mánudagur, janúar 30 2006


Mamma mín er flottust!!!
skrifað @ 09:21 í [ Bloggið ]

Mamma mín í viðtali hér!!!
Fyrir ykkur sem hafið áhuga þá er hún að tala um fjölmenningu á leikskólum. (spólið í 27 mín)


Hvað er málið með að verða svona ofsalega mjúkur eftir að maður fjölgar sér? Ég græt yfir E.R., Grönnum og O.C. Þetta er alveg svakalegt! Svo um daginn þá táraðist ég þegar ég sá þrífættann hund í göngutúr með eiganda sínum sem er er alveg eðlilegt en svo toppaði ég þetta í morgun þegar ég sá unga pabbann með þríburana sína koma á leikskólann!!! Ég vorkenndi manninum svo mikið.


Helgin var fín, reyndar kvefuðust allir fyrir norðan en þetta var hin fínasta ferð
Þjóðvegur1
Aron Elí svaf alla leiðina norður, sofnaði við Esjurætur og vaknaði í Strákagöngum
Kjötsúpan hennar ömmu er alltaf jafn góð
Kistulagningin
Fórum i göngutúr og drukkum í okkur sveitaloftið
Við borgarbörnin komum að læstu Ríki
Jarðarförin var sú fallegasta sem ég hef farið í
Áttum svo skemmtilegt kvöld með fjölskyldunni
Svo renndum við bara heim.



fimmtudagur, janúar 26 2006


Kann einhver finnsku?
skrifað @ 12:10 í [ Bloggið ]

se voisiko olla Björk tai keiju,
katso Ketku! Mikä on tuo, joka leijuu?
Ilmalaivammeko tullut on,
jatkuuko matkamme loputon?

Ég var semsagt að googla nafnið mitt og fann bara eitthvað drasl um mig og svo þetta á einhverri finnskri heimasíðu. Síðustu daga hef ég varla getað sofið fyrir forvitni!



þriðjudagur, janúar 24 2006


Hvar er draumurinn???
skrifað @ 09:28 í [ Bloggið ]

Ég var að spá! Ég hef aldrei haldið því fram að ég sé fullkomin og síðustu ár hef ég verið að velta því fyrir mér hvaða galla ég hafi. Þessi upptalning eru þeir gallar sem ég hef viðurkennt að ég hafi.
Innra eftirlitið

s.s. engir..................hehe
nei í alvöru þá

Þarf ég að eiga seinasta orðið í rifrildi. (En skondinn punktur sem Hugó sálfræðingur kom með í gær var að þeir sem taka eftir því að einhver annar vilji alltaf eiga seinasta orðið hljóti að vilja það sjálfir fyrst þeir eru að spá í hver eigi seinasta orðið, æj skiliði mig ekki?)

Ef þú segir mér sögu, þá þarf ég alltaf að segja þér aðra betri.

Ég get verið rosalega löt.

Er stundum svo feimin að ég fæ kvíðakast

Ég vil að allt gerist strax, helst í gær.

Á það til að pirrast mjög fljótt

Er rosalega hefnigjörn

Og er alveg ómöguleg í að eignast nýja vini

Þetta var nú ekki svo brútal! Gott að vera búin að koma þessu frá sér. Hef nú samt alveg fullt af göllum í viðbót og líka fleiri sem ég hef ekki viðurkennt.

Jæja bílaleitin gengur ekkert sérstaklega vel. Fjölskyldubíllinn hefur ákveðið að flytja að heiman þann 5.feb og ákváðum við ekkert að vera að vasast í því að ættleiða hann endanlega. Við (ég) erum löngu búin að ákveða hvernig bíl við viljum ættleiða en eitthvað gengur erfiðlega að finna þann eina rétta. Við erum reyndar ekkert stressuð þar sem pabbi hefur sagt að við megum hafa frönsku tíkina í láni á meðan leitað er.
Komdu til mömmu!!!



sunnudagur, janúar 22 2006


.......................
skrifað @ 13:45 í [ Bloggið ]

Úff ég læknaðist algjörlega af skotinu mínu í Garðari Cortes jr í gær.

