litla bróður setja upp hillur og húsgögn.
Fór í sveitaferð með gorminn.
Hitti ömmu.
Tók til, tók til og tók til.
Svo í gær komu Eiki og Lena í mat til að vígja nýja borðstofusettið og ég þurfti að fara á læknavaktina í miðjum matartíma, ekta ég ;)
En það var enginn á ferli eða á læknavaktinni þannig að blöðrubólgunni var reddað á innan við klukkutíma og ég náði Silvíu Nótt.
Sveitakallinn

En að allt öðru

Í upphafi annar var ég rosalega spennt yfir fögunum sem ég átti að taka. En nú?

Lífskeiðakenningar: Rosalega áhugavert en alltof mikið efni og víðtækt, eins konar félagsfræði + uppeldisfræði + líffræði + þroskasálfræði alveg frá sáðfrumu til dauða. Alltof margir kennarar og prófið var þungt!

Stjórnun og stjórnsýsla: Mjög áhugavert á köflum þá sérstaklega stjórnunin og mannauðsstjórnunin en omg hvað ég átti erfitt með þessi skattahugtök :s Prófið gekk hins vegar ágætlega þangað til annað kemur í ljós.

Aðferðafræði III: SHIT hélt ég myndi deyja út leiðindum og áhugaleysi, rannsóknin var heldur ekki næstum því eins skemmtileg og ég vonaði, prófið gekk hins vegar mjög vel. Bless bless tölfræði, vonandi hittumst við aldrei aftur.

Þriðjigeirinn: Úff drepleiðinlegir tímar, enda mætti ég í fáa. Það var hins vegar mjög skemmtilegt að vinna sjálfboðastarfið og ég geri örugglega meira af því í framtíðinni.

Áföll, sorg og sálræn skyndihjálp: Ótrúlega skemmtilegt og eitthvað sem maður á pottþétt eftir að nota í lífinu. Ritgerðin var hins vegar e-ð erfið í fæðingu.

Þið sem eruð enn að lesa þessi leiðindi, góða helgi ;)



fimmtudagur, maí 11 2006


Í fréttum er þetta helst
skrifað @ 08:41 í [ Bloggið ]

Fer í seinasta prófið á laugardaginn
Ég hata þetta spiderman drazl í öllum búðum
Byrja ekki að vinna fyrr en 23 maí
Gengur ekkert að koma okkur fyrir
Fyrirliðinn er einu sinni enn úr axlalið
Langar svo á Bubba tónleikana
Hlakka til að fara með gorminn í sveitina
Það klessti einhver aumingi á bílinn minn!!!
og lét sig hverfa



þriðjudagur, maí 09 2006


Litli spastíski homminn minn er 23 ára í dag
skrifað @ 08:51 í [ Bloggið ]

Fyrirsögnin er bara fyrir mömmu, hún verður svo ánægð með mig.

Lilli, Íbbó, Bimbó eða bara Ívar er 23 ára í dag.
Ívar Örn

Verð að segja tvær sögur af honum í tilefni dagsins.

Einu sinn sátum við við eldhúsborðið heima á Suðurgötunni og Ívar ætlaði að vera rosalega sniðugur og segir: Sjáðu Olla þetta er sleikjó og renndi tungunni hættulega nálægt kaktusnum og fór svo aðra ferð og hitti kaktusskrímslið! Þetta var svona kaktus með pínulitlum nálum og tungan á honum var loðin af þessu ógeði og mamma skóf á honum tunguna með beittum hnífi.

Svo einu sinni vorum við úti í garði að leika og Ívar var þekktur fyrir að þurfa alltaf að vera að naga eitthvað og sleikja, þennan daginn fannst honum það góð hugmynd að sleikja klakann af snúrurstaurnum. Eftir smá stund fór hann svo með tunguna á járnið þar sem enginn klaki var og festi tunguna. Ég hló svo mikið að ég hélt ég myndi pissa á mig, sótti svo mömmu eftir dágóða stund en henni fannst þetta ekkert fyndið, sérstaklega ekki sú staðreynd að hafa ekki verið sótt strax.

En best að hætta núna svo að hann verði ekki reiður, á sko miklu miklu fleiri sögur.

Við litla fjölskyldan óskum honum til hamingju með daginn!



miðvikudagur, maí 03 2006


Draumórar dauðans
skrifað @ 12:34 í [ Bloggið ]

Þegar maður á að vera að lesa fer hugurinn oft á flakk.
Það sem mig hefur dreymt um seinustu daga er t.d.

Mig hefur lengi langað til að eignast krossara, vantar bara að kaupa einn og líka félaga í sportið.
krossari
Svo er ég búin að biðja um mótorhjólapróf í 30 ára afmælisgjöf og sá áfangi nálgast óðfluga. Þá væri ég til í að eignast eitt svona.
hjól
Mér finnast flugvélar ekkert spennandi en mig hefur lengi dreymt um að vera með þyrlupróf, það er cool, það eru hvort sem er allir að læra að fljúga ;)
þyrla
Ég er ekkert sérstaklega hrifin af hundum, enda með ofnæmi en ég væri alveg til í að eiga einn svona. Hef reyndar heyrt að þeir þurfi að hreyfa sig í hálfan sólarhring á hverjum degi eða eitthvað :S
Siberian Husky
Svo er auðvitað klassískt að mig dreymir flesta daga um svona bíl. Væri rosalegt að vera á þessum með krossarann á pallinum ;)
Raminn

Best að halda áfram