föstudagur, apríl 28 2006


Vissi það!!!
skrifað @ 14:30 í [ Bloggið ]




You Belong in Barcelona



When it comes to Europe, you don't want to decide between culture and fun. You want art by day and a big party by night.

Barcelona is ideal for you. You can check out some Picasso, eat some tapas, take a siesta, and then dance all night!



miðvikudagur, apríl 26 2006


Nokkrar spurningar sem ég HATA!!!
skrifað @ 14:11 í [ Bloggið ]

Pirrrrrrr

Á ekki að fara að koma með annað?

Hvað eigum við að hafa í matinn?

Varstu dugleg að læra í dag?

Er í lagi með bróður þinn þó að mamma þín hafi verið svona "gömul"?

Hvað er Raggi með í laun?

Af hverju flytjið þið ekki í Hafnarfjörðinn?

Hvað heitir þetta fyrirtæki aftur sem Raggi er að vinna hjá?

Á svo að flytja aftur norður eftir námið?

Hvort ertu aftur að læra sálfræði eða félagsfræði?

Skal bara svara þeim öllum snöggvast

Fleiri börn strax: Hell no!!!!
Matinn: Bara pizzu!!!
Lærdómur: Þér bara kemur það ekki við ;)
Minnsti bró: Jú hann er bara eins og allir aðrir 2ja ára ormar, að því að ég best veit.
Ragga laun: Hann er alltaf að segja mér það en ég gleymi því jafn hratt, má líka ekkert segja frá því ;)
Hafnarfjörður: Aldrei, nema við yrðum allt í einu bæði að vinna þar, sem er ólíklegt
Ragga vinna: Heitir í hundraðasta skiptið Creditinfo Group sem er móðurfélag Lánstrausts og Fjölmiðlavaktarinnar.
Aftur á mygló: Múhahahahahaha áttu annann, fínt að koma í heimsókn en ekkert meira en það
Námið: Er að læra félagsRÁÐGJÖF!!!

Ein mega-pirr í dag.

Gott að vera komin með netsamband

Er að drukkna í próflestri og sá sem getur komið og kennt mér fjölbreytuaðhvarfsgreiningu og þáttagreiningu fær að eiga 3 seinustu kassana sem við eigum eftir að taka upp úr.

Langaði svo að deila með ykkur þeirri rosafrétt sem ég las aftan á mánudags DV, að við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur af Sigmundi Erni, hendur hans urðu svona appelsínugular af því að bera brúnkukrem á bakið á konunni sinni og svo gleymdi að þvo sér á eftir. Mér létti ekkert smá! Þetta er sko alvöru fréttamennska!!!



miðvikudagur, apríl 19 2006


Veit ekki alveg hvað ég á að segja
skrifað @ 09:15 í [ Bloggið ]

Erum á fullu að flytja og breyta og þú ert velkomin/n í heimsókn!

Annars er ekkert að frétta, skólinn búinn að vera svolítið á hold seinustu daga.

Páskarnir bara komu og fóru aftur og skildu bara eftir sig bumbu.

Hlaupabólan kom líka og fór aftur, gormurinn var samt ekkert veikur og afrekaði meira að segja að lita alla fallegu hvítu tölvuna mína skærgula!!! Held ég hafi aldrei verið jafn reið við hann, þetta toppar nú öll prakkarastrikin hans.

Svo gaf ég sófann, eldhúsborðið og eldhússtólana í gær og hvergi hægt að sitja lengur á Dyngjuveginum. En sem betur fer flytjum við í dag, varð frekar pirruð í morgun þegar ég fattaði að Nesquikið var komið ofan í kassa!!! Strunsaði eins og fíkill út í bakarí eftir kókómjólk.

Jáhá og þjónustuver símanns er ekki alveg að gera sig. Það er ætlast til að maður hringi úr númerinu sem maður er að færa, en ef maður er búinn að pakka niður símanum, hvað þá??? Og svo þarf maður að vita hvaða númer var á nýja staðnum fyrir WHAT!!!

Hlynur minnsti bró er 2ja ára í dag, læt gorminn hringja í dag og syngja fyrir hann.
Hlynur Orri



föstudagur, apríl 14 2006


Újé
skrifað @ 21:52 í [ Bloggið ]

Erum búin að fá afhent!!!!!

Raggi verður bara að mála næstu daga og ég að skipta mér af og versla ;)

Þangað til næst
mála



föstudagur, apríl 07 2006


Segir þú oft eitthvað án þess að hugsar?
skrifað @ 14:38 í [ Bloggið ]

Ég var sem sagt að taka spurningakönnun um daginn í skólanum og þetta var ein af spurningunum: Segir þú eitthvað oft án þess að hugsa?

Hmm ég geri það stundum en ekki mjög oft að mínu mati.

Dæmi:

Anna Anna hún heldur að þú sérst gras!!!
Hey! ertu indjáni á leið í stríð?
Áttu hund? Hver er þá Hringur?

