Svo ég haldi nú áfram að deila með ykkur þegar famelían er í fjölmiðlum þá er stóra systir mín forstjóri VÍS hér á NFS með öllum stórlöxum landsins og Michael Platini sem að sögn Ragga er frægur fótboltamaður, spilaði með franska landsliðinu og var hrikalega góður miðjumaður, ef þið voruð ekki með það á hreinu.
Hér er hún s.s. (spólið bara í 11 mín til að þurfa ekki að horfa á alla hina)
þriðjudagur, febrúar 28 2006
My big sister the "frama"queen
skrifað @ 14:13 í [ Bloggið ]
mánudagur, febrúar 27 2006
Halló ég heiti Ólafía
skrifað @ 10:31 í [ Bloggið ]
Við Ívar vorum að sækja okkur pizzu um daginn. Þegar við komum inn á dominos spurði stelpan á hvaða nafni pizzan og ég sagði "Ólafía" því það er jú víst nafnið mitt. Ég hélt að litli bróðir myndi missa hökuna niður á gólf, og spurði hvort að ég notaði þetta nafn eitthvað. Málið er að ég held að fjölskylda mín hafi sjaldan eða aldrei heyrt mig kynna mig eða nota nafnið mitt nema skriflega. Ég get ekki hringt og sent tölvupóst í einhverjum tilgangi án þess að nota Ólafíu nafnið, annað væri fáránlegt. Dæmi: Góðan dag ég hef mikinn áhuga á sumarstarfi hjá ykur.............Kær kveðja Olla!!!
Ætli þetta hafi ekki bara byrjað strax og ég fæddist e.t.v. fannst foreldrum mínum nafnið mitt of stórt á svona lítið barn. Allir í fjölskyldu minni hafa alltaf kallað mig Ollu og ég man örsjaldan eftir því að hafa heyrt þau gera annað nema í gríni, og kannski ef ég gerði e-ð mjög mikið af mér sem var auðvitað mjög sjaldan. Það var og er þá ekki nema föðurfólkið mitt sem kallar mig Ólafíu þegar þau tala við mig, sem er í dag í góðu lagi, en pirraði mig óendanlega þegar ég var lítil og þá átti ég það til að "leiðrétta" þau eða snúa einfaldlega upp á mig.
Í barnaskóla sagði mamma kennurunum að ég væri alltaf kölluð Olla og var meira segja lesið svoleiðis upp í byrjun tíma. Ef að við fengum forfallakennara voru krakkarnir í bekknum fljót að leiðrétta hann fyrir mig þegar hann las úr kladdanum. Aðeins einu sinni á Siglufirði lenti ég í stappi um nafnið, en þá var ég 10 ára og herfan sem kenndi mér stærðfræði í eitt ár neitaði að kalla mig Ollu, ég átti að merkja öll verkefni með Ólafíu nafninu og framvegis. Úff þarna mættust stálin stinn, ég gaf mig ekki og lengi vel þegar hún var að útdeila verkefnunum las hún upp "Olla, hér er enginn með því nafni" og skildi svo verkefnið eða prófið eftir á horninu á borðinu sínu þangað sem ég sótti það svo. Svona gekk þetta í nokkrar vikur og hún var ekkert að gefa sig og ég ekki heldur. Þá stakk mamma upp á að ég myndi bara nota Bjarkar nafnið og merkja verkefni mín Ó.Björk en það var skassið heldur ekki ánægt með og skrípaleikurinn hélt áfram út önnina.
Þegar ég byrjaði í Rimaskóla nennti ég ekkert að vera að tuða í liðinu að kalla mig Ollu því að þar var ég bara í ár og var ekki að nenna þessum fætingi. En það ár kom það oft fyrir að fólk kallaði mig Óla-fíu! En eins og þið hafið öll heyrt mig segja hundrað sinnum þá segir maður ekki Óla-fur heldur. Í sundkennslu hitti ég kall sem sagði við mig blákalt þegar ég sagði honum að nafnið mitt væri skrifað með f-i að þá héti ég sko ekki Ólafía heldur Óla-fía og aumingja kallinn fékk alla ræðuna híhí.
