Mikið rosalega er erfitt að vera fullorðinn!!!
fimmtudagur, mars 30 2006
Hvað er hægt að skipta oft um skoðun á einum sólarhring???
skrifað @ 22:12 í [ Bloggið ]
mánudagur, mars 27 2006
KVEF!!!!
skrifað @ 19:07 í [ Bloggið ]
Ég er komin með ógeð á þessu helvítis kvefi!!!

Annars er ekkert gott að frétta, var að sjá í dag að ég á ár eftir í náminu en vegna einhverra undarlegra hluta eru flest fögin ekki kennd fyrr en á næsta skólaári. Hvaða RUGL er það???? Þannig að árið þarf ég að taka á tveimur árum, ég sem var á leið í mastersnámið sem fyrst.
Helgin var fín :S Bara kom og fór, þurftum reyndar að sækja klósettpappírsbyrgðir til tengdó, já ætli það hafi ekki bara verið það sem stendur hæst. Jú og Bollywood söngvamyndin sem var á RÚV í gær.
.jpg)
Annars er mál málanna að selja íbúðina sem fyrst og finna sér sumarvinnu sem greinilega má leiða til 50% starfs eða meira í tvo vetur. Fór reyndar í atvinnuviðtal á föstudaginn sem lofar góðu svo stay tuned.
Svo ein spurning í lokin: Hvers vegna eru karlmenn alltaf "miklu" veikari? Held að ég sendi suma heim til mömmu sinnar í næstu flensu!
miðvikudagur, mars 22 2006
Ég á bara ekki til orð!!!
skrifað @ 15:51 í [ Bloggið ]

Þegar ég las þetta í gær þá missti ég málið!

mánudagur, mars 20 2006
Enn um drauma
skrifað @ 13:35 í [ Bloggið ]
Ég er 8 ára. Ég legg tólið á, hoppa hæð mína í loft upp, hann er kominn! Hendist út um útidyrnar og rétt man eftir að fara í skóna. Ég hleyp niður í garð, í gegnum runnann, fer bakvið húsið sem Hanna Sigga átti svo heima í, hleyp í gegnum garðinn hans Óla og vona að hann sjái mig ekki því hann hefur stundum bankað í gluggann þegar ég stytti mér leið þarna í gegn. Ég hoppa ofan í rabbabarabeðið hennar ömmu, ohh hún er alltaf að skamma mig fyrir að gera þetta og segir að ég eigi að nota göngustíginn. Það kemur ekki til greina því það er miklu lengri leið og afi er kominn heim.
Ég bara verð að hitta hann núna, hann er búinn að vera svo lengi í burtu. Hjartað hamast í brjóstinu á mér og ég asmasjúklingurinn er að kafna þegar ég hleyp upp útidyratröppurnar. Á planinu sé ég Subaru merktan Ríkinu og drulluskítugann eftir ferðalagið úr einhverjum síldarbænum austan. Ég opna hurðina kalla HALLÓ!!! Fer úr skónum, því amma verður gaga ef ég gleymi því, hleyp upp tröppurnar og rétt næ beygunni inn í eldhús.
Þar situr hann. Afi minn. Hann er að leggja kapal með hundaspilunum, drekkur kaffi úr hræðilega ljót fallega appelsínugula bollanum sínum. Ég hleyp upp í fangið á honum. Ég heyri röddina hans, finn lyktina hans, já ég er afa stelpa! “Ertu kominn?” “Já” segir hann.
Ég sem hélt að hann væri farinn.
Í 14 ár hefur mig dreymt þennann draum, með reglulegu millibili, þá hef ég hann alltaf hjá mér að vissu leiti. Þegar ég var lítil þótti mér þetta óþæginlegt og varð döpur, en í dag finnst mér þetta svo gott og í nokkra daga man ég hvernig röddin hans hljómaði.