Pabz er kominn heim frá Ameríku og getur farið að reka þetta fyrirtæki sitt sjálfur sem betur fer!

Ferðinni er heitið norður um næstu helgi til þess að verða viðstödd jarðarför langömmu.
langamma til hægri

Fæ meira að segja að sofa í suðurbænum, hehe. Hef ekki kunnað við mig þarna í norðurbænum þar sem amma býr núna. En þetta skilur enginn nema sannur Siglfirðingur því þetta eru jú tveir ólíkir heimar.



miðvikudagur, janúar 18 2006


Jibbí skóla
skrifað @ 10:32 í [ Bloggið ]

Jæja þá er skólinn byrjaður, ég er svo fegin!!! Þá er ég allavegana laus við þessa !"#$%%&&/%&/$" vinnu! Held nú reyndar að Ívar ætli bara að vera í fríi þangað til pabbi kemur heim því sendibíllinn kemst ekki einu sinni út úr stæðinu sínu í þessari vetrarfærð, hvað þá á dekkjarverkstæði í ný dekk.
Ég er alveg hrikalega spennt fyrir komandi önn og ætla sko að taka á því í vetur og vera alveg rosalega dugleg.

Er í rosalega spennandi námskeiðum og má t.d. nefna stjórnun og stjórnsýsla, áföll og sálræn skyndihjálp, lífskeiðakenningar og þroskaferli, sjálfboðasamtök og opinber þjónusta og síðst en ekki síst aðferðafræði III þar sem ég fæ að gera rannsókn að eigin vali. Hljómar þetta ekki spennó? Held bara að þetta sé áhugaverðasta önn frá upphafi. Verður líka rosalega gott að vera loksins komin með lappa og geta tekið almennilegar glósur í tímum. Ó guð hvað ég á alltaf eftir að vera í skóla!



mánudagur, janúar 16 2006


Feels like home
skrifað @ 21:43 í [ Bloggið ]

Mig langaði bara að koma því að að ég ELSKA þetta veður, minnir mig svo á æskuna þar sem allt var alltaf á kafi í snjó!!! Ég veit að ykkur hinum finnst þetta ömurlegt, leiðinlegt að skafa og svona en það verður allt svo bjart, ferskt og hreint og ég get notað lofhúfuna mína eins og ég vil. Fæ bara svona netta "heimþrá" í þessu. Því á Siglufirði er hægt að skjótast á skíði án þess að það verði e-ð svona mikið vesen eins og hér.
Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði
OMG hvað ég hlakka til að kenna gormi á skíði! BTW hér með lýsi ég eftir skíðum á 2ja ára, já og þið þarna borgarbörn, það er hægt að fara á skíði þegar maður er 2ja ára ;)



sunnudagur, janúar 15 2006


.......................
skrifað @ 11:18 í [ Bloggið ]

Úff hvað við erum búin að hafa það gott hér eftir þessa líka svakalegu vinnutörn. Nýja raccletið var prufað sem er svona rafmagns steinasteik. Vá! Það var svo hrikalega gott, við keyptum nautakjöt og skárum það í þunnar sneiðar og fullt af grænmeti og hver eldaði fyrir sig. Svo spiluðum við Raggi trivial uppi í rúmi!

vs

Við erum að spá í að fara í sumarhús til Spánar með Önnu, Dóra og Ástu í sumar og heimsækja svo fjölskyldu Ragga í leiðinni. Samningaviðræður milli allra sem málið varðar eru hafnar, en boltinn liggur víst hjá mér því mig langaði svo í verslunarferð í haust með múttu og stóru systur til USA, en ég verð víst að velja annað hvort og ég hugsa að það verði Spánn, langar svo að fara með gorminn á ströndina og svo spillir ekki fyrir að hafa snilldar ferðafélaga.

Úff ekki gott að vera í svona mikilli flækju, en fínt að það eru nú ekki alvarlegri hlutir sem maður þarf að hafa áhyggjur af.



fimmtudagur, janúar 12 2006


16 og þú skalt sjá mig í bíó!!!!!!
skrifað @ 16:43 í [ Bloggið ]

Þetta er bara búið að vera á repeat í hausnum á mér síðan um helgina, líka snilldar lag.