Ég er hætt að tuða í foreldrum mínum yfir þessu nafni, ætlaði alltaf að breyta nafninu mínu í Rebekka þangað til mamma benti mér á að það yrði nú kannski meira mál að útskýra þá Ollu nafnið. Ég er auðvitað nefnd í höfuðið á ömmu minni og hefur alltaf þótt vænt um það, en einhver veginn hefur mér ég aldrei fundist ég heita Ólafía, eitthvað í líkingu við stelpu í stráks líkama. Kannski vegna þess að nafnið var aldrei notað og ég tengdi það ekki við mig.
Ekki bætti það úr að þegar ég fór einu sinni með pabba í vinnuna þá c.a. 15 ára kynnti pabbi mig fyrir bossinum sínum og sagði þetta er Ólafía dóttir mín (reyndar er pabbi minn eini sem kynnir mig með þessu nafni, þá helst í boðum tengdum honum og hans fjölskyldu). Bossinn fékk s.s. hláturskast á staðnum og spurði pabba hvers vegna í ósköpunum honum hefði dottið í hug að skíra barnið sitt þessu nafni, ég held ég hafi aldrei séð pabba minn eins hissa og kjaftstopp á framkomu eins manns. Þetta særði mig alls ekki en maðurinn fékk auðvitað hálfvitastimpilinn og hefur ekki losnað við hann síðan.
En svona er þetta ég er kannski að vaxa upp í þetta nafn og mér finnst það alls ekki ljótt lengur en ég hugsa mig tvisvar um áður en börnin mín fá gælunafn við fæðingu ;)
föstudagur, febrúar 24 2006
Föstudagur
skrifað @ 09:42 í [ Bloggið ]
Þessi vika er búin að vera svooooooo lengi að líða, gormur búinn að vera drulluveikur og ég búin að þurfa að burðast með öll hans 13 kg allan daginn og svo sefur hann ofan á manni á nóttunni! Hef reyndar komist í næstum alla tíma því Raggi hefur komið heim og við reynt að láta þetta virka með smá skipulagi og samvinnu.
Annars stóð ég nú ekki alveg við það að fara ekki að djamma um seinustu helgi. Langaði allt í einu svo mikið út að ég tróð mér með Kristrúnu í afmæli til mágkonu hennar, sem voru reyndar mjög fáir í. Fórum svo á Vegamót og dönsuðum af okkur rassgatið, hitti fortíðardraug, alltaf gaman að þeim! Þurftum að berja frá okkur korterí 3 gæjana eða hvað þeir heita núna, eiginlega frekar hallærislegt. Vorum reyndar vinsalegast beðnar um að berja ekki einn gaur af vinum hans, lol sé það alveg fyrir mér við Kristrún að stappa á einhverjum gaur, já sá dagur kemur right. Vorum svo plataðar á REX en vorum næstum komnar þangað þegar við föttuðum að klukkan var að verða 6 og það var kominn háttatími. Mjög skemmilegt og ég vaknaði kl 10 næstum ekkert þunn.
sunnudagur, febrúar 19 2006
Aron Elí 2ja ára!!!
skrifað @ 08:44 í [ Bloggið ]
Í dag eru 2 ár síðan hann fæddist!!!
Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég eyddi einum og hálfum sólarhring í það að reyna að koma honum í heiminn. Hafði ekki hugmynd um að ég gæti elskað einhvern svona heitt.
Undir þínum áhrifum
[lag: Guðmundur Jónsson / texti: Stefán Hilmarsson]
Ég er ofurseldur þér og uni vel.
Það er annað finnst mér allt mitt hugarþel.
Sem ég horfi á þig sofa finn ég að
það er brotið nú í lífi mínu blað.