Ég var svo heppin að eiga afa sem var sko alvöru afi. Hann afi minn vissi allt um landið, var aldrei að flýta sér, vissi allt um dýrin, kunni að hlusta, gat sagt sögur, vildi fara á rúntinn, sagði mér allskonar bull sem ég hlæ enn að og skildi að það er hægt að vera kókþyrstur og pylsusvangur. Af afa mínum lærði ég margt sem ég nýti mér enn þann dag í dag.
Það var á þessum tíma fyrir 14 árum sem afi kvaddi þennann heim þar sem hann var í vinnuferð fyrir austan. Í dag syrgi ég hann ekki lengur, ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum.
Öll börn ættu að eiga allavegana einn góðan afa.
föstudagur, mars 17 2006
Saumaklúbburinn makaskipti
skrifað @ 15:56 í [ Bloggið ]
Af því tilefni að það er matarklúbbshittingur á morgun ákvað ég að gefa ykkur smá innsýn í þetta rugl okkar.
Já nafnið er gott en misskilst stundum. En þetta er matarklúbbur sem við stofnuðum nokkur saman.
Við erum 7 í klúbbnum en stundum 8, fer eftir tíðahring sumra (nú verð ég drepin). Þessi klúbbur snýst semsagt að mestu leiti um það að koma krakkaormunum í pössun og borða saman og drekka mikið og fara svo á djammið. En tíminn milli matar og bæjarferðar er yfirleitt mjög áhugaverður. Þetta er fyndinn hópur með góðan húmor og ólíkar skoðanir. Umræðuefnin geta verið mjög furðuleg allt frá fóstureyðingum, hvort að það sé hægt að vilja sofa hjá þroskaheftum, hver fái hvern ef við færum í alvörunni út í makaskiptin og margt annað sem er ekki prenthæft. Umræðurnar verða oft mjög heitar og liggur við að allt verði vitlaust. En þetta er rosalega gaman og gaman að sjá hvað við erum öll ólík og sinnum ólíkum hlutum í okkar daglega lífi.
Fyrir utan mig er:
Garðar klúbbfélagi, aka Gæi samt enginn Gæji sko múhaha. Hann er líka í framboði fyrir hreinræktunarfélag hundaeigenda múhaha. Garðar er titlaður formaður matarklúbbsins en hann er einnig yfir rauðvínshellari þá á ég bæði við uppí sig, yfir aðra og á gólf og borð. Garðar er sá sem á yfirleitt upptökin af heitu umræðunum og gerir í því að stuða aðra, ég held að honum finnist gaman að rífast. Gæi er í sjómannaskólanum og stefnir á framhaldsnám í þeim fræðum í útlöndum.
Rakel aka leigubílsstjórinn því hún ratar allt, er kærastan hans Gæja. Við erum búnar að vera vinkonur frá því að við vorum á fyrsta ári í Borgó. Rakel er í orðsins fyllstu merkingu músin sem læðist. En þegar hún er komin í gírinn dettur henni allskonar vitleysa í hug, hún náði t.d. að plata mig í að drekka vatnsglas á haus í sumarbústaðarferðinni í fyrri, ég drakk reyndar aldrei neitt vatn. Rakel vinnu á skrifstofu Eimskipa og mér skilst að hún stefni á hönnunarnám eftir að hafa prufað bæði sálfræði og félagsfræði.
Raggi er minn betri helmingur eins og tengda pabbi sagði um daginn, hef reyndar aldrei skilið þetta. Raggi aka Raggoz er náttúrulega yfir átmeistarinn, það sem Raggi getur sett ofan í sig er stundum alveg skuggalegt. Hann hefur tekið að sér að ryksuga fyrir aðra þegar þeir eiga að halda matarklúbb og svo er hann DJ klúbbsins. Þar sem að Raggi er elstur af okkur kann hann best að fara með vín og gerir aldrei neinar gloríur, en verður oft að aðalumræðuefninu vegna þess að heima er hann alltaf að gera e-ð rugl og ég þarf auðvitað að segja hinum frá því.