Þó svo að mér finnist Helgi Bjöss algjört ógeð í dag þá fannst mér hann flottastur í denn, næstum jafn flottur og Bjarni Ara.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var á ballinu um helgina:
Ég fékk eitt sinn spólu í jólagjöf frá minni heitt elskuðu stóru systur, það var ekkert smá hamingjusamur krakkaormur sem tók upp pakkann og komst að því að hann innihélt kassettu með Grafík og á þessari kassettu var t.d. mér finnst rigningin góð sem heitir reyndar Húsið og ég og önnur eðal lög. Þetta var s.s. fyrsta "fullorðins spólan" sem ég eignaðist og hugsaði mér nú gott til glóðarinnar að fá að láta eins og unglingur og spila almennilega músik á full blast inni í herbergi. En nei nei þessa spólu fékk ég varla að sjá. Ég held barasta að systur mína hafi langað svona rosalega mikið í hana og verið viss um að fá hana ekki sjálf, þannig að hún bara gaf mér hana og var svo bara með hana í láni í nokkur ár, þangað til hún týndist. Sterkur leikur! Henni hefur nú löngu verið fyrirgefið en svona gera víst stórar systur bara, ég veit sjálf upp á mig skömmina :)



sunnudagur, janúar 08 2006


Beðið eftir einkunnum
skrifað @ 21:29 í [ Bloggið ]

Ohhhh maður verður svo pirraður að bíða eftir þessum einkunnum, er reyndar búin að fá út úr helmingnum og er alveg rosalega ánægð með þær báðar. Gekk svo vel í stjórnmálafræðinni að ég er að spá í að skipta bara yfir í hana ;) Ég sem var búin að vera að segja við alla að ég gæti mögulega fallið og fæ svo 7,5. Ég fékk líka toppeinkunn í sálfræðinni eða 8,5.

Ég er svo ástfangin....................af nýju tölvunni minni! Hún er svo klikkuð


Annars er allt fínt að frétta, fór á ball um helgina með Grafík í tilefni af 25 árunum hennar Söndru. Leið samt ekki vel í vinnunni í dag. Ég verð pottþétt aldrei alkóhólisti, ég verð svo skelfilega þunn að ég get ekki hugsað um áfengi í vikur á eftir. Svo var skrefið loksins tekið og kort í Classanum var keypt fyrir helgi og ég hlakka bara geðveikt til að fara að hreyfa mig á fullu og passa aftur í fötin mín.

Kveðja Feiti Dvergurinn



fimmtudagur, janúar 05 2006


Uppgjörið
skrifað @ 22:20 í [ Bloggið ]

Fyrir þá sem ekki gerðu sér grein fyrir því þá er myndin hér að neðan af honum Ragnari, já hann er sexy mother fucker!

Er ekki við hæfi að gera upp árið? Þetta ár var mjög gott þó að það væri ekki eins viðburðaríkt eins og síðasta vegna þess að þá þurftum við að hætta að hugsa aðeins um eigið rassgat og breyttumst í litla fjölskyldu. En á þessu ári gerðist hins vegar margt spennandi í okkar lífi.

Ég fór aftur í skólann á fullt, eftir að hafa aðeins verið í einu og tveimur fögum frá því Aron Elí kom í heiminn
Raggi fór að vinna á nýjum stað strax eftir áramótin þ.e. sem kerfisstjóri hjá Credit info group
Aron Elí byrjaði hjá yndislegustu dagmömmu í heimi
Í febrúar skelltum við okkur til London á árshátíð
Próf-ágætis árangur
Yndislegt sumarfrí með gorminum
Aron Elí byrjar á leikskóla í september
Ragnar fer að vinna í Kazakstan í rúma viku
Ásta frænka fæðist 25.sept
Litla fjölskyldan fer til Prague í október
Verkefnavinna og aftur verkefna vinna og svo komu prófin og loks jól!

Inn í þetta vantar auðvitað helling: snilldar hittinga matarklúbbsins Makaskipta, sumarbústaðarferðir og margt margt fleira.