Ég hef beðið nokkuð lengi eftir þér,
svo ég segi það hreint alveg eins og er.
Og ég hugsa alla daga til þín heitt.
Alveg ótrúlegt hve allt er orðið breytt.

Það er varla nokkur heppnari en ég.
Þessi tilfinning er ævintýraleg.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.

Þú ert náttúrunnar undurfagra smíð,
verður hörpu minnar strengur alla tíð.
Það er ekki nokkur sem að brosir eins og þú.
Og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú.

Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.

Þú hefur löngu sigrað mig.
Takmarkalaust ég trúi á þig.
Mitt allt er þitt og verður
ókomin ár.

Ég mun elska þig allt fram á hinstu stund.
Uns ég held um síð á feðra minna fund.
En að líkum hef ég tímann fyrir mér
og ég hlakka til að eyða honum með þér.

Það er varla nokkur heppnari en ég.
Þessi tilfinning er ævintýraleg.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð alltaf, enginn vafi er um það
föstudagur, febrúar 17 2006
Klukk
skrifað @ 13:48 í [ Bloggið ]
Lallinn klukkaði mig og maður verður að taka þátt
4 störf sem ég hef unnið við um ævina:
1. Bæjarvinnan á Siglufirði
2. Síldarminjasafnið á Siglufirði
3. ISS hjá Pabba við bónleysingar
4. Á Eir og Landakoti í bítibúri
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur
1. Boondocks saints
2. Armageddon
3. Misery
4. Shawshank Redemption
4 staðir sem ég hef búið á
1. Suðurgata 53 á Sigló
2. Starengi 24/Flétturimi í Grafarvogi
3. Rofabær Rvk
4. Dyngjuvegi í Reykjavík
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar vel
1. Grannar.
2. E.R
3. C.S.I.
4. One tree hill og reyndar svona 20 í viðbót
4 heimasíður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. hi.is
2. mbl.is
3. sksiglo.is
4. fasteignasíður
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum
1. Spánn: Ibiza, Barcelona og Mallorca
2. Köben
3. London
4. Prag
4 matarkyns sem ég held uppá:
1. Kjötsúpa
2. Faitjas
3. Matstofan Faxafeni þá helst steikt hrísgrjón
4. Allt sem inniheldur kjúkling og eiginlega allur matur yfir höfuð
4 staðir sem ég vildi frekar vera á núna
1. Heima í rúminu mínu sofandi eða e-ð annað ;)
2. Á strönd að sóla mig
3. Einhversstaðar í verslunarferð
4. Á djamminu með vinkonum mínum
Ég ætla bara ekki að klukka neinn, en Gunnhildur, Hanna Sigga og Sandra mega svara þessu ef þær nenna.
Af hverju hata ég svona mikið að taka bensín??? Ég reyni eftir fremsta megni að koma mér út úr því, ég bara skil þetta ekki. Segjum sem svo að ég sé á leiðinni í skólann og viti að bensínljósið sé farið að blikka, þá ákveð ég að taka bensín á leiðinni í skólann en geri ekki, ætla að taka það á Shell við Háskólabíó en geri ekki og fer svo bara aftur heim, svona heldur þetta áfram þangað til Raggi þarf bílinn og tekur bensín. Merkilegt að ég hafi aldrei orðið bensínlaus einhversstaðar á Miklubrautinni, en ætli ég myndi ekki kenna biluðum innspýtingaheila um(smá einkahúmor). Það er ekki það að ég sjái á eftir peningunum í þetta heldur finnst mér þetta svo ógeðslega leiðinlegt held að þetta sé e-ð svona sælrænt, ég þarf kannski að fara í atferlismeðferð híhí, það er nú ekki eins og ég dæli sjálf.......Fokk þar fór margra ára lygavefur minn í vaskinn!!!
Föstudagurinn er mættur á svæðið! Ekkert djamm um helgina frekar en vanalega, verð að fara að bæta úr þessu og hún Ásta mín var að beila á mér í 10 skiptið eða e-ð held bara að hún þori ekki að leyfa mér að passa sig. Helgin fer örugglega bara í að baka og undirbúa afmælisveislu gormsins.
þriðjudagur, febrúar 14 2006
Það sem fólki dettur í hug að segja í útvarpi
skrifað @ 12:56 í [ Bloggið ]
Jæja!