Kristrún, já hún Kristrún mín er best. Við erum búnar að vera vinkonur frá því að ég flutti suður. Kristrún er auðvitað yfir drykkjuboltinn og drekkur alla strákana undir borðið og fer létt með það. Kristrún á það til að fá kaldan mat þegar hún mætir, ekki vegna þess að við hin séum svo vond við hana heldur kemur hún alltaf svona rúmlega klukkutíma of seint. Kristrún er að læra Dönsku í Háskóla Íslands, og stundum talar hún dönsku við okkur hin eftir of mikinn skammt af áfengi.
Hrannar er besti vinur hans Garðars. Hrannar er smiður og er Grundfirðingur eins og Gæi. Hrannar á það til að sofna í hittingum, og segir það vera vegna mikillar vinnu en við hin vitum betur. Hrannar er mikill húmoristi en brandararnin snúast oft um einhverja Grundfirðinga sem við höfum aldrei hitt. Hjá Hrannari og Garðari snýst heimurinn að miklu leyti um munntóbak, þeir rífast oft heilu kvöldin um það hvar helv... dollan sé. Saka hvorn annann um að hafa stolið henni eða okkur stelpurnar um að hafa falið hana. Hrannar er fínasta grey en fær oft aðeins of mikið af stríðni frá okkur hinum, en hann kann alveg að taka því.
Dóris, er sú eina á landinu sem heitir þessu nafni. Dóris er Hafnfirðingur og býr í firðinum með Hrannari. Dóris á það til að fá orðljóta tvíbbann sinn til að skipta við sig í miðju partýi og fer þá væntanlega heim að sofa. Dóris er að læra lögrfæði í HÍ. Dóris er matvandur andskoti en það er samt gaman að gefa henni að borða, en hún á það til að mæta í eins fötum og ég í partý og það finnst hinum fyndið, ekki okkur.
miðvikudagur, mars 15 2006
Erum að fara að flytja
skrifað @ 08:58 í [ Bloggið ]
Já það er staðfest! Við erum að fara að flytja í Grafarvoginn nánar tiltekið Víkurhverfið.
Við fáum afhent 15 apríl en flytjum kannski seinna inn, veltur allt á því hvernig það gengur að selja Dyngjuveginn.
Við erum öll alveg í skýjunum, en nú tekur við að fara að velja baðinnréttingu, tæki í eldhúsið og húsgögn. Bara gaman.
Íbúðin er 115 m2 4ra herbergja á 3ju hæð með útsýni yfir sjóinn og nóg pláss fyrir alla.
En á sama tíma eigum við pínulítið erfitt með að kveðja litlu sætu íbúðina okkar sem við höfum lagt svo mikla vinnu í, 104, Laugardalinn, Skeifuna og frábæran leikskóla. En nýji staðurinn hefur fleiri plúsa. Þar er t.d. ekki þessi rosalega bílaumferð og fullt af krökkum fyrir Aron Elí að leika við. Því hann er jú í fyrsta, öðru og þriðja sæti.
mánudagur, mars 13 2006
Mæli ekki með lúr í lespásu
skrifað @ 14:49 í [ Bloggið ]
Já ég dottaði víst meðan ég var að lesa upp í rúmi áðan.
Sko ég bjó með mömmu, pabba og öllu hinu fólkinu mínu, þetta var mjög skrýtið allt saman. Ég kannaðist ekkert við húsið en við áttum öll heima þar.
Svo kom einn vinur minn sem ég man ekkert hver var, einhver gamall vinur. Hann fékk að sofa í sófanum, og það var ekkert mál, þurfti ekki einu sinni að spyrja pabba. Svo kom Maggi en hann var búinn að missa allt, fyrirtækið, bílinn, íbúðina og konan hans og börnin voru farin. Hann kenndi Arnari um allt. Maggi fékk að sofa inni í herbergi hjá einhverjum af börnunum sem ég veit ekkert hver voru.