Dæmi 1:
Ég er c.a. 6 ára og í garðinum okkar voru geitur að borða túlipanana hennar mömmu. Þeim hafði örugglega verið hleypt út úr húsinu sínu sem var í fjallinu rétt hjá húsinu okkar. Allavegana þá fór hetjan hún systir mín að reka geiturnar í burtu eða allavegana eina, það vildi bara ekki betur til en svo að geitin ætlaði að stanga hana og hljóp á eftir henni hring eftir hring í garðinum. Ég argaði þessa líka snilldar setningu "Anna Anna! Hún heldur að þú sérst gras" Anna Rós var í eitur grænum jogginggalla og ég var alveg viss um að hún ætlaði að borða hana.

Dæmi 2:
Við vinkonurnar sátum heima hjá Rakel og vorum með smá partý eins og vanalega. Allavegana þá komu fullt af strákum í partýið sem flæktust með einhverjum öðrum. Svo sé ég einn strák sem var búinn að setja þetta líka rosa svarta strik í andlitið á sér. Ég bara hey!!! Ertu indjáni á leið í stríð (veit ekki afhverju ég þurfti endilega að tjá mig um þetta). Hann horfði bara á mig og sagði ekkert. Ég hló og hló að sjálfri mér og fannst allir viðstaddir frekar húmorslausir. En enhver s.s. Rakel sparkaði mjög fast í mig undir borðinu þegar henni fannst ég greinilega vera búin að hlæja nóg af eigin fyndni og hvæsti: ÞETTA ER FÆÐINGABLETTUR!!!

Dæmi 3:
Ég var að plana það með vinkonum systur minnar hvernig hún yrði gæsuð. Var búin að fá fundarboð og okkur sagt að mæta í t.t. íbúð og hringja bjöllu sem stæði á Selma, Kári og Hringur. Ég er nátturulega svo séð að ég tók með mér ofnæmistöflur svo ég fengi ekki ofnæmi. Svo þegar við vorum sestar inn í stofu fór ég að taka upp töflurnar en fannst skrítið að ég sá engan hund og spurði? Áttu ekki hund? Selma ha?? nei? ég: Nú hver er þá Hringur? Selma: Það er sonur hans Kára (frekar vandræðaleg). Mér fannst ég greinilega ekki búin að gera mig að nógu miklu fífli og bætti við: Ó ég var alveg viss um að það væri gulur labrodor.
p.s. breytti nöfnunum á foreldrunum

Þetta eru samt bara 3 dæmi á mjög löngum tíma, man ekki eftir fleirum en endilega bætið við ef þið viljið!

Annars er allt í gúddí og helgin að ganga í garð, Sigga og Finnur koma í hvítlauk í kvöld ;) Afmæli hjá Kristrúnu sætu á morgun og ferming hjá Arnari Daða á sun á mjög ókristilegum tíma.

Annað fréttnæmt:
Komin með vinnu hjá Tryggingastofnun í sumar
Konan á efri hæðinni nýtti sér forkaupsrétt sinn og keypti af okkur
Er búin að kaupa sófasettið

Adios




þriðjudagur, apríl 04 2006


Hef ég fætt barn?
skrifað @ 18:49 í [ Bloggið ]

Ohh ég fór í krabbameinsskoðun um daginn og átti að krossa við já eða nei við hvort að ég hefði fætt barn. Ætti nú að vera auðvelt, en auðvitað tókst mér að flækja þetta.

Ég var nú bara ekki alveg viss. Ég á vissulega orminn minn sem kom í heiminn fyrir tveimur árum, en stóra spurninginn er hvort að ég hafi fætt hann eða hann einfaldlega komið í heiminn, þ.e. með hjálp skurðlæknis.

Já, ég spurði hjúkkuna sem hélt örugglega að ég væri e-ð geðveik þegar að ég sagði við hana að ég væri bara alls ekki viss hvort að ég hafi fætt barn eða ekki og ég væri einmitt búin að vera að velta því lengi fyrir mér, múhahaha ég hélt sko að augun á henni myndu rúlla út.

Þá sagði ég að barnið mitt hefði verið tekið með keisaraskurði en ekki fæðst í gegnum leggöng og þá sagði hún: þá hefuru vissulega fætt barn elskan.

Ég er bara ekki sannfærð, þetta er reyndar einn af stórum göllum íslenskrar tungu þ.e. hvað orð eru niðurnegld á eina merkingu.
Æj þetta er auðvitað bölvað bull í mér og er örugglega tilkomið vegna minnimáttarkenndar minnar og öfundar í garð þeirra kvenna sem hafa átt barn með eðlilegum hætti.

Fann líka þessa smekklegu mynd af keisaraskuði þegar ég fletti honum upp í google frænda ásamt hundrað myndum af frú Becham og Britney Spears. Vá maður er bara í tískunni ;)
keisaraskurður


p.s. endilega takið könnunina í seinustu færslu ef þið eruð í fullri vinnu



þriðjudagur, apríl 04 2006


Smá könnun
skrifað @ 12:43 í [ Bloggið ]

Mig langar að biðja það vinnandi fólk sem hingað kíkir að svara þessari könnun um vinnuálag fyrir mig.

http://www.surveymonkey.com/s.asp?u=890721972402

Vinnuálag



laugardagur, apríl 01 2006


Bæ bæ Dyngjuvegur
skrifað @ 16:20 í [ Bloggið ]

Búin að selja kotið :)

Dyngjuvegurinn

Endalaus hamingja og við fáum hina afhenta fyrir páska!!!