Um helgina var ég að hlusta á útvarpið meðan ég var að keyra. Það var einhver snillingurinn á Bylgjunni að tala og fór að röfla um frétt sem ég hafði sjálf lesið, en hvernig hann sagði þetta kom svo illa út að ég keyrði næstum því á staur!!! Hann sagði sem sagt: Kona fékk áfall þegar hún kom að 6 mánaða stúlku barni sínu að sjúga heimilishundinn á stofugólfinu. Mér brá svo mikið og fannst þetta svo ógeðsleg mynd sem helv.... kallinn setti í hausinn á mér að ég hélt að ég myndi æla. Svo komu svaka skruðningar því tæknimaðurinn hefur örugglega sparkað duglega í fíflið til þess að láta hann leiðrétta sig sem kom bara illa út líka. En það sem aumingja maðurinn ætlaði að segja var auðvitað að Kona hefði komið að stúlkubarni sínu að næla sér í mjölkursopa hjá tíkinni á heimilinu sem er auðvitað allt annað.

Annað dæmi: Í sumar var ég líka að hlusta á útvarpið og þá er kellingin á Létt að lesa upp e-ð slúður og fer að tala um Ellen DeGeneres og kærustuna hennar Portia de Rossi.
.jpg)
Segir svo: jáhá hverjum hefði dottið í hug að þessi fallega, sexy, kvenlega kona væri lesbísk, þegar hún var að leika í Ally McBeal!
Þá vitum við það það eru ekki til neinar lessur nema trukkalessur!!!
Prófkjör samfylkingarinnar var um helgina og ég er bara mjög ánægð með að Dagur hafi hreppt fyrsta sætið, þá stendur valið á milli sæta unga læknisins og steingervingsins Villa, ekki erfitt val. Ég vil taka það fram að ég tel mig ekki mjög pólitíska manneskju og að ég er ekki flokksbundin og verð aldrei flokksbundin því ég kýs fólk ekki lista.
mánudagur, febrúar 13 2006
Guð blessi HM
skrifað @ 14:11 í [ Bloggið ]
![]()
Þá er fyrirliðinn kominn heim úr "keppnisferðalaginu" ! Mér skilst samt að árangurinn hafi ekkert verið neitt rosalegur á vellinum, en bjórinn var víst góður og stelpurnar sætar og fitt, eigum e-ð eftir að ræða þetta betur. En hann náði góðum árangri í versleríinu, mér sýnist hann bara hafa tekið HM í nefið og verslað duglega á barnið sitt, svo kom hann líka með klikkaðann Puma galla sem Gormur fór stoltur í í leikskólann í morgun (hvað eru mörg í í því?), Nike skó og e-ð smá dót. Hann skildi mig heldur ekkert útundan og keypti Calvin Klein naríur á mig og nýja skó í ræktina, held að hann hafi aðeins meiri trú á sér eftir þessa ferð en áður.
Helgin var bara fín, við Gormur sníktum mat út um allann bæ milli þess sem við nutum þess að kúra okkur heima. Ég er alveg ómöguleg í því að vera svona ein því að það tók mig alla helgina að horfa á eina DVD mynd. Svo var draugur í stofunni hjá mér alla helgina sem átt ekki að koma mér á óvart vegna þess að ég verslaði hann fyrir helgi en á bara eftir að hengja upp, en vá hvað mér brá alltaf þegar þessi kona stóð bara í stofunni allt í einu.