Svo kom Arnar í heimsók og við vorum öll að hlaupa og þeir voru berir að ofan og ég sagði lopapeysu brandara á skrilljón. Svo kom Maggi heim með stelpu og það fannst öllum bara allt í lagi. Ég var bara svo ánægð að þessir gömlu vinir mínir hefðu leitað til mín.
Já eins og þetta sé ekki nógu súrt þá kom Raggi og sagði við mig að koma með sér út, ég hélt að hann væri að plata mig e-ð afsíðis til að gera það en hann hló svo asnalega og ég alltaf Ragnar þú getur gleymt því að við séum að fara að gera það í bílnum hehe var örugglega ekkert næði inni. En svo komum við út og þar beið mín þessi líka fíni klessukeyrði Yaris sem hann ætlaði að gefa mér, ekki nóg með að ég hati Yaris og myndi aldrei vilja eiga svoleiðis þá var þessi með zebrahest í skottinu og ég var nú eitthvað efins með að ég þyldi hann vegna ofnæmisins og var ég alveg viss um að maður ætti að hringja í heilbrigðiseftirlitið. En ég var alveg hoppandi ánægð og fór að leita að bleiku Sollu stirðu úlpunni minni því einhver hafði tekið mína í misgripum því ég var með úlpu sem var númer 2 en auðvitað var ég í stærð 6 ára. Múhahahahahaha
Hvað ætli þetta þýði???
+
+
+ .gif)
föstudagur, mars 10 2006
Föstudagsgírinn
skrifað @ 10:23 í [ Bloggið ]
Langaði bara að deila þessum töffara með ykkur!
Annars lítið planað um helgina nema passa minnsta bró í kvöld, verður örugglega svaka stuð. Gat allavegana svæft þá báða í einu fyrir jól svo ég get það ötugglega aftur, annars vaka þeir bara híhí.
.jpg)
fimmtudagur, mars 09 2006
Má ég *ritskoðað* þér?
skrifað @ 09:07 í [ Bloggið ]
Ég er sem sagt búin að lesa tölvupóstana hennar *ritskoðað* og ég held bara að mér sé ennþá óglatt. Það asnalega er að það er ekki vegna þeirra atriða sem hún hefur verið að reyna að koma fram í dagsljósið með öllum ráðum, heldur aðferðanna sem hún notar til að koma sér áfram í krossferð sinni gegn *ritskoðað*. Veit ekki alveg hvað maður kallar þessi viðskipti hennar.
sunnudagur, mars 05 2006
Stödd í reifara
skrifað @ 22:10 í [ Bloggið ]
Hótel Búðir er rosalega flott hótel í mögnuðu umhverfi og það er alveg ljóst að orkan frá jöklunum er til staðar.
Um leið og við mættum á staðinn var farið að dreifa reglum morðgátunnar og voru allir orðnir spenntir að byrja leikinn. Á slaginu 5 áttu allir að mæta niður í lobbí og fá sér fordrykk og þá var fyrsta morðið framið beint fyrir framan okkur þar sem matselja fyrirtækisins sem Raggi vinnu hjá hneig niður. Maður var nú samt ekki alveg með á nótunum hvort að þetta væri hluti af leiknum eða ekki því maður vissi ekkert hvenær leikurinn byrjaði, hvort hann væri þegar hafinn eða ekki. Davíð Þór og Ævar Örn sakamálasöguhöfundur sjá um leikinn og eru algjörir snillingar.
