Ólafía! Að þú skulir segja þetta.
Jæja ég hef ákveðið að byrja að blogga.
Ég veit svo sem ekkert hvernig það á eftir að ganga þannig að við sjáum bara til.
Síðan er ekki alveg redy en þetta er allt að smella.
Ég vil þakka mínum heittelskaða (oj alltof væmið) fyrir að hjálpa mér við að setja þetta upp :*
Fyrst vil ég óska öllum gleðilegs nýs árs og takk fyrir þau gömlu.
Það sem ég er búin að vera að hugsa um lengi er það hvað ég geti eiginlega kallað hann Ragga, hef alltaf kallað hann kærastann minn en upp á síðkastið er bara eins og það sé ekki nóg :S Mér finnst samt eins og ég geti ekki kallað hann manninn minn því hann hefur ekki tilskilin leyfi hehe. Ég veit líka að einhverjir myndu segja að hann væri unnusti minn vegna hringanna sem við berum, en það orð hefur alltaf farið í taugarnar á mér og kem aldrei til með að nota það. Það sem mér finnst frekar fúlt að Raggi komist upp með að kalla mig konuna sína á mannamótum en ég hef prófað að segja kallinn, jújú það er ok en maðurinn úff þá líður mér frekar skringilega svona 30+
Hef alltaf haft gaman af svona orðapælingum og muna margir enn eftir kunningjakonupælingunum okkar Kristrúnar um árið, en hún gekk út á það hvað ætti að kalla stelpur sem maður þekkir en eru ekki beint vinkonur. Ég veit að amma kallar þær kunningjakonur en okkur fannst það alveg glatað og ákváðum að kalla þær kunnkur en mér skilst að það orð hafi ekki náð að festa sig í sessi og heita þær því enn "stelpa í skólanum" og "vinakona vinkonu vinkonu minnar"
Allar uppástungur vel þegnar
föstudagur, desember 30 2005
Og þar rifnaði meyjarhaftið
skrifað @ 15:41 í [ Bloggið ]