Þetta var nú frekar þunnt enda er mánudagur *gubb*
fimmtudagur, febrúar 09 2006
Mamma banani
skrifað @ 21:43 í [ Bloggið ]
.jpg)
Já mamma banani er e-ð sem ormurinn er búinn að vera að kalla mig seinustu daga, ég var bara ekkert að skilja af hverju ég er banani fyrir utan það að ég borða ekki banana, en svo er ég búin að fatta það. Þetta þýðir mamma borða hehe jújú er svo sem síétandi.
Stórliðið Markaregn fór í keppnisferðalag til Köben í morgun og er væntanlegt til baka á sunnudaginn, ég gat nú ekki neitt fyrirliðann til að vera heima og fékka hann því brottfararleyfi. En ég hef þetta þá bara á hann þegar ég ætla að fara e-ð án hans múhahaha. Vonandi gengur þeim bara vel og ég krossa bara puttana að hann fari ekki úr axlarlið eða e-ð verra.
Vikan er búin að vera alveg crazy, við öll drullukvefuð og slöpp hlaupandi um eins og hauslausar hænur að leita að bíl. En það hafðist svo á endanum. Á planið hér fyrir utan er kominn Ford Focus 2003.
.jpg)
Þetta er bara fínasti bíll en fyrst að draumabíllinn fannst ekki ákváðum við bara að kaupa einhvern minni og ódýrari og sleppa öllum lánum og veseni.
sunnudagur, febrúar 05 2006
OMG ég á engan bíl!!!
skrifað @ 13:59 í [ Bloggið ]
Já eins og sést í fyrirsögninni þá erum við búin að skila bílnum okkar! Skrítið að eiga engan bíl, en við erum reyndar á pabba bíl þanngað til við finnum nýjan, en þetta er e-ð svaka erfið fæðing enda erum við með bílasala fóbíu og ekki að ástæðulausu, þetta eru jú mestu glæpamenn landsins með fasteignasölum auðvitað!
Já til hamingju Ísland! Var löngu komin með þetta lag á heilann áður en það var "frumflutt" í gær, það á eftir að vinna undankeppnina og fer örugglega langt úti í aðalkeppninni en einu áhyggjurnar sem ég hef af þessu að það sé pínu asnalegt að vera með svona "grín" af því að Noregur komst langt á því í fyrra, þú veist eins og við séum að herma, þú veist skilur!!!
Helgin búin að vera fín og við erum eiginlega bara búin að liggja í leti, erum reyndar að fara með gorm á eftir í fyrsta skiptið í leikhús :S Ætlum að sjá Kalla á þakinu og erum svona nett stressuð að hann haldi ekki athyglinni enda er hann ekki þekktur fyrir að sitja kyrr en við ákváðum að reyna þar sem Mariko var svo sæt að bjóða okkur frímiða, við förum bara út í hlé ef þetta gengur ekki.
miðvikudagur, febrúar 01 2006
Veit einhver símann hjá Geir Ólafs???
skrifað @ 14:44 í [ Bloggið ]
Vá hvað mér líður vel!!! Byrjaði í dag sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Ég verð einu sinni í viku að flokka föt sem á að senda til útlanda, gefa hér eða selja hér. Fyrsti dagurinn var rosalega skemmtilegur og skemmtilegt fólk sem vinnur þarna og konan sem er æðsti strumpur þarna er þarna þrjá daga í viku og fær ekki krónu fyrir, góð hugmynd fyrir allt gamla fólkið sem hefur ekki rassgat að gera og dauðleiðist, margir gætu alveg látið gott af sér leiða.
![]()
Ég held að ég sé bara orðin geðveikt skotin í Geir Ólafs! Finnst ykkur hann ekki flottur? Svo heyrir maður af honum út um allann bæ að láta skrifa á sig "hva veistu ekki hver ég er???" og svo kemur mamma hans og borgar. En eins og hann sagði þá erum við Íslendingar svo aftarlega á merinni og kunnum ekki að meta alvöru töffara, svo eru nú ekki margir sem geta hent míkrafóninum upp í loftið og gripið með hárréttri tímasetningu eins og hann sagði sjálfur. Hann er allavegana skemmtikraftur dauðans. Endilega tjékkið á heimasíðu kappans hér þar er meira að segja hægt að skrá sig í fan club, ekki amarlegt það.

Bara einn tími á morgun og þá er komið helgarfrí, vikurnar bara fljúga áfram!
p.s. af hverju þurfti DV að birta þessar myndir sem allt er vitlaust út af???