Síðan byrjaði plottið á fullu, þau höfðu meira að segja gengið svo langt að þær 5 manneskjur sem voru leikararnir í leiknum höfðu í vikunni látið leka út að tvö þeirra væru að deita og Gróa á Leiti sá svo um rest, eins fóru tveir samstarfsfélagar að hnakkrífast og skelltu hurðum og annar hljóp á milli og reyndi að sætta þá, þetta kvissaðist auðvitað hratt út. Þá var ókunnugur maður staddur á árshátíðinni sem enginn vildi kannast við. Á þessum tímapunkti grunaði engan að leikurinn væri í raun byrjaður. Ég fattaði reyndar mjög fljótlega hver væri morðinginn en það var reyndar útfrá annari lógíg en leiknum, heldur þeirri einföldu staðreynd að einhver hefði verið valinn sem gæti logið án þess að það sæist á honum og svo spillti það ekki fyrir að þessi aðili drekkur ekki þannig að hann myndi ekki fara bara á fyllerí og gleyma sér. Inn í þetta fléttaðist reyndar fullt af smáatriðum sem gerðu hann grunsamlegan. Vil ekki segja of mikið.
Stjórnendurnir halda svo reglulega fund og leyfa manni að fylgjast með því sem er að gerast, krufningum, gæsluvarðhaldi og nýjustu sönnunargögnunum.
Út frá þessum upplýsingum þurfti ég svo að búa til atburðarás (segi ég því hvert herbergi skilar inn lausn en Raggi var svo busy í skemmtiatriðum og stússi að hann fylgdi atburðarásinni ekki alveg eftir) sem var nú reyndar að mestu leiti út í hött en engu að síður fékk ég/við önnur verðlaun sem var kampavínsflaska. Ég mæli alveg eindregið með þessu og ég er alveg viss um að við eigum eftir að gera þetta einhverntíma aftur. Hefði reyndar verið geðveikt að vinna fyrstu verðlaun því það var helgarpakki á hótelið. Maturinn var alveg rosalega góður og það var fjórréttað og allt alveg rosalega gott, sumir voru reyndar pirraðir yfir því að það var ekki hægt að fá ábót á lambið og reyndar var líka pirringur yfir því að engan mat var hægt að kaupa um miðjan daginn því hann kláraðist víst. Það var reyndar það eina sem hægt er að setja út á, því herbergin eru mjög flott og allt til fyrirmyndar á staðnum.
föstudagur, mars 03 2006
Föstudagur újé!!!
skrifað @ 10:45 í [ Bloggið ]
Skil bara ekki hvernig þetta er hægt! Þessar vikur fljúga áfram.
Ég snillingaðist til að fara í plokkun og litun í gær, ég grét mig í svefn í gær, ég er sko með lit langt upp á enni og svo vill hún láta mig safna aðeins, sem gerir það að verkum að ég lít út eins og skrímsli og það er ásrhátíð á morgun!!! Raggi segir samt að þetta sé alveg allt í lagi, hann veit líka hvað hann á að segja eftir 7 ár í æfingabúðum.

Já árshátíð á morgun á Hótel Búðum, verður örugglega rosagaman (ef liturinn verður farinn). Farið verður á Hótel Búðir strax í fyrramálið, eftir morgunmat og bjór ;) Aron Elí ætlar að fá að sofa hjá ömmu og afa en hann heldur því statt og stöðugt fram að hann sé að fara að sofa uppí hjá Hilla, efast nú um að það sé í boði.
Annars er ekki mikið að fétta, á tímabili sáum við bara blátt, þe Blásali en okkur tókst ekki að lenda því svo að íbúðarleitin heldur áfram.
Gormur er alltaf að tala meira og meira og nú er hann líka farinn að skrökva, í vikunni vorum við að horfa á tv inni í stofu og hann var með vatn í glasi, svo bara allt í einu þá hellti hann úr glasinu á stofuborðið viljandi sko. Ég varð frekar reið og sagði að nú skyldi hann draga sig inn í eldhús og ná sér í tuska og þurrka þetta upp. Þá fékk ég snilldar svar : "Nei.......Aron lasinn" og svo lagðist hann ofsalega þreytulega í sófann. Hvernig er hægt að halda áfram að vera reiður.
miðvikudagur, mars 01 2006
Já það er öskudagur í dag
skrifað @ 14:06 í [ Bloggið ]
Bubbi Byggir á leið í leikskólann í morgun (með myndasvipinn)